ÞJÓNUSTUGÁTT VEGNA RAFRÆNNA BYGGINGARLEYFA TEKIN Í NOTKUN

Í tilefni af opnun þjónustugáttar á heimasíðu embættis
Umhverfis-og tæknisviðs Uppsveita bs.  www.utu.is verður
haldinn kynningarfundur í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi
miðvikudaginn 
16. október kl. 17:00.

Með tilkomu þjónustugáttar geta umsækjendur nú sótt um
byggingarleyfi rafrænt með því að skrá sig inn með rafrænum
skilríkjum/Íslykli. Einungis verður tekið við rafrænum
umsóknum frá og með 
1. nóvember 2019.

Embættið þjónustar Ásahrepp, Flóahrepp, Grímsnes- og
Grafningshrepp, Bláskógabyggð, Skeiða-og Gnúpverjahrepp
og Hrunamannahrepp.

Allir sem áforma aðkomu að byggingarframkvæmdum eru
hvattir til að mæta. Allir velkomnir.

Byggingarfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.,

Davíð Sigurðsson