27 ágú Skipulagsauglýsing birt dags. 27. ágúst 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Grímsnes- og Grafningshreppur
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
- Kvíanes L239311; Efri-Brú Kvíanes 4 L238165; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2510070
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. ágúst að auglýsa á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 nýtt deiliskipulag fyrir Efri-Brú Kvíanes L191871 og Efri-Brú Kvíanes 4 L238165 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir frístundabyggð fyrir samtals 14 lóðum.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:
- Ásgarður; Breytt landnotkun; Aðalskipulagsbreyting – 2607013
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. ágúst 2026, framlagða óverulega breytingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felur í sér að skilgreining lands Ásgarðs II er leiðrétt. Í því felst að landbúnaðarsvæði L2 er stækkað og frístundabyggð F25 er minnkuð sem því nemur. Um er að ræða 1,9 ha svæði. Sveitarstjórn samþykkti að auglýsa niðurstöðu þessa.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 27. ágúst 2026 með athugasemdarfresti til og með 9. október 2026.
Mál 2. innan auglýsingar er birting og tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á Aðalskipulagi.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita