10 sep Skipulagsauglýsing birt dags. 10. sept. 2026
AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur og Hrunamannahreppur
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
- Syðra-Langholt; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Aðalskipulagsbreyting – 2505033
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 6. ágúst 2026, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 og deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun á grjótnámu á Syðra-Langholti (efnistökusvæði E31) úr 0,9 ha í 1,3 ha þar sem leyfileg efnistaka verður 138.000 m3 í stað 45.000 m3.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
- Ásmundarstaðir 1 2/5; Skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag – 2607024
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 2. september 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Ásmundarstaða 1 L187658 og Ásmundarstaða 3 L165267. Í deiliskipulaginu felst að tvær nýjar íbúðarlóðir eru stofnaðar. Heimilt að byggja allt að 3 hús á lóð, s.s. íbúðarhús með bílageymslu, gestahús/geymslu eða gróðurhús.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 10.9.2026 með athugasemdarfresti til og með 23.10.2026.
Mál 2. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 10.9.2026 með athugasemdarfresti til og með 2.10.2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita