Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita (UTU), er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps. Byggðasamlagið er stofnað á grundvelli 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um samstarf sveitarfélaga um afmörkuð verkefni.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. telst því vera opinber stofnun á sveitarstjórnarstigi og hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni byggingar- og skipulagsfulltrúa ásamt því að sjá um hreinsun á rotþróm aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins. Jafnframt sér UTU um móttöku og vinnslu á seyru.
Sjá samþykktir Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Gildi UTU
Jákvæðni – Viðhorf okkar til samfélagsins og þjónustunnar byggir á góðum samskiptum og lausnamiðuðum hugsunarhætti. Jákvæðni okkar smitar út frá sér og styrkir bæði liðsheild og starfsanda.
Traust – Grunnstoð árangursríks samstarfs og faglegra ákvarðana byggir á heiðarleika, áreiðanleika og gagnsæi. Þegar samfélagið ber traust til starfseminnar er rými fyrir opna umræðu, frumkvæði og ábyrgð.
Virðing – Við metum fólk að verðleikum, hlustum af einlægni og tökum tillit til ólíkra sjónarmiða. Virðing fyrir embættinu styrkir tengsl við samfélagið, eykur vellíðan og stuðlar að heilbrigðu og öruggu starfsumhverfi.
Afgreiðslutími skrifstofu:
Skrifstofa embættisins er að Hverabraut 6 á Laugarvatni, opin alla virka daga frá 9.00 – 12.00. Á skrifstofunni er móttaka gagna sem berast þurfa embættinu en einnig er hægt að koma útprentuðum gögnum á skrifstofu Flóahrepps í Þingborg milli kl. 09.00 – 16.00 mánudaga til fimmtudaga og milli kl. 09.00 – 13.00 á föstudögum.
Viðtals og símatímar
Viðtals- og símatímar eru alla virka daga – nema miðvikudaga – milli kl. 9.00-12:00.
Aðalsímanúmer embættisins er 480-5550. Mælst er til þess að fundir séu bókaðir með fyrirvara með því að hringja og eða senda tölvupóst á utu@utu.is
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa eru alla jafna 1. og 3. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.
Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna 2. og 4. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.
Birting afgreiðslubréfa
UTU birtir afgreiðslubréf og önnur sértæk bréf sem beint er sérstaklega til ákveðins/ákveðinna aðila inni á pósthólfi viðkomandi á island.is, samkvæmt lögum nr. 105/2021 um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Hafa samband
Unnt er að ná sambandi við allt starfsfólk UTU og senda fyrirspurnir í gegnum eftirfarandi netföng:
Almennar fyrirspurnir: utu@utu.is
Seyrumál: seyra@seyra.is
Skipulagsmál: skipulag@utu.is
Úttektir: uttektir@utu.is
Hjá UTU starfar öflugur hópur einstaklinga með yfirgripsmikla þekkingu og fjölbreytta menntun, saman mynda þau sterka liðsheild.
Starfsfólk UTU
| Benedikt Elvar Jónsson / Seyruverkefni | Bjarni Arnar Hjaltason / Seyruverkefni |
| Davíð Sigurðsson / Byggingarfulltrúi | Ellisif Malmo Bjarnadóttir / Verkefnastjóri í stoðteymi |
| Erla Guðný Gylfadóttir / Verkefnastjóri í stoðteymi | Guðmar Elís Pálsson / Verkefnastjóri í stoðteymi |
| Hildur Magnúsdóttir / Verkefnastjóri í stoðteymi | Lilja Ómarsdóttir / Sérfræðingur í byggingarmálum |
| Nanna Jónsdóttir / nanna@utu.is / Framkvæmdastjóri | Rebekka Rut IngvarsdóttirVerkefnastjóri í stoðteymi |
| Sigríður Kristjánsdóttir / Skipulagsfulltrúi | Sólrún Margrét Ólafsdóttir / Sérfræðingur í skipulagsmálum |