Skipulagsauglýsing birt 12. mars 2026

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Grímsnes- og Grafningshreppur

 

 

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga aðalskipulagslýsingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:

  1. Írafossvirkjun; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. mars að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta með því að tengja hana inn á Írafossstöð í stað Ljósafossstöðvar. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um 2 km leið frá Írafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður.

 SKIPULAGSLÝSING

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is  og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Mál 1. innan auglýsingar er skipulagslýsing í kynningu frá 12. mars 2026 með athugasemdarfresti til og með 3. apríl 2026.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita