Skipulagsauglýsing birt 26. febrúar 2026

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Flóahreppur

 

 

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:

  1. Ölvisholt 4A L229601; Textabreyting vegna breyttrar notkunar brugghúss; Aðalskipulagsbreyting – 2510038

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum dags. 16. desember 2025, að kynna niðurstöðu sveitarstjórnar á óverulegri breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, sem tekur til skika Ölvisholt 4A L229601. Byggir samþykkt sveitarstjórnar á uppfærðri tillögu þar sem bílastæði hafa verið færð norður fyrir húsið og gerður göngustígur að innkomu inn í turnana. Landeigandi skal setja upp girðingu meðfram vegi á milli húsanna og vegur niður að frístundasvæði skal hugsaður sem þjónustuvegur og göngustígur. Breytingin felur í sér breytingu á greinargerð en þar stendur að á staðnum er rekið brugghús og fyrirhugað er að hefja veitingarekstur. Eftir breytingu stendur að fyrrverandi brugghúsi verður breytt fyrir veitingasölu og gistirými.

UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

Mál 1 er mál er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita