Þjóðskrá lokar tímabundið fyrir vinnslur

Þjóðskrá Íslands mun loka fyrir vinnslur í Fasteignaskrá vikuna 16. til 20. maí á meðan vinna vegna endurmats fasteignamats stendur yfir. Í þessu felst að lokað verður fyrir skráningu byggingarfulltrúa og staðfestingar sýslumanna vegna lóðastofnana og eignaskiptasamninga,  líkt og allar aðrar breytingar á fasteignaskrá.

Starfsmenn UTU bs. munu því ekki geta uppfært byggingarstig eða sent inn lóðastofnanir á meðan á þessu stendur.

Þó lokað verði fyrir allar nýskráningar á þessu tímabili mun áfram verða hægt að fletta upp í fasteignaskránni á vefnum – www.skra.is