12 jún Skipulagsauglýsing birt 12. júní 2025
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Flóahreppur og Hrunamannahreppur
Samkvæmt 30. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Laugarvatn L224243; Nýtt iðnaðarsvæði vegna jarðhita; Aðalskipulagsbreyting – 2505072
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 4. júní 2025 skipulagslýsingu til kynningar fyrir breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 í þéttbýlinu á Laugarvatni og breytingu á deiliskipulagi fyrir þéttbýlið á Laugarvatni. Norðvestan við Menntaskólann að Laugarvatni hefur verið borað eftir heitu vatni sem sveitarfélagið hyggst nýta. Í breyttu aðalskipulagi verður sett inn nýtt iðnaðarsvæðið fyrir jarðhitavinnslu og heimiluð nýting hans. Stærð svæðis verður að öllum líkindum allt að 1.500 fm. Umrætt svæði er í dag skilgreint sem samfélagsþjónusta. Í deiliskipulagi fyrir Laugarvatn verður afmörkuð lóð fyrir nýtingu jarðhita og settir skilmálar varðandi hana.
- Langholtskot L166796; Landbúnaðarland í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2403008
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5. júní 2025 breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps. Í breytingunni felst að hluti skipulagssvæðisins breytist úr landbúnaðarlandi í frístundasvæði auk þess sem gert er ráð fyrir breytingu og megin reiðleið um svæðið.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga:
- Hrafnheimar L218490 (áður Ásatúnsvallarland); Breyttir byggingarreitir; Deiliskipulagsbreyting – 2504063
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 8. maí 2025 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Hrafnheima L218490 (áður Ásatúnsvallarland) í Hrunamannahreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitur nr. 2 færist um 20 m til suðurs og á honum verður heimilt að reisa 400 fm byggingar í heildina þ.e. hesthús, skemmu og gistirými sem yrði allt að 100 fm af heildarbyggingarmagni reitsins. Einnig færist byggingarreitur nr. 3 suður fyrir aðkomuveg. Einnig eru skilgreindar lóðir utan um byggingarreitina.
- Sólbrekka L213875 (áður Hnaus land 4); 2 lögbýlislóðir; Deiliskipulag – 2501006
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 3. júní 2025 að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Sólbrekku L213875 (áður Hnaus land 4) í Flóahreppi. Heildarstærð landsins er um 50 ha. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland en með deiliskipulaginu felst að skilgreindar eru tvær lóðir þar sem fyrirhugað er að reisa m.a. íbúðarhús.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is og www.hrunamannahreppur.is.
Mál 1 – 2 innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 12. júní 2025 með athugasemdarfresti til og með 4. júlí 2025.
Mál 3 – 4 innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 12. júní 2025 með athugasemdarfresti til og með 25. júlí 2025.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita