Svæðisskipulag

 

Svæðisskipulag er skipulagsáætlun tveggja eða fleiri sveitarfélaga um sameiginleg hagsmunamál og svæðisbundnar áherslur, s.s. um byggðaþróun, samgöngur og vatnsvernd.

Svæðisskipulag er unnið að frumkvæði viðkomandi sveitarstjórna og er ætlað að taka til svæðis sem myndar eina heild í landfræðilegu, hagrænu og félagslegu tilliti. Svæðisskipulög gilda oft til lengri tíma sem einskonar framtíðarsýn fyrir viðkomandi svæði og skal að lágmarki hafa gildistíma til 12 ára. Svæðisskipulag er sett fram í skipulagsgreinargerð og eftir því sem við á með þemauppdráttum og/eða sérstökum skipulagsuppdrætti.

Skylt er að vinna svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið en annars staðar á landinu er svæðisskipulagsgerð valfrjáls. Svæðisskipulög eru unnin að undirlagi sveitarstjórna hlutaðeigandi sveitarfélaga sem koma sér upp sérstakri svæðisskipulagsnefnd.

Hingað til hafa sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. ekki talið ástæðu til að ráðast í gerð svæðisskipulags milli þessara sveitarfélaga.

Nánar má lesa um svæðisskipulag hér á heimasíðu Skipulagsstofnunar.

 

Yfirlit yfir ferli svæðisskipulags

 

Síða uppfærð: 10.09.2022