Skipulagsnefndarfundur nr. 324. haldinn 29. apríl 2026

 

Skipulagsnefnd – 324. fundur haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 29. apríl 2026 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Björn Kristinn Pálmarsson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá:

 

    Ásahreppur
1.   Sjónarhóll L198871; Byggingarreitur stækkaður og skýring; Deiliskipulagsbreyting – 2604061
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sjónarhóls L198871 í Ásahrepp. Breytingin hér felst í því að byggingarreitur – B1 stækkar og heimildir innan hans skýrðar.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bláskógabyggð
2.   Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag – 2604039
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlauptungu L229945 í Bláskógabyggð. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur hafa lagt á bílastæðagjald og hyggjast nota ágóða þess til uppbyggingar á svæðinu, svo sem að leggja bundið slitlag á bílastæði, koma upp salernisaðstöðu og auka upplýsingagjöf, m.a. um hættur á svæðinu.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3.   Böðmóðsstaðir 1 L167625; Endurheimt votlendis; Framkvæmdarleyfi – 2604049
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Böðmóðsstaða 1 L167625 í Bláskógabyggð. Markmið með framkvæmdinni er að endurheimta fyrrum votlendi á landi Böðmóðsstaða. Það verður gert með því að hækka grunnvatnsstöðu og færa svæðið sem mest í upprunalegt ástand. Fyrirhugað endurheimtasvæði er 54 hektarar, lítill landhalli er á svæðinu, sem liggur niður að Hólaá.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.
4.   Árbraut 6 L196114; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting – 2604054
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting sem tekur til Árbrautar 6 L196114 í Bláskógabyggð. Lóðin stækkar úr 5.666fm í 8.067fm á kostnað lands Efri-Reykja.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
5.   Stakksárhlíð 2 L217505; Skipting lóðar; Fyrirspurn – 2604066
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til Stakksárhlíðar 2 L217505 í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að skipta lóðinni sem mælist 12.113 fm að stærð í tvær lóðir. Stakkárhlíð 2, 5.500 fm og Stakkárhlíð 2a, 6.613 fm
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að beiðni um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til heimildar fyrir uppskiptingar lóðar verði hafnað. Að mati nefndarinnar er ein af forsendum deiliskipulagsáætlunar svæðisins fjöldi lóða innan þess m.t.t. innviða. Heimild fyrir uppskiptingu einnar lóðar veiti fordæmi fyrir öðrum lóðarhöfum innan svæðisins til að skipta sambærilegum lóðum upp í tvær lóðir með tilheyrandi fjölgun húsa innan svæðisins. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að mörkuð verði stefna um uppskiptingu lóða innan frístundasvæða.
6.   Snorrastaðir L168101 (frístundabyggð F25); Skilgreining lóðarmarka; Fyrirspurn – 2604069
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Snorrastaði L168101 í Bláskógabyggð. Óskað er eftir heimild til að leggja fram breytingu deiliskipulags sumarhúsahverfis í Snorrastaðalandi vestan Stekkár frá árinu 1987. Samhliða er óskað eftir að leggja fram minni háttar breytingu á breytingu sem unnin var 2021, Stóruskógarbraut – frístundabyggð þar sem lóðamörk og afmörkun skipulagsmarka verða samræmd.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að hafna erindinu þar sem að það er ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags.
Flóahreppur
7.   Merkurlaut 1 L193162; Axarhólsbraut 3; Deiliskipulag – 2507020
Lögð er fram tillaga deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til Merkurlautar 1 L193162 í Flóahreppi. Í deiliskipulaginu felst afmörkun þriggja nýrra frístundalóða úr Merkurlaut 1 þ.e. Axarhólsbraut 2, 3 og 5. Byggingarreitir eru skilgreindir innan lóðanna þar sem heimilt verður að byggja frístundahús með bílskúr, gestahús og geymslu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.   Gegnishólapartur L165482; Skilgreining landbúnaðarlands; Deiliskipulag – 2604035
Lögð er fram fyrirspurn er varðar jörðina Gegnishólapartur, L165482 í Flóahreppi. Óskað er eftir heimild til gerðar deiliskipulags á hluta úr jörðinni Gegnishólaparti, L165482. Deiliskipulag verður í fullu samræmi við ákvæði aðalskipulags og fullt tillit tekið til flokkunar landbúnaðarlands. Stærð svæðis er um 50ha og lóðir áætlaðar um 3-10ha að stærð. Heimilt verði að byggja íbúðarhús, bílskúr auk útihúsa fyrir skepnuhald og fóður- og eða vélageymslu.
Skipulagsnefnd UTU vísar erindinu til sveitarstjórnar Flóahrepps.
Grímsnes- og Grafningshreppur
9.   Vaðnes L168289; Vaðnesnáma og aðkomuvegur; Framkvæmdarleyfi – 2603079
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi á Vaðnesnámu og aðkomuveginum að Vaðnesnámu.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
10.   Írafossvirkjun; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.   Stangarlækur 3 L236421; Aukið byggingarmagn og bílskúr; Deiliskipulagsbreyting – 2604053
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting sem tekur til Stangarlæks 3 L236421 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Skilmálar vegna byggingarheimilda á byggingareit fyrir íbúðarhús Stangarlæks 3 breytast.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
12.   Nesjavallavirkjun L170925; Vinnslu-hola; Framkvæmdarleyfi – 2604062
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavallavirkjunar L170925 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Fyrirhugað er að útbúa borplan á skilgreindu borsvæði á svæði A skv. deiliskipulagi Nesjavalla-virkjunar, sem er ætlað fyrir viðbótarniðurrennslisholur. Á borplaninu verður boruð allt að 2.500 m djúp, stefnuboruð vinnsluhola. Um er að ræða borholu sem ætlað er að koma inn í kerfið með núverandi borholum í rekstri til að halda afköstum Nesjavallavirkjunar stöðugum. Aðkoma að fyrirhuguðu borplani er frá Grafningsvegi, um aðkomuveg að Nesjavallavirkjun og áfram um vegslóða sem liggur að borsvæðinu þar sem holan verður staðsett. Borun vinnslu-holunnar kallar ekki á frekari vegagerð.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
13.   Hæðarendi L168254; Mótun baðlóns; Framkvæmdarleyfi – 2604065
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hæðarenda L168254 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Óskað er eftir framkvæmdarleyfi á grunni deiliskipulags fyrir gróf mótun baðlóns, lagningu aðkomuvegar, lagnavinnu og mótun bílastæðis á svæðinu. Það skipulag sem um ræðir er Deiliskipulag Baðstaðar í landi Hæðarenda.
Björn Kristinn Pálmarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.   Villingavatn III (L224665); byggingarheimild; vinnubúðir – 2604048
Móttekin var umsókn þann 16.04.2026 um byggingarheimild fyrir 184,7 m2 tímabundnum vinnubúðum vegna vinnu við skógrækt á landinu Villingavatn III (L224665) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Hrunamannahreppur
15.   Hverabakki 2 L166774; Skilgreining byggingarreita; Deiliskipulag – 2511002
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til Hverabakka 2 L166774 í Hrunamannahreppi. Í skipulaginu felst að skilgreindir eru byggingarreitir fyrir núverandi gróðurhús og nýir byggingarreitir fyrir fyrirhugaða stækkun á gróðurhúsum. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim. Einnig bárust athugasemdir frá Skipulagsstofnun sem eru lagðar fram við afgreiðslu.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.   Birkihlíð 6 L232270; Úr einbýli í tvíbýli; Deiliskipulagsbreyting – 2604063
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting sem tekur til Birkihlíðar 6 L232270 í Hrunamannahrepp. Núgildandi skilmálar g.r.f. einbýli á tveimur hæðum en verður breytt í tvíbýli á tveimur hæðum. Nýtingarhlutfall helst óbreytt.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
17.   Grafarbakki 1C (L240688); byggingarleyfi; einbýlishús – 2604051
Móttekin var umsókn þann 03.03.2026 um byggingarheimild fyrir 84 m2 einbýlishúsi á íbúðarhúsalóðinni Grafarbakki 1C (L240688) í Hrunamannahreppi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
18.   Klettar (L166589); byggingarheimild; starfsmannahús og geymsla – breyta innra skipulagi og útliti – 2503091
Erindi sett að nýju fyrir fund. Móttekin var breytt umsókn og teikning þann 14.04.2026. Í afþreyingarherbergi 95 m2 á mhl 05 starfsmannahúsi og geymslu verða gufur og saunur ásamt skiptiklefum ætlað til notkunar fyrir gesti sem eru í gistingu.
Að mati skipulagsnefndar UTU er breytt notkun á afþreyingarherbergi háð breyttri landnotkun svæðisins úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði. Mælist nefndin til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að umsókn um byggingarleyfi verði synjað í framlagðri mynd.
19.   Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2512021
Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

20.   Húsatóftir 2A L191340; Skilmálabreyting VÞ5; Aðalskipulagsbreyting – 2604037
Lögð er fram tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu á skilmálum fyrir verslunar og þjónustusvæði VÞ5 í gildandi Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni er verið að fjölga gistiplássum og fjölda gesta innan verslunar- og þjónustusvæðis VÞ5 fyrir Húsatóftir IIa ásamt því að breyta staðfangi í Húsatóftir 5. Engin breyting er á aðkomu eða afmörkun svæðis. Engin viðbótaruppbygging er fyrirhuguð heldur en einungis verið að innrétta núverandi byggingar og nýta þær betur. Gistirýmum fjölgar úr 10 í 18, og gestafjöldi hækkar úr 20 í 36.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.
21.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 22.04.2026 – 26-249 – 2604001F
Lögð er fram afgreiðsla byggingarfulltrúa, nr. 26-249, dags. 22.04.2026.

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30