Ritari óskast

Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.
Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli.
Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Móttaka gagna og skjalaumsjón
  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti
  • Samskipti og bréfaskrif við opinberar stofnanir
  • Reikningagerð
  • Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Rík þjónustulund
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta í öllum helstu forritum s.s. Outlook, Word og Excel
  • Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er mikill kostur
  • Þekking á ONESystem umsjónarkerfinu er kostur

Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhannes Hr. Símonarson, skrifstofustjóri í síma 480-5550 eða á netfanginu johannes@utu.is Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á þetta sama netfang.

Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 6. maí n.k.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. (UTU) er sameiginleg skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa Ásahrepps, Bláskógabyggðar, Flóahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Hjá embættinu starfa tíu manns. Skrifstofa embættisins er á Laugarvatni. Mörg sumarhús eru á starfssvæði embættisins og einkennir það starfsemi UTU umfram flest önnur skipulags- og byggingarembætti á landinu.