05 feb Skipulagsauglýsing birt 5. febrúar 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2512021
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026, skipulagslýsingu til kynningar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap.
- Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting – 2511039
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026, að kynna breytingu á aðalskipulagi sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er skálasvæðið við Tjaldafell, norðaustan Skjaldbreiðar. Í breytingunni felst að afþreyingar- og ferðamannasvæði stækkar úr 5 ha í 14,7 ha, lóðum er fjölgað úr 10 í 13 og settir eru skilmálar fyrir svæðið, s.s. byggingarheimildir á hverri lóð og fjöldi gesta.
- Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2511005
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026, að kynna breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði.
- Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026, að kynna breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu.
Samkvæmt 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga:
- Skógarlundur L236998; Uppbygging ferðaþjónustu; Deiliskipulag – 2512005
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Skógarlundar L23699. Í deiliskipulaginu felst að landið verði skilgreint fyrir gistiþjónustu í smáhýsum ásamt þjónustubyggingum. Heimild er fyrir 70 gistihúsum og 192 gistirýmum, ásamt þjónustuhúsum fyrir starfsemina. Hámarksbyggingarmagn er 3,000 m2 fyrir svæðið. Deiliskipulag þetta er unnið samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið.
- Loftsstaðir-Vestri L165512; Breytt stærð byggingarreita; Kúluhús-tjaldhýsi; Deiliskipulagsbreyting – 2510028
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 20. janúar 2026, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Loftsstaða-Vestri L165512 í Flóahreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitur B4 er færður til og þar verður heimilt að setja upp hús að hámarki 30 m2 og gufu að hámarki 25 m2. Byggingarreitur B3 breytist í lögun og þar er heimilt að reisa 15 kúluhús sem er um 4,6 m í þvermál vestan við veginn. Austan við veginn er heimilt að setja upp þjónustuhús að hámarki 150 m2.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. – 4. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 5. febrúar 2026 með athugasemdarfresti til og með 27. febrúar 2026.
Mál 5. – 6. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 5. febrúar 2026 með athugasemdarfresti til og með 20. mars 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita