Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita (UTU bs.), er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps. Byggðasamlagið er stofnað á grundvelli 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um samstarf sveitarfélaga um afmörkuð verkefni.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. telst því vera opinber stofnun á sveitarstjórnarstigi og hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa í aðildarsveitarfélögum byggðasamlagsins.

Sjá samþykktir Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.

 

Afgreiðslutími skrifstofu:
Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni og er hún opin alla virka daga frá 9.00 – 12.00. Á skrifstofunni er móttaka teikninga og annarra prentaðra gagna sem berast þurfa byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa. Jafnframt má koma útprentuðum gögnum sem berast eiga til embættisins á skrifstofu Flóahrepps í Þingborg milli kl. 09.00 – 16.00 mánudaga til fimmtudaga og milli kl. 09.00 – 13.00 á föstudögum.

 

Viðtals og símatímar:
Viðtals- og símatímar skipulagsfulltrúa, byggingarfulltrúa og annarra starfsmanna er alla virka daga – nema miðvikudaga – milli kl. 9.00-12:00. Miðvikudagar eru fundardagar og því er ekki svarað í síma á þeim dögum. Aðalsímanúmer embættisins er 480-5550. Mælst er til þess að fundir séu bókaðir með fyrirvara með því að hringja í síma 480-5550 á símatíma.

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa eru alla jafna 1. og 3. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.

  • Fullnægjandi gögn þurfa að hafa borist í síðasta lagi í lok þriðjudags í vikunni fyrir fund til að mál verði tekið fyrir.

Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna 2. og 4. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.

  • Fullnægjandi gögn þurfa að hafa borist í síðasta lagi fyrir kl. 13.00 á mánudegi í vikunni fyrir fund til að mál verði tekið fyrir.

 

Birting afgreiðslubréfa:
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. birtir afgreiðslubréf og önnur sértæk bréf sem beint er sérstaklega til ákveðins/ákveðinna aðila inni á pósthólfi viðkomandi inni á island.is, samkvæmt lögum nr. 105/2021 um  stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. UTU bs. hvetur alla til að ná sér í island.is appið sem gefur notendum aðgang að skjölum, umsóknum, skírteinum og fleiru sem tengist opinberri þjónustu.

Allir einstaklingar með íslenska kennitölu, sem og lögaðilar sem skráðir eru í Fyrirtækjaskrá, eiga nú þegar til sitt eigið pósthólf á island.is

 

Starfsmenn:

Netfang Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs:  utu@utu.is Skrifstofustjóri:
Nanna Jónsdóttir
Netfang: nanna@utu.is 
Móttaka:
Guðmar Pálsson
Netfang: gudmar@utu.is 
Skipulagsfulltrúi:
Vigfús Þór Hróbjartsson
Netfang: vigfus@utu.is
Byggingarfulltrúi:
Davíð Sigurðsson
Netfang: david@utu.is 
Aðstoðarmaður skipulagsfulltrúa (lóðir og skjalamál):
Elísabet Dröfn Erlingsdóttir
Netfang: elisabet@utu.is
Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa:
Stefán Short
Netfang: stefan@utu.is
Ritari:
Rebekka Rut Ingvarsdóttir
Netfang: rebekka@utu.is
Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa:
Lilja Ómarsdóttir
Netfang: lilja@utu.is
Ritari:
Ellisif Malmo Bjarnadóttir
Netfang: ellisif@utu.is
Ritari byggingarfulltrúa:
Hildur Magnúsdóttir
Netfang: hildur@utu.is
Aðstoðarmaður skipulagsfulltrúa:
Sólveig Olga Sigurðardóttir
Netfang: solveig@utu.is 
 
Síða uppfærð: 28.10.2022