Skipulagsnefndarfundur nr. 329. dags. 8. júlí 2026

 

Skipulagsnefnd – 329. fundur haldinn að Laugarvatni, miðvikudaginn 8. júlí 2026 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá:

 

       Ásahreppur
1.   Sigölduvirkjun L165348; Stækkun Sigöldustöðvar; Framkvæmdarleyfi – 2502032
Framkvæmdarleyfi fyrir Sigölduvirkjun L165348; Stækkun Sigöldustöðvar var gefið út 10. mars 2025 og auglýst í Lögbirtingablaðinu 21. maí 2025. Kæra barst Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna leyfisins. Fyrir liggur úrskurður nefndarinnar þar sem kærunni er vísað frá. Úrskurðurinn er lagður fram til kynningar.
Lagt fram erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem kæru vegna framkvæmdarleyfis fyrir Sigölduvirkjun L165348 er vísað frá. Nefndin tekur úrskurðinn til kynningar. Útgefið framkvæmdarleyfi stendur óbreytt og heldur gildi sínu samkvæmt ákvörðun sveitarfélagsins.
   Bláskógabyggð
2.   Böðmóðsstaðir 1 L167625; Endurheimt votlendis; Framkvæmdarleyfi – 2604049
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, umsókn um framkvæmdarleyfi sem tekur til Böðmóðsstaða 1 L167625 í Bláskógabyggð. Markmið með framkvæmdinni er að endurheimta fyrrum votlendi á landi Böðmóðsstaða. Það verður gert með því að hækka grunnvatnsstöðu og færa svæðið sem mest í upprunalegt ástand. Fyrirhugað endurheimtasvæði er 54 hektarar, lítill landhalli er á svæðinu, sem liggur niður að Hólaá. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að synja erindinu á grundvelli þeirra athugasemda sem bárust við grenndarkynningu.
3.   Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag – 2604039
Lögð er fram, eftir kynningu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlauptungu L229945 í Bláskógabyggð. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur vinna að uppbyggingu innviða á svæðinu. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
4.   Einiholt 1 (L167081); umsókn um byggingarheimild; reiðskemma – 2203005
Fyrir liggur umsókn Valdimars Grímssonar, móttekin 01.03.2022, um byggingarheimild fyrir 725 m² reiðskemmu á jörðinni Einiholt 1 (L167081) í Bláskógabyggð.
Byggingaráformin voru áður samþykkt en hafa fallið úr gildi þar sem framkvæmdir hófust ekki innan tilskilins frests. Umsækjandi óskar eftir að málið verði tekið upp að nýju og að byggingarheimild verði endurútgefin.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
5.   Holtakot lóð L167344; Byggingarreitur færður og tilfærsla á húsi; Deiliskipulagsbreyting – 2606027
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Holtakots lóð L167344 í Bláskógabyggð. Breytingin felst í því að byggingarreitur er teiknaður inn á lóð 3. Jafnframt eru settir skilmálar um byggingarheimildir.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
    Flóahreppur
6.   Skálmholtsland L219650; Klausenland C; Nýtt heiti lóðar – 2606075
Lögð er fram umsókn um breytt heiti vegna Skálmholtslands C, L219650. Óskað er eftir því að nýtt heiti verði Klausenland C.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að málinu verði synjað þar sem nýtt staðfang uppfyllir ekki skilyrði reglugerðar nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
7.   Langholt 1 L166247; 3 Landbúnaðarlóðir; Deiliskipulag – 2510083
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til Langholts 1 L166247 í Flóahreppi. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar eru þrjár nýjar lóðir sem teknar eru úr landi Langholts. Gert er ráð fyrir einum byggingarreit innan hverrar lóðar þar sem heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði, bílageymslu, gesthús, skemmu og gróðurhús. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Lögð er fram uppfærð tillaga að deiliskipulagi Langholts 1 ásamt endurskoðuðum skipulagsgögnum unnum til að bregðast við athugasemdum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 5. júní 2026.
Leiðréttur hefur verið formgalli og gerðar hafa verið breytingar á skipulagsgögnum vegna skörunar við aðliggjandi deiliskipulög. Jafnframt hefur verið brugðist við athugasemdum skipulagsstofnunar og gerð grein fyrir samræmi við aðalskipulag og stefnu um landbúnaðarland, fjarlægðir byggingarreita frá vegum sýndar með skýrum hætti og aðkoma að lóðum tryggð með viðeigandi kvöðum og/eða breytingum á skipulagsgögnum.
Skipulagsnefnd UTU fór yfir framkomnar athugasemdir HMS samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og telur að með framangreindum breytingum hafi verið brugðist við þeim með fullnægjandi hætti.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess að sveitarstjórn Flóahrepps samþykki deiliskipulagið skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að annast birtingu auglýsingar um gildistöku þess í B-deild Stjórnartíðinda.
    Grímsnes- og Grafningshreppur
8.   Torfastaðir 1 L170828; Færsla rannsóknarsvæðis fyrir efnistöku; Framkvæmdarleyfi – 2606081
Lögð er fram umsókn um framkvæmdarleyfi sem tekur til Torfastaða 1 L170828 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í framkvæmdinni felst að rannsóknarsvæðið fyrir efnistöku er fært til.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja umbeðna breytingu á framkvæmdarleyfi, dags. 30. júní 2025, sem veitt var á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í færslu rannsóknarsvæðis fyrir efnistöku innan Torfastaða 1 (L170828), en umfang framkvæmdarinnar verður óbreytt frá upphaflegu leyfi, þ.e. rannsókn á allt að 5.000 m³ af efni. Jafnframt skal gengið frá fyrra rannsóknarsvæði með þeim hætti að ummerki efnistöku verði ekki sýnileg. Núverandi aðalheimreið að Torfastöðum 1 skal nýtt fyrir umferð vegna efnisflutninga í samræmi við framkomnar athugasemdir Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd UTU telur um að ræða óverulega breytingu á áður útgefnu framkvæmdarleyfi sem hefur ekki áhrif á aðra skilmála leyfisins. Skipulagsnefnd UTU telur að tilfærsla rannsóknarsvæðis hafi ekki áhrif á umfang, eðli eða umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og telst því óveruleg breyting á áður útgefnu framkvæmdarleyfi.
9.   Syðri-Brú L168277; Úr frístundabyggð í athafnasvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2503029
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Syðri-Brú L168277 en í breytingunni felst skilgreining á athafnasvæði og vatnsbóli fyrir uppsetningu átöppunarverksmiðju fyrir neysluvatn. Einnig er frístundabyggð breytt í landbúnaðarsvæði í kringum athafnasvæðið. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.   Villingavatn L170831; Nytjaskógrækt og landgræðsla; Aðalskipulagsbreyting – 2505090
Lögð er fram umsögn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 28. maí 2026, vegna breytingar á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 fyrir svæði við Villingavatn, sem sveitarstjórn samþykkti 13. apríl 2026 og sent var til staðfestingar samkvæmt 32. gr. skipulagslaga.
Í erindi HMS eru gerðar athugasemdir við forsendur og umfjöllun um umhverfismat aðalskipulagsbreytingarinnar.
Lagt fram bréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 28. maí 2026, vegna breytingar á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020?2032 fyrir svæði við Villingavatn.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framkomnar athugasemdir HMS, þar sem m.a. er gerð krafa um frekari yfirferð á umhverfismati áætlunarinnar og skýrari rökstuðning sveitarstjórnar með hliðsjón af umsögnum fagstofnana og áliti HMS um umhverfismat framkvæmdar.
Lögð er fram greinargerð sem unnin hefur verið til að bregðast við framkomnum athugasemdum HMS. Í greinargerðinni er tekin afstaða til þeirra atriða sem fram koma í umsögnum fagstofnana og áliti HMS, fjallað um umfang og eðli umhverfisáhrifa, m.a. á fuglalíf og vistgerðir, og gerð grein fyrir forsendum þeirrar niðurstöðu sveitarstjórnar að fyrirhuguð landnotkun teljist ásættanleg að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna, mótvægisaðgerða og skilyrða sem kunna að verða sett á síðari stigum.
Skipulagsnefnd UTU áréttar að samkvæmt skipulagslögum ber sveitarstjórn ábyrgð á mótun stefnu um landnotkun í aðalskipulagi og að hún taki sjálfstæða og málefnalega afstöðu á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Nefndin telur að málsmeðferð við afgreiðslu aðalskipulagsbreytingarinnar hafi verið í samræmi við lög.
Skipulagsnefnd UTU leggur til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps staðfesti fyrri ákvörðun sína um aðalskipulagsbreytinguna með hliðsjón af fyrirliggjandi greinargerð og að áfram verði við leyfisveitingar fylgt ákvæðum laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, þar á meðal um að leggja álit HMS til grundvallar og kveða á um viðeigandi mótvægisaðgerðir og vöktun þar sem við á.
Málinu vísað til sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.
11.   Kiðjaberg L168257; Starfsmannahús; Deiliskipulagsbreyting – 2606033
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Kiðjabergs L168257 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Breytingin felst í orðalagsbreytingu. Smáhýsi sögð vera til útleigu verða starfsmannahús.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að synja erindinu þar sem það samræmist ekki stefnu Aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Bent er á að unnt sé að fara í deiliskipulagsbreytingu þar sem landnotkun verði breytt í verslun og þjónustu, þar sem mögulega sé hægt að gera ráð fyrir starfsmannahúsum.
12.   Lautarbrekka 7 L216993; Byggingarmagn breytt; Deiliskipulagsbreyting – 2606097
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu er varðar Lautarbrekku 7 L216993 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felur í sér að hámarksstærð frístundahúss hækkar úr 180 m² í 200 m² og að hámarksstærð aukahúsa/gestahúsa/geymslu hækkar úr 40 m² í 50 m².
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
13.   Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta námusvæðis Klausturhólar (E17) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Efnistökusvæðið er um 15 ha að stærð, þar er heimiluð malarnáma fyrir allt að 150.000 m3 ásamt efnislosun. Fyrirhugað er að skipta efnistökusvæðinu í tvennt. Deiliskipulagið tekur til nýtingar svæðisins og frágangs þess til næstu 15 ára en áætlað er að loka svæðinu 2040. Áætlað er að vinna allt að 150.000 m3 af efni úr námunni, samhliða vinnslunni verður unnið að landmótun og frágangi svæðisins. Gerð verður minniháttar breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 verður skipt upp í tvennt og verður nýtt svæði skilgreint fyrir norðurhlutann, eða þess hluta svæðis sem nú er innan E17 og innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi (L168258). Innan þess svæðis verður heimiluð efnistaka fyrir allt að 50.000 m3 og verður fyrir utan fyrirhugaða afmörkun á deiliskipulagssvæði. Skilmálar E17 verða því lítt breyttir, umfram það að svæðinu verður skipt upp. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
14.   Írafossvirkjun; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Írafossvirkjunar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
15.   Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting – 2511039
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gerð nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Tjaldfell norðaustan Skjaldbreiðar L175568. Fyrirhugað er að fjölga lóðum, heimila stærri mannvirki og fleiri gesti í gistingu. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Vert er að taka það fram að ekki er um að ræða orlofsþorp eða hótel sbr. lið 12.04 í lögum nr. 111/2021. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.   Tjaldafell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2604012
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Tjaldafells skálasvæðis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðum er fjölgað og settir skilmálar fyrir hverja lóð, s.s. byggingarheimildir, nýtingarhlutfall lóða og fjöldi gesta. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi fráveitu. Lóðir eru á stærðarbilinu 5000 – 7500 m2. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir austan Tjaldafells, með heimild fyrir fleiri gestum í gistingu. Stærð skipulagssvæðis er um 15 ha. Samhliða er unnið að breytingu á aðalskipulagi og er deiliskipulagið í samræmi við það. Við gildistöku nýs deiliskipulags fellur eldra deiliskipulag úr gildi. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Vert er að taka það fram að ekki er um að ræða orlofsþorp eða hótel sbr. lið 12.04 í lögum nr. 111/2021. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17.   Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut og Þingvallavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim umsögnum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.   Ásgarður; Breytt landnotkun; Aðalskipulagsbreyting – 2607013
Lögð er fram tillaga óverulegrar aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felur í sér að skilgreining lands Ásgarðs II er leiðrétt. Í því felst að landbúnaðarsvæði L2 er stækkað og frístundabyggð F25 er minnkuð sem því nemur. Um er að ræða 1,9 ha svæði.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar.
19.   Grímkelsstaðir 25 (L170840); byggingarheimild; sumarhús – 2607017
Móttekin var umsókn þann 02.07.2026 um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á tveimur hæðum, grunnflötur hverrar hæðar er 77.3 m2 samtals 144,4 m2 á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 25 (L170840) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Nefndin mælist til þess að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið í heild sinni.
20.   Grímkelsstaðir 27 (L170865); byggingarheimild; sumarhús – 2607022
Móttekin var umsókn þann 07.07.2026 um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á tveimur hæðum, grunnflötur hverrar hæðar er 77.3 m2, samtals 144,4 m2 á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 27 (L170865) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Nefndin mælist til þess að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið í heild sinni.
    Hrunamannahreppur
21.   Birtingaholt 3 L166727; Birtingaholt 3 Bragginn; Breytt og staðfest staðföng lóða og stofnun lóðar – 2606013
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 28.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun nýrrar lóðar. Merkjalýsing þessi er í nokkrum liðum.

Óskað er eftir að Birtingaholt 3 L174000 fái staðfangið Birtingaholt 3 Óðal, einnig er óskað eftir afmörkun lóðarinnar.
Óskað er eftir að Birtingaholt 3 lóð L166868 fái staðfangið Birtingaholt 3 lóð Litla Ásgerði, einnig er óskað eftir afmörkun lóðarinnar.
Óskað er eftir að stofna lóðina Birtingaholt 3 Móinn, stærð 13137,8 m2, úr jörðinni Birtingaholt 3 L166727.
Óskað er eftir að stofna lóðina Birtingaholt 3 Bragginn, stærð 10.561,4 m2, úr Birtingaholti 3 L166727 og úr Birtingaholti 1 L166725.
Óskað er eftir staðfestingu landamerkja milli Birtingaholts 3 L166727 og Birtingaholts 1 L166725.
Óskað er eftir breytingu á eignarhaldi (makaskipti) hjá landeigendum Birtingaholts 1 L166725 annars vegar og Birtingaholts 3 L166727 hins vegar.

Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við; breytingu á staðföngum, afmörkun lóða, stofnun lóðarinnar, staðfestingu á landamerkjum og breytingu á eignarhaldi (makaskiptum) skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd UTU mælist til að sveitarstjórn Hrunamannahrepps geri ekki athugasemdir við erindið.
22.   Syðra-Langholt L172619; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Aðalskipulagsbreyting – 2505033
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 og deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun á grjótnámu á Syðra-Langholti (efnistökusvæði E31) úr 0,9 ha í 1,3 ha þar sem leyfileg efnistaka verður 138.000 m3 í stað 45.000 m3. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og samgöngumati.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Syðra-Langholts L172619 verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
23.   Silfurtún L166897; Skilgreining svæðis; Deiliskipulagsbreyting – 2607012
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Silfurtúns L166897 í Hrunamannahrepp. Í breytingunni felst að byggð verði lágreist íbúðarbyggð á landi Silfurtúns þar sem nú er garðyrkjustöð en sú starfsemi er víkjandi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja deiliskipulagstillöguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Skeiða- og Gnúpverjahreppur
24.   Skeiðháholt 2 L166496; Skeiðháholt 2B L166497; Völlur, Taglateigur 1, Taglateigur 2, Taglateigur 5, Taglavegur, Háholtshjáleiga. Stofnun lóða – 2605012
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 04.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024. Stofna á 6 landeignir úr jörðinni Skeiðháholti 2 (L166496) og eina landeign úr Skeiðháholti 2B (L166497). Ein af nýjum landeignum sameinast síðar annarri landeign.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps geri ekki athugasemdir við erindið.
25.   Ósabakki 2 L166487; Rofastöð; Stofnun lóðar – 2606079
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.05.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð fyrir spennistöð Rarik, rofastöð, stærð 20 m2, úr jörðinni Ósabakka 2 L166487.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
26.   Skógarlundur L236998; Uppbygging ferðaþjónustu; Deiliskipulag – 2512005
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Skógarlundar L236998 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í deiliskipulaginu felst að landið verði skilgreint fyrir gistiþjónustu í smáhýsum ásamt þjónustubyggingum. Heimild er fyrir 70 gistihúsum og 192 gistirýmum, ásamt þjónustuhúsum fyrir starfsemina. Hámarksbyggingarmagn er 3,000 m2 fyrir svæðið. Deiliskipulag þetta er unnið samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
27.   Landgræðslusvæði í Þjórsárdal L223323; Heimtaug; Fyrirspurn – 2606076
Lögð er fram fyrirspurn vegna heimtaugar fyrir Hótel og fjallaböð á viðskipta- og þjónustulóðinni Rauðukambar L234185 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Núverandi kerfi Rarik á svæðinu ber ekki þá orku sem þarf til þess að reka hótelið og þarf þess vegna að plægja nýjan streng frá þjónustumiðstöð að hótelinu. Við sjáum tvær mögulegar leiðir, annars vegar að fylgja núverandi streng (um 1.5 m frá honum), sem mun vera áfram í rekstri sem varatenging. Hins vegar væri hægt að fara meðfram vegi alla leið. Við óskum því eftir afstöðu sveitarfélagsins til þessarar framkvæmdar, en landeigandi hefur sett það sem kröfu fyrir samþykki. Í framhaldinu verður óskað eftir framkvæmdarleyfi Náttúrverndarstofnunar. Meðfylgjandi er afstöðumynd sem sýnir þá möguleika sem við erum að skoða.
Skipulagsnefnd UTU vísar erindinu til sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
28.   Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2511005
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
29.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 24.06.2026 – 26-255 – 2606005F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-255, dags. 24.06.2026
30.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 01.07.2026 – 26-256 – 2606006F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-256, dags. 01.07.2026

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30