Framkvæmdaleyfi birt 21. maí 2025

 

 

AUGLÝSING UM FRAMKVÆMDARLEYFI

Ásahreppur

 

Samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér auglýst útgáfa framkvæmdarleyfis:

 Sigölduvirkjun L165348; Stækkun Sigöldustöðvar; Framkvæmdarleyfi – 2502032

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. febrúar 2025 að gefa út framkvæmdaleyfi, skv. 13. og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæðum reglugerar nr. 772/2012 með síðari breytingum, sem tekur til stækkunar Sigöldustöðvar sem miðar að því að auka uppsett afl virkjunarinnar. Uppsett afl stöðvarinnar er nú 150 MW en fyrirhugað er að auka það í 215 MW. Fyrir liggur álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum, dags. 18. desember 2023, sem tekur til umhverfismatsskýrslu vegna viðkomandi framkvæmdar, og var það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirliggjandi umhverfismatsskýrsla uppfyllti skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Útgáfa leyfisins byggir á fyrrgreindri umhverfismatsskýrslu, áliti Skipulagsstofnunar auk heimilda gildandi aðal- og deiliskipulagsáætlana vegna Sigöldustöðvar og annarra fyrirliggjandi gagna. Ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfisins var birt í fundargerð hreppsnefndar Ásahrepps á heimasíðu sveitarfélagsins að afloknum fundi nefndarinnar þann 19. febrúar 2025. Leyfið var gefið út þann 10. mars 2025 og útgáfa þess auglýst opinberlega með birtingu á skipulagsgatt.is undir málsnr. 315/2025 þann 10. mars 2025.

GREINARGERÐ

 

Framkvæmdaleyfi ásamt fylgigögnum liggur frammi á skrifstofu Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs., Hverabraut 6, 840 Laugarvatni, í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu www.utu.is/.

Ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011.

 

Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita