08 okt Skipulagsauglýsing dags. 8. október 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Hrunamannahreppur
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Silfurtún; Íbúðarbyggð og breytt skilgreining lands; Aðalskipulagsbreyting – 2603007
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 3. september 2026 að auglýsa tillöguna sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Í breytingunni felst að hluti lands Silfurtúns, L166897, á Flúðum, sem nú er skilgreindur sem landbúnaðarsvæði, verði breytt í íbúðarbyggð. Samhliða verður unnin breyting á deiliskipulagi miðsvæðis og garðyrkjulóða á Flúðum vegna uppbyggingar nýs íbúðarhverfis. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
- Vesturbrún 2-8 og 10-20: Þjónustuíbúðir og félagsþjónusta; Deiliskipulagsbreyting – 2411043
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 1. október 2026, að auglýsa að nýju, þar sem ár er liðið síðan athugasemdafrestur við tillöguna rann út. Tillagan tekur til Torfudals og Vesturbrúnar í Hrunamannahreppi. Við Vesturbrún er fyrirhugað að reisa þjónustuíbúðir og félagsþjónustu fyrir aldraða. Í breytingunni felst að núverandi íbúðir sem eru á einni hæð við Vesturbrún 10, 12 og 14 verði fjarlægðar og nýtt eins til tveggja hæða íbúðarhús auk kjallara og bílageymslu neðanjarðar byggt í þeirra stað. Áætlað er að í húsinu verði 28 þjónustuíbúðir fyrir aldraða auk 400 fm þjónustukjarna á einni hæð þar sem í verður félagsaðstaða aldraðra og matsalur. Íbúðarhúsin að Vesturbrún 2, 4, 6 og 8 og að 16, 18 og 20 komi til með að standa en þau verða endurgerð og íbúðum í þeim fjölgað.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. – 2. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 8.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 20.11.2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita