26 mar Skipulagsauglýsing birt dags. 26. mars 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Hrunamannahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Syðra-Langholt; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Aðalskipulagsbreyting – 2505033
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2026 að kynna breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Í breytingunni felst stækkun á grjótnámu á Syðra-Langholti (efnistökusvæði E31) úr 0,9 ha í 1,3 ha þar sem leyfileg efnistaka verður 138.000 m3 í stað 45.000 m3.
- Írafossvirkjun; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 18. mars 2026 að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður.
- Silfurtún L166897; Íbúðarbyggð og breytt skilgreining lands; Aðalskipulagsbreyting – 2603007
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5. mars 2026 að kynna skipulagslýsingu um íbúðabyggð við Silfurtún. Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Í breytingunni felst að hluti lands Silfurtúns, L166897, á Flúðum, sem nú er skilgreindur sem landbúnaðarsvæði, verði breytt í íbúðarbyggð. Samhliða verður unnin breyting á deiliskipulagi miðsvæðis og garðyrkjulóða á Flúðum vegna uppbyggingar nýs íbúðarhverfis.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Syðri-Brú L168277; Úr frístundabyggð í athafnasvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2503029
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. janúar 2026 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Syðri-Brú L168277 en í breytingunni felst skilgreining á athafnasvæði og vatnsbóli fyrir uppsetningu átöppunarverksmiðju fyrir neysluvatn. Einnig er frístundabyggð breytt í landbúnaðarsvæði í kringum athafnarsvæðið.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:
- Súluholtshjáleiga L166391; Efnistaka og losunarsvæði E24; Aðalskipulagsbreyting – 2602014
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 17. febrúar 2026 að kynna niðurstöðu sveitarstjórnar vegna breytingar á aðalskipulagi. Breytingin tekur til jarðarinnar Súluholtshjáleigu, E24, þar sem lagt er til að skilgreint verði nýtt efnistöku- og efnislosunarsvæði. Heimilt verði að vinna allt að 48. þús m³ af efni á 1,7 ha svæði. Einnig er heimilt að losa jarðveg í námuna og ganga jafn óðum frá þeim hluta þar sem efnistöku er lokið. Á svæðinu hefur verið tekið efni um árabil til staðbundinna nota og er með aðalskipulagsbreytingunni verið að leiðrétta landnotkun.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. – 3. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 26. mars 2026 með athugasemdarfresti til og með 17. apríl 2026.
Mál 4. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 26. mars 2026 með athugasemdarfresti til og með 8. maí 2026.
Mál 5. innan auglýsingar er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Nanna Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita