12 nóv Skipulagsnefndarfundur nr. 336. haldinn dags. 11. nóvember 2026
Skipulagsnefnd – 336. fundur haldinn að Laugarvatni, miðvikudaginn 11. nóvember 2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Ólafur Melsted.
Fundargerð ritaði: Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi
Dagskrá:
| Bláskógabyggð – Almenn mál |
||
| 1. | Einiholt 2 L180525; Skilgreining svæðis, íbúðar- og atvinnuhús; Deiliskipulag – 2512017 | |
| Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjartorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða deiliskipulagstillögu fyrir Einiholt 2 eftir auglýsingu ásamt framkomnum umsögnum og athugasemdum, viðbrögðum skipulagshönnuðar og uppfærðum skipulagsgögnum. Nefndin tekur fram að athugasemdir sem bárust við auglýsingu tillögunnar lúta meðal annars að fyrirhugaðri uppbyggingu eldishúsa fyrir alifuglarækt og mögulegum grenndaráhrifum starfseminnar. Nefndin telur að gerð hafi verið grein fyrir þeim athugasemdum sem fram komu og að fyrirliggjandi gögn, ásamt þeim skilyrðum og regluverki sem gilda um starfsemina og leyfisveitingar vegna hennar, veiti fullnægjandi grundvöll fyrir afgreiðslu málsins. Að mati nefndarinnar er tillagan í samræmi við gildandi Aðalskipulag Bláskógabyggðar og felur í sér heildstæða stefnumörkun um nýtingu jarðarinnar til íbúðar-, ferðaþjónustu-, landbúnaðar- og flugtengdrar starfsemi. Nefndin telur ekki að framkomnar athugasemdir gefi tilefni til breytinga á tillögunni umfram þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar á skipulagsgögnum. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagt deiliskipulag Einiholts 2 eftir auglýsingu. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS, í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
| 2. | Berghof 3 L218587 (upprunaland Bergsstaðir L189405); Lóð stækkar; Staðfest stærð lóðar – 2609047 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags.16.09.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Berghof 3 L218587 um 26200,9 m2. sem verður eftir stækkun 45487,9 m2. Stækkunin kemur úr Bergsstöðum L189405. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggð geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. | ||
| 3. | Aphólsvegur 3 L221649; Byggingarmagn aukið; Fyrirspurn – 2610079 | |
| Lögð er fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Aphóls í landi Apavatns 2 í Bláskógabyggð. Erindið varðar aukningu á heimiluðu byggingarmagni sumarhúss á viðkomandi lóð úr 150 m² í 170 m². Jafnframt er óskað eftir að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði hækkað úr 0,03 í 0,04. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að erindinu verði synjað þar sem fyrirhuguð aukning á byggingarmagni og hækkun nýtingarhlutfalls eru ekki í samræmi við ákvæði gildandi aðalskipulags Bláskógbyggðar 2015-2027. | ||
| 4. | Gröf lóð 15D L200056 á Laugarvatni; Byggingarmagn aukið; Málsmeðferð, kostnaður og tími; Samsvörun lóða; Fyrirspurn – 2610081 | |
| Lögð er fram fyrirspurn eiganda Grafar, lóðar 15D (L200056), í landi Grafar á Laugarvatni, sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi Setbergs frá árinu 2002 er lóð nr. 3, 4.950 m² að stærð. Fyrirspurnin varðar aukningu á heimiluðu byggingarmagni sumarhúss á lóðinni úr 100 m² í allt að 148,5 m², þannig að nýtingarhlutfall verði 0,03. | ||
| Skipulagsnefnd UTU tekur jákvætt í erindið og mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að heimilað verði að lóðarhafi vinni breytingu á skilmálum deiliskipulags Setbergs er varðar aukið byggingarmagn sumarhúss á lóðinni Grafar, lóð 15D L200056, úr 100 m² í allt að 148,5 m² og hækkun nýtingarhlutfalls í 0,03. Formleg tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði lögð fyrir nefndina til afgreiðslu. | ||
| 5. | Kolviðarholtsmýri 1 L223689; Aukin mænishæð; Deiliskipulagsbreyting – 2610086 | |
| Lögð er fram tillaga að breytingu á byggingarskilmálum deiliskipulags fyrir Kolviðarholtsmýri 1 (L223689) í Bláskógabyggð. Breytingin felst í því að bæta við sérákvæði fyrir lóð nr. 5330 um hámarks mænishæð byggingar. Samkvæmt tillögunni verður heimiluð mænishæð allt að 9 metrum frá gólfhæð á lóðinni, í stað almennra ákvæða deiliskipulagsins um 5,5 metra hámarksmænishæð. Jafnframt er gert ráð fyrir að einstakir byggingarhlutar geti náð allt að 10 metra hæð frá gólfhæð. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi Kolviðarholtsmýrar 1 sem óverulega breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt liggur fyrir að aðeins er fyrirhuguð uppbygging á einni lóð og að unnið verður að heildarendurskoðun skipulags svæðisins á árinu 2027. |
||
| 6. | Brú L167070; Fella út námu E81; Aðalskipulagsbreyting – 2611003 | |
| Lögð er fram umsókn Brúbests ehf. um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna lands Brúar. Óskað er eftir að námu E81 verði felld út úr aðalskipulaginu og að landnotkun svæðisins verði skilgreind sem landbúnaðarsvæði, í samræmi við núverandi notkun landsins. Í umsókninni kemur fram að ekki hafi verið hafin efnistaka á svæðinu og ekki sé fyrirhugað að hefja hana. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent HMS til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt. | ||
| Flóahreppur – Almenn mál | ||
| 7. | Mjósyndi (L166367); byggingarheimild; sumarhús – 2610083 | |
| Móttekin var umsókn þann 29.10.2026 um byggingarheimild fyrir 119,4 m2 sumarhúsi á jörðinni Mjósyndi (L166367) í Flóahreppi. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. | ||
| 8. | Stóra-Ármót L166274; Borholur; Framkvæmdaleyfi – 2610058 | |
| Lögð er fram umsókn Selfossveitna, dags. 11. september 2026, um framkvæmdaleyfi vegna borunar tveggja rannsóknarborhola í landi Stóra-Ármóts (L166274) í Flóahreppi. Markmið framkvæmdarinnar er að afla upplýsinga um jarðfræði, grunnvatn og möguleika á nýtingu heits vatns á svæðunum. Gert er ráð fyrir að borholurnar verði 300-500 metra djúpar og að útbúin verði tímabundin borplön, um 400 m² að stærð, ásamt nauðsynlegri aðstöðu fyrir borbúnað og stoðbúnað. Staðsetning borholanna er sýnd í framkvæmdaleyfisumsókninni. Samkvæmt umsókninni hefur verið haft samráð við ábúendur jarðanna og samþykki þeirra fengist fyrir fyrirhuguðum borstöðum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna borunar tveggja rannsóknarborhola á landi Stóra-Ármóts L166274 verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 9. | Súluholt L216736; Súluholt – spennistöð; Stofnun lóðar – 2610068 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 24.02.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Súluholt – spennistöð, stærð 20 m2. úr landi Súluholts L216736. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. | ||
| 10. | Hallandi land L196163; Borholur; Framkvæmdarleyfi – 2610074 | |
| Lögð er fram umsókn Selfossveitna um framkvæmdaleyfi vegna borunar rannsóknarholu í landi Hallanda (L196163) í Flóahreppi. Markmið framkvæmdarinnar er að kanna möguleika á að finna heitt vatn á svæðinu. Framkvæmdin felur jafnframt í sér gerð tímabundins borplans sem verður um 400 m² að stærð, ásamt nauðsynlegri aðstöðu fyrir borbúnað og stoðbúnað. Staðsetning borholanna er sýnd í framkvæmdaleyfisumsókninni. Samkvæmt umsókninni hefur verið haft samráð við ábúendur jarðanna og samþykki þeirra fengist fyrir fyrirhuguðum borstöðum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna borunar rannsóknarholu í landi Hallanda L196163 verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 11. | Langsstaðir L166251; Langsstaðir 1B; Stofnun lóðar. Langsstaðir lóð L193096, hnitsetning og staðfangabreyting. – 2610077 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 26.10.2026 um stofnun lóðar samkvæmt reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Óskað er eftir að stofna lóðina Langsstaði 1B, 3.820 m² að stærð, úr landi Langsstaða L166251. Jafnframt er óskað eftir hnitsetningu og staðfangabreytingu fyrir Langsstaði lóð L193096, þannig að staðfang hennar verði Langsstaðir 1C. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. | ||
| 12. | Súluholtshjáleiga L166391; Efnistaka E13 og E24; Aðalskipulagsbreyting – 2609013 | |
| Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að efnistökusvæðin E13 og E24 í landi Súluholtshjáleigu L166391 verða stækkuð og heimiluð meiri efnistaka. Umsagnir bárust við kynningu skipulagslýsingar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum. |
||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál | ||
| 13. | Ásgarður; Breytt landnotkun; Aðalskipulagsbreyting – 2607013 | |
| Lögð er fram umsögn HMS, dags. 27. október 2026, vegna breytingar á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna landbúnaðarsvæðis í landi Ásgarðs II. Í bréfi HMS kemur fram að stofnunin geti ekki fallist á að breytingin teljist óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bendir HMS meðal annars á að fyrirhuguð uppbygging 6-8 smáhýsa til útleigu geti haft bein áhrif á hagsmuni frístundalóðarhafa á svæðinu, meðal annars vegna aukinnar umferðar, auk þess sem ekki liggi fyrir að öllum hagsmunaaðilum hafi verið kynnt áformin. Með vísan til framangreinds telur HMS að fara þurfi með breytinguna sem verulega breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga. Jafnframt bendir HMS á að auglýsa þurfi deiliskipulagsbreytinguna að nýju, annaðhvort samhliða breytingu á aðalskipulagi eða í kjölfarið. |
||
| Skipulagsnefnd UTU tekur umsögn HMS dags. 27.10.2026 til umfjöllunar. Nefndin er ósammála þeirri niðurstöðu HMS að breytingin geti ekki talist óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati skipulagsnefndar UTU felur breytingin einungis í sér óverulega breytingu á mörkum landnotkunarreita þar sem landbúnaðarsvæði stækkar um 1,9 ha á kostnað frístundasvæðis. Breytingin felur ekki í sér breytingu á meginmarkmiðum gildandi aðalskipulags né verulega breytingu á landnotkun svæðisins. Nefndin telur að þau atriði sem HMS vísar til varðandi fyrirhugaða uppbyggingu, umferð og möguleg áhrif á hagsmuni nágranna séu fyrst og fremst atriði sem koma til skoðunar við meðferð deiliskipulags. Umfjöllun um deiliskipulag breytir því ekki mati nefndarinnar á þeirri aðalskipulagsbreytingu sem hér er til umfjöllunar. Með vísan til framangreinds mælist skipulagsnefnd UTU til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að standa við fyrri afgreiðslu málsins og telur breytinguna falla undir ákvæði 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga um óverulega breytingu á aðalskipulagi. | ||
| 14. | Ásgarður; Landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2403091 | |
| Lögð er fram uppfærð tillaga, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 vegna skilgreiningar verslunar- og þjónustusvæðis í landi Ásgarðs. Tilefni breytingarinnar eru áform landeiganda um uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu, annars vegar hótels með veitingastað og hins vegar gistihúsa til útleigu. Í kjölfar auglýsingar hafa verið gerðar breytingar á tillögunni þar sem fyrirhugað byggingarmagn hefur verið minnkað úr 6.003 m² í 4.610 m² og heimiluðum fjölda gistirýma fækkað úr 150 í 120. Jafnframt hefur aðkomu að skipulagssvæðinu verið breytt þannig að gert er ráð fyrir að hún verði um Herjólfsstíg. Athugasemdir og umsagnir sem bárust á auglýsingatíma eru lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við HMS að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 15. | Sólheimar 168279 L; Kaldavatnslögn á milli Stærri-Bæs og Sólheima; Framkvæmdarleyfi – 2610063 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á kaldavatnslögn frá Stærri-Bæ að Sólheimum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdin felur í sér lagningu nýrrar vatnsveitulagnar á um 2,2 km leið milli bæanna. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna endurnýjunar kaldavatnslagnar frá Stærri-Bæ að Sólheimum verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 16. | Neðan-Sogsvegar 42 L235957; Útleiga frístundahúsa; Fyrirspurn – 2610072 | |
| Lögð er fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Norðurkots í Grímsnes- og Grafningshreppi, sem tekur til lóða nr. 42 og 42A við Neðan-Sogsveg. Erindið varðar heimildir til útleigu frístundahúsanna á lóðunum. Í tengslum við breytinguna er gert ráð fyrir að hámarksfjöldi gesta verði fjórir í hvoru húsi og að bílafjöldi verði takmarkaður við einn bíl á hvert hús. Með erindinu fylgir yfirlýsing eigenda aðliggjandi lóða nr. 41, 41A, 45 og 45A þar sem fram kemur að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhugaða breytingu og þau skilyrði sem henni fylgja. | ||
| Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt ákvæðum Aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps er heimild til gististarfsemi í frístundabyggð háð því skilyrði að enginn lóðarhafi innan viðkomandi deiliskipulagssvæðis leggist gegn starfseminni. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes og Grafningshrepps að synja erindinu. |
||
| 17. | Bústjórabraut 1 L225380; Uppskipting lóða; Sumarbústaðarland í íbúðarlóð; Fyrirspurn – 2610080 | |
| Lögð er fram fyrirspurn vegna lóða við Bústjórabraut 1 og 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fyrirspurnin varðar möguleika á að skipta hvorri lóð upp í tvær lóðir, þannig að úr verði fjórar lóðir í stað tveggja. Jafnframt er óskað eftir afstöðu til þess hvort heimilt sé að byggja einbýlishús á lóðunum í stað sumarhúsa, eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að fyrirspurninni verði synjað í framlagðri mynd. Nefndin bendir á að samkvæmt aðalskipulagi skuli frístundalóðir að jafnaði vera á stærðarbilinu 0,5-1 ha. | ||
| 18. | Heiðarbær við Þingvallavatn; Frístundabyggð; Kæra til ÚUA nr. 2602004 – 2602025 | |
| Lögð fram niðurstaða úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem felldar eru úr gildi ákvarðanir sveitarstjórnar Bláskógabyggðar frá 21. apríl 2026 og sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps frá 22. apríl 2026 um samþykkt deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Heiðarbæjar við Þingvallavatn. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórnir Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps að taka úrskurðinn til kynningar og fela skipulagsfulltrúa að annast birtingu tilkynningar í B-deild Stjórnartíðinda vegna niðurstöðu málsins. | ||
| 19. | Grímsnesafréttur L224194; Skjaldborg hesthús, fjallaskáli og Kerling; Eyða lóðum L170152, 179591 og 168225; Stofnun lóða – 2610033 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 02.10.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna þrjár lóðir, Skjaldborg hesthús stærð 2393,1 m2., Skjaldborg fjallaskáli stærð 900,0 m2. og Skjaldborg Kerling stærð 1649,6 m2. úr Grímsnesafrétti (þjóðlenda) L224194. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. | ||
| Hrunamannahreppur – Almenn mál | ||
| 20. | Sandskarð L225806; Fjölgun íbúða; Aðalskipulagsbreyting – 2610047 | |
| Lögð er fram tillaga að breytingu á skilmálum aðalskipulags Hrunamannahrepps 2016-2032 fyrir íbúðarbyggð ÍB10 í Sandskarði á Flúðum. Breytingin felur í sér að heimila allt að 30 íbúðir á þremur lóðum fyrir fjölbýlishús, í stað allt að 14 íbúða á átta lóðum fyrir einbýlis- og/eða parhús samkvæmt gildandi skilmálum. Jafnframt er gert ráð fyrir að fjölbýlishús verði allt að tvær hæðir og að grunnflötur þeirra geti verið allt að 1.200 m² á hverri lóð. Afmörkun íbúðarsvæðisins og landnotkun þess haldast óbreyttar. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi. | ||
| 21. | Hrafnkelsstaðir 2 L216611; Hrafnkelsstaðir 2 – spennistöð; Stofnun lóðar – 2610067 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 24.02.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Hrafnkelsstaðir 2 – spennistöð, stærð 20 m2 úr landi Hrafnkelsstaða 2 L216611. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. | ||
| 22. | Syðra-Langholt 7 L237609; Gestahús í heilsárshús; Fyrirspurn – 2611002 | |
| Lögð er fram fyrirspurn eiganda Syðra-Langholts 7 í Hrunamannahreppi um hvort heimilt sé að breyta skráningu núverandi gestahúss á eigninni í íbúðarhúsnæði. Fram kemur að húsið sé fullbúið og í góðu ástandi og óskað er eftir upplýsingum um hvort slík breyting sé heimil. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að taka ekki afstöðu til málsina þar sem ekki liggja fyrir nægjanleg gögn sem sýna fram á að núverandi mannvirki uppfylli kröfur byggingarreglugerðar fyrir íbúðarhúsnæði, einkum hvað varðar lofthæð, varmaeinangrun og burðarvirki. Óskað er eftir gögnum þar að lútandi áður en erindið verður tekið til afgreiðslu. | ||
| 23. | Syðra-Langholt L172619; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Aðalskipulagsbreyting – 2505033 | |
| Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 vegna stækkunar grjótnámu E31 í landi Syðra-Langholts, eftir auglýsingu. Í breytingunni felst að heimilað efnistökumagn verði aukið úr 45.000 m³ í 138.000 m³. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahreppar að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við HMS að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
| 24. | Syðra-Langholt L172619; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Deiliskipulag – 2611006 | |
| Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi grjótnámu E31 á Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi. Í breytingunni felst stækkun efnistökusvæðisins úr 0,9 ha í 1,3 ha og aukning á heimiluðu efnistökumagni úr 45.000 m³ í 138.000 m³. Jafnframt er skipulagssvæðið stækkað úr 2,5 ha í 3,2 ha og greinargerð deiliskipulagsins endurskoðuð. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. | ||
| 25. | Högnastígur 2 L166927; Staðfest afmörkun lóðar – 2605067 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 28.01.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Högnastíg 2 L166927 um 658,2 m2. og verður eftir stækkun 1408,2 m2 að stærð. Stækkunin kemur úr Högnastíg 1 L166778. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Hrunamannahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. |
||
| Fundargerðir til staðfestingar |
||
| 26. | Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 28.10.2026 – 26-269 – 2610005F | |
| Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-269, dags. 28.10.2026 | ||
| 27. | Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 04.11.2026 – 26-270 – 2610006F | |
| Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-270, dags. 04.11.2026 | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
| Helgi Kjartansson | Jón Bjarnason | |
| Walter Fannar Kristjánsson | Haraldur Þór Jónsson | |
| Ísleifur Jónasson | Guðmundur Finnbogason |