Skipulagsauglýsing birt 5. mars 2026

 

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Grímsnes- og Grafningshreppur 

 

Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:

  1. Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 18. febrúar 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Reykjalundar L168273 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á jörðinni er rekin garðyrkjustöð og stendur til að stækka starfsemina og auka framleiðslu. Samhliða verður rekin ferðaþjónusta með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Einnig munu eigendur búa á jörðinni og vera með húsnæði fyrir starfsfólk. Stærð skipulagssvæðis er 8 ha.

 UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

 

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:

  1. Krókur land L219678; Skilgreining svæðis; Aðalskipulagsbreyting – 2510045

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 5. nóvember 2025, að kynna niðurstöðu fundar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps. Við endurskoðun aðalskipulags með tilliti til útmarka landeignar Króks L219678, var óbyggt svæði látið liggja of langt innan landeignar og ná yfir svæði sem er landbúnaðarland í flokki L3 og frístundabyggð (F7). Þessari afmörkun var breytt samhliða deiliskipulagsbreytingu árið 2007 fyrir frístundabyggð sem minnkar landbúnaðarland og stækkar óbyggt svæði (ÓB). Með þeirri breytingu sem hér er gerð er því verið að færa afmörkun óbyggðs svæðis (ÓB), landbúnaðarlands (L3) og frístundabyggðar (F7) til fyrra horfs innan landeignar. Deiliskipulagsbreyting er lögð fram samhliða þessari aðalskipulagsbreytingu.

UPPDRÁTTUR

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is  og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Mál 1. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 5. mars 2026 með athugasemdarfresti til og með 27. mars 2026.

Mál 2.  innan auglýsingar er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita