Skipulagsauglýsing, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps dags. 10. sept. 2026

Auglýsing um skipulagsmál í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Deiliskipulagsmál

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst sameiginlega tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun 

Eftirfarandi eru helstu breytingar sem gerðar eru á deiliskipulaginu:

  • Nákvæm afmörkun Hagalóns liggur fyrir og er því breytt lítillega, stærð lóns þó lítt breytt.
  • Efnislosunarsvæði við Ölmóðsey minnkar og vegur þangað breytist vegna minja.
  • Legu Þjórsárdalsvegar er breytt ásamt reiðleið með honum, heimiluð eru undirgöng undir veginn.
  • Settur er inn áningarstaður við Hagalón. Heimilaður er annar tímabundinn áningarstaður á framkvæmda tíma.
  • Legu vega innan svæðis er breytt lítillega og einhverjir vegir breytast úr vinnuvegi í varanlegan veg. Bætt er inn vegi að tengivirki.
  • Reiðvegir um svæðið breytast.
  • Legu háspennulína og rafstrengja er breytt lítillega. Á uppdrætti er felld út tímabundin færsla háspennu línu en færslan áfram heimil á framkvæmdatíma.
  • Vatnstankur færist inn fyrir lóðamörk.
  • Legu nokkurra vinnuvega er breytt lítillega.
  • Sveitarfélagamörk eru leiðrétt til samræmis við breytingu í aðalskipulagi.
  • Afmarkaðar eru lóðir og byggingarreitir fyrir stíflur.
  • Lóð stöðvarhúss/stíflu er stækkuð að sveitarfélagamörkum í Þjórsá. Að öðru leyti en því sem kemur fram hér að aftan gilda skilmálar eldra deiliskipulags.

UPPDRÁTTUR 2.500

UPPDRÁTTUR 12.500

GREINARGERÐ

Tillagan var samþykkt til auglýsingar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þann 12.8.2026 og á fundi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þann  5. ágúst 2026.

 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúum beggja sveitarfélaga, á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is.  og á heimasíðu umhverfis- og tæknisviðs uppsveita, www.utu.is     

Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 21. október 2026 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is eða skipulagsfulltrúa UTU í síma 480-5550 eða með tölvupósti sigridur@utu.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi UTU