Skipulagsauglýsing birt dags. 25. júní 2026

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Grímsnes- og Grafningshreppur

 

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:

  1. Kertún L240053; Úr landbúnaðarsvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2605050

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps  samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2026, að kynna tillögu skipulagslýsingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Kertúni L240053 er breytt úr landbúnaðarsvæði, flokkur 2, í verslunar- og þjónustusvæði.

SKIPULAGSLÝSING

  1. Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2603066.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2026, að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu, tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu.

 GREINARGERÐ

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlana:

  1. Ásgarður; Landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2403091

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 er varðar skilgreiningu á verslunar- og þjónustusvæði í landi Ásgarðs L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229. Tilefni breytingarinnar eru áform landeiganda um uppbyggingu ferðaþjónustu á staðnum. Annars vegar er um að ræða hótel með veitingastað og hins vegar frístundahús til útleigu. Deiliskipulagsbreyting er lögð fram samhliða aðalskipulagsbreytingu þessari. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

 GREINARGERÐ

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

  1. Ásgarður; Herjólfsstígur 2-12 og Óðinsstígur 1; Verslunar- og þjónustusvæði; Nýtt deiliskipulag og óveruleg breyting á deiliskipulagi frístundsvæðis – 2403093

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Ásgarð, Herjólfsstíg 2-12 og Óðinsstíg 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Skipulagið tekur til uppbyggingar á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi í landi Ásgarðs, L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229, auk óverulegrar breytingar á núverandi deiliskipulagi frístundabyggðar í Ásgarði. Breytingin er í samræmi við aðalskipulagsbreytingu sem lögð er fram samhliða deiliskipulagsbreytingu þessari og nær til lóða 2-12 við Herjólfsstíg, lóðar Óðinsstígs 1 og þjónustulóðar við Búrfellsveg. Í breytingunni felst að skilmálar fyrir lóðir Herjólfsstíg 2-8 breytast að því leyti að þar er gert ráð fyrir frístundahúsum til útleigu. Herjólfsstígur 10 – 12, lóð við Óðinsstíg 1 og þjónustulóð við Búrfellsveg sameinast í verslunar- og þjónustulóð þar sem leyfilegt verður að reisa hótel/gistiheimili ásamt veitingastað og tilheyrandi þjónustumannvirkjum. Vegna umsagnar Minjaverndar þá er fornleifaskráningu lokið og skýrsla liggur fyrir og verið send Minjavernd. Þá hefur verið brugðist við eftirfarandi athugasemdum: Fært inn eina fornleif sem fannst og skilgreint verndarsvæði. Vegna athugasemda Vegagerðar er horfið frá aðkomu frá Búrfellsvegi og hún færð til austurs að Óðinsstíg. Vegna athugasemda Heilbrigðiseftirlits er fjallað ýtarlegar um fráveitu og hreinsivirki, ásamt ákvæði um hljóðvist. Vegna athugasemda um vatnsveitu þá lá fyrir í greinargerð áætlun um að tengjast Búrfellsveitu. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

  1. Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Reykjalundar L168273 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á jörðinni er rekin garðyrkjustöð og stendur til að stækka starfsemina og auka framleiðslu. Samhliða verður rekin ferðaþjónusta með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Einnig vilja eigendur búa á jörðinni og vera með húsnæði fyrir starfsfólk. Stærð skipulagssvæðis er 8 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.

UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is  og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

 

Mál 1. og 2.  Innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 25. júní 2026 með athugasemdarfresti til og með 17. júlí 2026.

Mál 3. – 5. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 25. júní 2026 með athugasemdarfresti til og með 7. ágúst 2026.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita