22 júl Sérfræðingur í skipulagsmálum
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita leitar eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skipulagsmálum.
Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Viðkomandi þarf að vera jákvæður, ábyrgur og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Sérfræðingur í skipulagsmálum mun starfa í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins með það að markmiði að stuðla að fagmennsku, mótun og þróun skipulagsmála.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf um skipulagsmál.
- Samskipti og bréfaskrif.
- Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
- Rýna og yfirfara skipulagsgögn.
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skipulags- og lóðamálum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi. Skipulagsfræði eða sambærilegt.
- Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er æskileg.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, möguleiki er á fjarvinnu eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum vefinn alfred.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri, – nanna@utu.is