Skipulagsnefndarfundur nr. 321. dags. 11. mars 2026

 

Skipulagsnefnd – 321. fundur haldinn að Laugarvatni, miðvikudaginn 11. mars 2026 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Björn Kristinn Pálmarsson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá:

 

   Bláskógabyggð
1.   Háabrekka (L240982); byggingarleyfi; einbýlishús – 2602086
Móttekin var umsókn þann 27.02.2026 um byggingarleyfi fyrir 256,6 m2 einbýlishúsi á landinu Háabrekka (L240982) í Bláskógabyggð.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis þar sem segir að sveitarstjórn sé heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
2.   Laugarás Lagoon; Vatnstökubrunnar; Framkvæmdarleyfi – 2603037
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Laugarás Lagoon í Bláskógabyggð. Sótt er um leyfi til að setja niður tvo vatnstökubrunna á eyrinni fyrir neðan Laugarás Lagoon. Vatninu verður síðan dælt inn í tæknirými lónsins þar sem það blandast heita vatninu frá Bláskógaveitu. Blandaða vatnið er síðan nýtt til að fylla baðlónið. Magn vatnstöku er að hámarki 15 l/s.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3.   Skálabrekka L170163; Aðkomuvegur, vatnsból; Gisting í Fl. I og II; Deiliskipulagsbreyting – 2602022
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundabyggðarinnar Selgils í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýjum aðkomuvegi og vatnstökusvæði. Jafnframt verður heimiluð gisting í flokki I og II innan frístundabyggðarinnar. Með þessum breytingum stækkar deiliskipulagssvæðið úr 25 ha í 30 ha, eða um 5 ha.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um uppfærð gögn. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Flóahreppur
4.   Hvítárbyggð; Skilgreining frístundasvæðis; Deiliskipulag – 2602002
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur til Hvítárbyggðar og Fálkabyggðar, L238531, í Flóahreppi. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við Aðalskipulag Flóahrepps 2017-2029, með síðari breytingum, þar sem svæðið er skilgreint sem frístundabyggð (F22). Í tillögunni er kveðið á um skipulag og uppbyggingu frístundabyggðar á um 36 ha svæði, þar sem gert er ráð fyrir 29 frístundalóðum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að deiliskipulagið verði hafnað þar sem að það samræmist ekki aðalskipulagi.
Grímsnes- og Grafningshreppur
5.   Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut og Þingvallavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna hjólastígs við Biskupstungnabraut og Þingvallaveg verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
6.   Írafossstöð; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2603014
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Írarfossstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að bætt er við byggingarreit fyrir geymslu. Í húsinu verður rými til geymslu á búnaði og eins verður þar aðstaða til flokkunar og geymslu á úrgangi, en í dag er þetta allt utandyra. Skipulagssvæði breytingar er um 1300 m².
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
7.   Ásgarður; Landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2403091
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 er varðar skilgreiningu á verslunar- og þjónustusvæði í landi Ásgarðs L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229. Tilefni breytingarinnar eru áform landeiganda um uppbyggingu ferðaþjónustu á staðnum. Annars vegar er um að ræða hótel með veitingastað og hins vegar frístundahús til útleigu. Deiliskipulagsbreyting er lögð fram samhliða aðalskipulagsbreytingu þessari. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Ásgarðs L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229 landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu, verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
8.   Ásgarður; Herjólfsstígur 2-12 og Óðinsstígur 1; Verslunar- og þjónustusvæði; Nýtt deiliskipulag og óveruleg breyting á DSK frístundsvæðis – 2403093
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til uppbyggingar á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi í landi Ásgarðs, L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229, auk óverulegrar breytingar á núverandi deiliskipulagi frístundabyggðar í Ásgarði. Breytingin er í samræmi við aðalskipulagsbreytingu sem lögð er fram samhliða deiliskipulagsbreytingu þessari og nær til lóða 2-12 við Herjólfsstíg, lóðar Óðinsstígs 1 og þjónustulóðar við Búrfellsveg. Í breytingunni felst að skilmálar fyrir lóðir Herjólfsstíg 2-8 breytast að því leyti að þar er gert ráð fyrir frístundahúsum til útleigu. Herjólfsstígur 10 – 12, lóð við Óðinsstíg 1 og þjónustulóð við Búrfellsveg sameinast í verslunar- og þjónustulóð þar sem leyfilegt verður að reisa hótel/gistiheimili ásamt veitingastað og tilheyrandi þjónustumannvirkjum. Vegna umsagnar Minjaverndar þá er fornleifaskráningu lokið og skýrsla liggur fyrir og verið send Minjavernd. Þá hefur verið brugðist við eftirfarandi athugasemdum: Fært inn eina fornleif sem fannst og skilgreint verndarsvæði Vegna athugasemda Vegagerðar er horfið frá aðkomu frá Búrfellsvegi og hún færð til austurs að Óðinsstíg Vegna athugasemda Heilbrigðiseftirlits er fjallað ýtarlegar um fráveitu og hreinsivirki, ásamt ákvæði um hljóðvist. Vegna athugasemda um vatnsveitu þá lá fyrir í greinargerð áætlun um að tengjast Búrfellsveitu. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins
9.   Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting – 2511039
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gerð nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Tjaldfell norðaustan Skjaldbreiðar L175568. Fyrirhugað er að fjölga lóðum, heimila stærri mannvirki og fleiri gesti í gistingu. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Tjaldafell fjallaríki L175568, fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
10.   Írafossvirkjun; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055
Lögð er fram uppfærð skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.   Vaðnesvegur 2 L169743; Staðfest afmörkun lóðar – 2603044
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 15.10.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar leiðréttingu á hnitsettri afmörkun lóðarinnar Vaðnesvegur 2 L169743.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykki erindið.
Hrunamannahreppur
12.   Hrafnabjörg L194595; Frístundasvæði; Deiliskipulag – 2511025
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulag, eftir auglýsingu, sem tekur til frístundasvæðis í landi Hrafnabjarga L194595 í Hrunamannahreppi. Í tillögunni felst að skilgreindar eru 34 nýjar lóðir og byggingarreitur innan þeirra þar sem heimilt er að byggja eitt frístundahús, aukahús og kalda geymslu. Deiliskipulag þetta er lagt fram samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.   Syðra-Langholt L172619; Breyttir skilmálar efnistökusvæðis E31; Aðalskipulagsbreyting – 2505033
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 og deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun á grjótnámu á Syðra-Langholti (efnistökusvæði E31) úr 0,9 ha í 1,3 ha þar sem leyfileg efnistaka verður 138.000 m3 í stað 45.000 m3. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.   Galtaflöt 3 L200921; Úr frístundahúsnæði í gistihúsnæði; Deiliskipulagsbreyting – 2510002
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi sem tekur til Galtaflatar 3 L200921 í Hrunamannahreppi. Í breytingunni felst að frístundahúsnæðinu er breytt i gistihúsnæði án veitingasölu. Tilgangur umsóknarinnar er að reka þar lítið gistihús/gistiheimili sem þjónustar ferðafólk með svefnplássi án veitingareksturs. Einungis verður boðið upp á gistingu, en ekki sala mat- eða drykkjarvara. Athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að hafna erindinu vegna mikilla athugasemda við grenndarkynningu málsins.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
15.   Hvammsvirkjun; Vatnsaflsvirkjun í Þjórsá; Framkvæmdaleyfi – 2512066
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hvammsvirkjunar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Sjá nánar í fylgiskjalinu, Inngangur.
Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggur fyrir greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar auk þess að eftirlitsnefnd verði skipuð. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar verði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda vegna Hvammsvirkjunar í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar, önnur fyrirliggjandi gögn og umsögn. Nefndin telur að framkvæmdaaðili hafi sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til fyrirsjáanlegs orkuskorts í landinu, sbr. orkuspá Umhverfis- og orkustofnunar og raforkuspá Landsnets, til þess að tryggja raforkuöryggi í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Einnig að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun umfram aðra valkosti og tekur nefndin undir það mat Umhverfis- og orkustofnunar í fyrirliggjandi virkjunarleyfi ásamt heimild til breytinga á vatnshlotum, dags. 12. desember 2025, að ekki sé með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum.
16.   Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2511005
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Stóra-Mástunga 1 L166603, efnistökusvæði verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
17.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-245 – 2602003F
Afgreiðslur byggingarfulltrúa þann 4. mars 2026, 26-245

 

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30