16 júl Sumarlokun skrifstofu UTU
Skipulags- og byggingarsvið UTU verða lokuð frá 21. júlí til og með 6. ágúst nk. vegna sumarleyfa starfsfólks. Skipulags- og byggingarsvið opna aftur mánudaginn 11. ágúst.
Næsti afgreiðslufundur byggingarfulltrúa verður 13. ágúst.
Næsti fundur skipulagsnefndar verður 18. ágúst.
Sótt er um alla þjónustu á þjónustugáttinni sem notendur geta skráð sig inn á með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
Seyrusviðið verður opið í sumar vegna losunar á rotþróm og móttöku á seyru. Hægt er að hafa samband með tölvupósti í seyra@seyra.is eða hringja í síma 480-5550 á símatíma.