Deiliskipulag Hvammsvirkjunar – Auglýst 24. maí 2017

Auglýsing um skipulagsmál í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt sameiginleg tillaga að deiliskipulagi ásamt frummatsskýrslu skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.

 Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá.

Sveitastjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps leggja sameiginlega fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun. Framkvæmdasvæði Hvamm­svirkjunar er í báðum sveitarfélögunum.  Stöðvarmannvirki verða í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, en stíflumannvirki og lón munu taka yfir land í ofanverðri Landsveit og í Skeiða- og Gnúp­verjahreppi.

Ofantalin tillaga er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúum ofangreindra sveitarfélaga, og á heimasíðum sveitarfélaganna Rangárþings ytra, www.ry.is og Skeiða- og Gnúpverjahreppur www.skeidgnup.is Jafnframt má nálgast frummatsskýrsluna hjá Skipulagsstofnun eða á vef þeirra www.skipulag.is

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. júlí 2017

 

Haraldur Birgir Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra og

Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Deiliskipulagsgögn

(Deiliskipulagsuppdráttur)

(Yfirlitsuppdráttur)

(Greinargerð)

Hér má skoða upplýsingar um endurskoðað mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar sem auglýst er samhliða.