07 maí Skipulagsauglýsing birt dags. 7. maí 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga skipulagslýsingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Ásmúlasel L224543; Úr landbúnaðarlandi í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2603067
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 að kynna lýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun nýs 7,2 ha. landnotkunarreits fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels L224543.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur aðalskipulagsbreytinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu.
- Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2511005
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði.
- Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting – 2511039
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gerð nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Tjaldfell norðaustan Skjaldbreiðar L175568. Fyrirhugað er að fjölga lóðum, heimila stærri mannvirki og fleiri gesti í gistingu.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
- Einiholt 3 L192608; Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting – 2604006
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. apríl 2026 að kynna breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Einiholts 3 L192608. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
- Birkibyggð; Skilgreining íbúðarbyggðar; Deiliskipulag – 2604018
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 16. apríl 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Birkibyggðar í Hrunamannahreppi. Í deiliskipulaginu felst að heimiluð er íbúðabyggð í samræmi við nýja stefnu aðalskipulags um íbúðarbyggð í dreifbýli. Settir eru skilmálar fyrir íbúðarbyggðina í Birkibyggð sem er hluti af frístundabyggðinni F9 Kjóabyggð/Álftabyggð.
- Tjaldafell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2604012
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 22. apríl 2026 að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Tjaldafells skálasvæðis. Lóðum er fjölgað og settir skilmálar fyrir hverja lóð, s.s. byggingarheimildir, nýtingarhlutfall lóða og fjöldi gesta. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi fráveitu. Lóðir eru á stærðarbilinu 5000 – 7500 m2. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir austan Tjaldafells, með heimild fyrir fleiri gestum í gistingu. Stærð skipulagssvæðis er um 15 ha. Samhliða er unnið að breytingu á aðalskipulagi og er deiliskipulagið í samræmi við það. Við gildistöku nýs deiliskipulags fellur eldra deiliskipulag úr gildi.
- Hvítárbyggð; Skilgreining frístundasvæðis; Deiliskipulag – 2602002
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 17. mars 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Hvítárbyggðar og Fálkabyggðar, L238531, í Flóahreppi. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við Aðalskipulag Flóahrepps 2017-2029, með síðari breytingum, þar sem svæðið er skilgreint sem frístundabyggð (F22). Í tillögunni er kveðið á um skipulag og uppbyggingu frístundabyggðar á um 36 ha svæði, þar sem gert er ráð fyrir 29 frístundalóðum.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:
- Gaukshöfði og Búðafoss; Sveitarfélagamörk; Aðalskipulagsbreyting – 2602017
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 22. apríl 2026, með fimm atkvæðum viðkomandi óverulega breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Breytingin felur í sér samræmingu sveitarfélagamarka á aðalskipulagi sveitarfélaganna Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Rangárþings ytra, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni eru sveitarfélagamörk samræmd frá Gaukshöfða niður undir Búðafoss, þar sem staðfest landamerki milli jarða beggja vegna árinnar liggja til grundvallar, en að öðru leyti er miðað við sveitarfélagamörk samkvæmt IS50v. Jafnframt er landnotkun aðlöguð að breyttum sveitarfélagamörkum, án breytinga á skilmálum, og eru breytingarnar unnar samhliða á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. og 5. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 7. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 29. maí 2026.
Mál 2. – 4. og 6. – 8. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 7. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 19. júní 2026.
Mál 9. er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita