09 júl Skipulagsauglýsing birt dags. 9. júlí 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Silfurtún L166897, íbúðarbyggð og breytt skilgreining lands, aðalskipulagsbreyting – 2603007
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 1. júlí 2026 að kynna breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Í breytingunni felst að hluti lands Silfurtúns L166897 á Flúðum, sem nú er skilgreint sem landbúnaðarsvæði, verði breytt í íbúðarbyggð. Samhliða verður unnin breyting á deiliskipulagi miðsvæðis og garðyrkjulóða á Flúðum vegna uppbyggingar nýs íbúðarhverfis. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Samkvæmt 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga:
- Skálabrekka Vestri L229116, Lindarbrekkugata, Unnargata og Guðrúnargata, lega, stærð og fjöldi lóða, deiliskipulagsbreyting – 2504067
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 26. júní 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skálabrekku Vestri samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér breytingar á legu og stærð lóða innan skipulagssvæðisins auk þess sem lóðum er fjölgað úr 21 í 23.
Fyrri auglýsing um gildistöku deiliskipulags verður afturkölluð þar sem athugasemd kom fram um að deiliskipulagið hefði verið auglýst áður en breyting á aðalskipulagi hafði öðlast gildi. Aðalskipulagsbreyting hefur nú tekið gildi og er deiliskipulagstillagan því auglýst að nýju.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna innan sex vikna frá birtingu auglýsingar þessarar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast Bláskógabyggð innan auglýsts frests.
Fyrirliggjandi umsagnir og athugasemdir sem borist hafa á fyrri stigum málsins verða lagðar til grundvallar áfram og þurfa því ekki að berast að nýju, nema aðilar kjósi að bæta við eða breyta fyrri athugasemdum.
- Einiholt 2 L180525; Skilgreining svæðis, íbúðar- og atvinnuhús; Deiliskipulag – 2512017
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 26. júní 2026, að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjatorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni.
- Snorrastaðir L168101; Afmarkaðar 4 lóðir og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2606062
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 26. júní 2026, að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Snorrastaða L168101 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að afmarkaðar eru 4 lóðir og settir byggingarskilmálar í samræmi við stefnu aðalskipulags fyrir frístundabyggð. Svæðið sem breytingin nær til er 2,3 ha.
- Laugarvatn L224243; Hleðslustöð á tjaldstæði, afmörkuð lóð; Deiliskipulagsbreyting – 2606052
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 26. júní 2026, að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem tekur til tjaldstæðis á Laugarvatni L224243, í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að við aðkomu að tjaldstæðinu er afmörkuð lóð þar sem heimilt er að vera með rafhleðslustæði, og svæði fyrir hestagerði er fært fjær Laugarvatnsvegi.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 9. júlí 2026 með athugasemdarfresti til og með 31. júlí 2026.
Mál 2.-5. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 9. júlí 2026 með athugasemdarfresti til og með 21. ágúst 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita