Skipulagsauglýsing sem birtist 17.mars 2021 – Hvammsvirkjun

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur


Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst sameiginleg tillaga að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun

Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá.

Sveitastjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps leggja sameiginlega fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun til auglýsingar. Framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar er í báðum sveitarfélögunum. Stöðvarmannvirki verða í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, en stíflumannvirki og lón munu taka yfir land í ofanverðri Landsveit í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Ofangreind tillaga ásamt kynningargögnum frá Landsvirkjun má nálgast hjá Skipulagsfulltrúum ofangreindra sveitarfélaga, og á heimasíðum sveitarfélaganna Rangárþings ytra, www.ry.is   og Skeiða- og Gnúpverjahrepps www.skeidgnup.is. Nálgast má frekari upplýsingar auk niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum á heimasíðu verkefnisins Hvammsvirkjun – hvammur.landsvirkjun.is. Athugasemdir og ábendingar við auglýsingu deiliskipulagsins skulu berast eigi síðar en
30. apríl 2021 og skal skilað skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni, á skrifstofu skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra Suðurlandsvegi 1-3, Hellu eða með tölvupósti á netföngin vigfus@utu.is og/eða birgir@ry.is . Í samræmi við bókun sveitarstjórnar teljast athugasemdir sem bárust vegna kynningar málsins jafnframt til athugasemda við auglýsingu skipulagsins nema ný athugasemd berist frá sama aðila á auglýsingatíma skipulagsins.

Haraldur Birgir Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Vigfús Þór Hróbjartsson, Skipulagsfulltrúi UTU