Skipulagsnefndarfundur nr. 319. dags. 11. febrúar 2026

Skipulagsnefnd – 319. fundur  haldinn að Laugarvatni, miðvikudaginn 11. febrúar 2026 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Björn Kristinn Pálmarsson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

 

Dagskrá: 

    Bláskógabyggð
1.   Miðhús L167415 Miðhúsaskógi; Byggingarreitur miðlunartanks; Deiliskipulagsbreyting – 2602007
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Miðhúsa L167415 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir miðlunartank austan við þjónustumiðstöðina og 14m frá lóðamörkum. Vatnstankurinn er 6,1m að hæð og 12,5m í ummál, rúmmál um 75m2.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
2.   Miðbrún 2 L207321; Aukið byggingamagn auka húss; Fyrirspurn – 2602005
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Miðbrún 2 í landi Úthlíðar í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort heimilt sé að veita undanþágu frá almennum skilmálum gildandi deiliskipulags, sem kveða á um að aukahús á frístundalóðum megi að hámarki vera 30 m², þannig að heimilt verði að reisa stakt aukahús allt að 100 m² að stærð á lóðinni. Unnin yrði tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem taki til frístundasvæðisins í landi Úthlíðar, þar sem byggingarheimildir fyrir aukahús og hámarksstærðir frístundahúsa yrðu endurskoðaðar þannig að takmörkun byggingarmagns miðist eingöngu við hámarks nýtingarhlutfall 0,03.
Skipulagsnefnd UTU mælist til við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að erindinu verði synjað þar sem að það er ekki í samræmi við stefnu aðalskipulag Bláskógabyggðar.
3.   Holtakot lóð (L167344); byggingarheimild; sumarhús – 2602001
Móttekin var umsókn þann 30.01.2026 um byggingarheimild fyrir 88 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Holtakot lóð (L167344) í Bláskógabyggð.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess að unnið verið deiliskipulag fyrir Holtakot og stofnaðar lóðir samkvæmt merkjalýsingu á grundvelli þess.
Flóahreppur
4.   Súluholtshjáleiga L166391; Efnistaka og losunarsvæði E24; Aðalskipulagsbreyting – 2602014
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017 – 2029. Breytingin tekur til jarðarinnar Súluholtshjáleigu, E24, þar sem lagt er til að skilgreint verði nýtt efnistöku- og efnislosunarsvæði. Heimilt verði að vinna allt að 48. þús m³ af efni á 1,7 ha svæði. Einnig er heimilt að losa jarðveg í námuna og ganga jafn óðum frá þeim hluta þar sem efnistöku er lokið. Á svæðinu hefur verið tekið efni um árabil til staðbundinna nota og er með aðalskipulagsbreytingunni verið að leiðrétta landnotkun.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent Skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.
5.   Mosató 3 hótel L225133; Skógræktar- og landgræðslusvæði SL6 og reitur VÞ11; Leiðréttar stærðir og aukið byggingarmagn; Aðalskipulagsbreyting – 2601073
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Breytingin tekur til skógræktar- og landgræðslusvæðis SL6 og verslunar- og þjónustureits VÞ11 í landi Hnauss 2. Með tillögunni er lagt til að afmörkun reits VÞ11 verði skýrð og reiturinn stækkaður um 0,85 ha til norðausturs inn á hluta svæðis SL6, þannig að heildarstærð reitsins verði 3,5 ha, auk þess sem byggingarmagn innan reitsins verði aukið úr 3.700 m² í 4.500 m². Jafnframt er lögun syðri fláka íbúðarsvæðis ÍB17 leiðrétt til samræmis við rétta afmörkun lóðarinnar Mosató 2.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna breytingu á SL6 og VÞ11 í landi Hnauss og jafnframt er lögun ÍB17 leiðrétt, verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
6.   Krókur L166363; Krókur L166364; Staðfesting á afmörkun og breytt stærð jarðar og niðurfelling lóðar – 2509050
Lögð er fram merkjalýsing sem tekur til afmörkunar jarðarinnar Króks (L166363) í Flóahreppi. Merkjalýsingin er unnin í samræmi við Aðalskipulag Flóahrepps 2017-2029, þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Með merkjalýsingunni er gerð leiðrétting á skráðri stærð jarðarinnar á grundvelli mælinga. Jörðin er skráð 233 ha í fasteignaskrá HMS. Samkvæmt mælingu minnkar jörðin um 3,6 ha og verður 229,4 ha.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
7.   Endurskoðun aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037 – 2510040
Lögð er fram, eftir kynningu, skipulagslýsing fyrir endurskoðun Aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037. Umsagnir bárust við skipulagslýsingu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Fyrir liggja umsagnir við lýsingu Aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037. Skipulagslýsingin var kynnt frá 27.11.2025 til 19.12. 2025. Skipulagsnefnd hefur tekið fyrir umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingar vegna endurskoðunar Aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037.
Umsagnir bárust m.a. frá Atvinnuvegaráðuneyti, Veðurstofu Íslands, Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Fiskistofu, Vegagerðinni, Landsneti, Náttúrufræðistofnun Íslands, auk nágrannasveitarfélaga. Í umsögnum er m.a. bent á mikilvægi skýrrar umfjöllunar um vernd landbúnaðarlands, náttúruvá, náttúru- og menningarminjar, samgöngur, orkumannvirki og samráð yfir sveitarfélagamörk.
Nefndin tekur undir að umsagnirnar varði að mestu leyti atriði sem eðlilegt er að útfæra nánar á næstu stigum skipulagsvinnunnar. Lagt er til að fram komnar ábendingar verði hafðar til hliðsjónar við mótun stefnu, greinargerðar og umhverfismats í áframhaldandi vinnu við aðalskipulagið og að haft verði áframhaldandi samráð við viðkomandi stofnanir eftir því sem við á.
Umsagnir þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við lýsinguna eru lagðar til grundvallar og kalla ekki á frekari viðbrögð á þessu stigi málsins.
8.   Grímsskjól L236179; Stækkun byggingarreita; Deiliskipulagsbreyting – 2602019
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem tekur til lóðanna Grímsskjól 1 og 3, L236179 í Flóahreppi. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreita innan lóða til að auka svigrúm lóðarhafa við val á byggingarstað, án þess að breytingar séu gerðar á gildandi skilmálum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Taka verður tillit til minja á svæðinu við staðsetningu húsa. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Grímsnes- og Grafningshreppur
9.   Þórsstígur 3 og 5 og Herjólfsstígur 9; Breytt lega lóðarmarka; Deiliskipulagsbreyting – 2405064
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til marka Þórsstígs 3 og 5 og Herjólfsstígar 9. Í breytingunni felst tilfærsla og leiðrétting á lóðarmörkum og byggingarreitum á viðkomandi lóðum. Athugasemd barst við grenndarkynningu og er hún lögð fram við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir grenndarkynningu. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.   Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Reykjalundar L168273 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á
jörðinni er rekin garðyrkjustöð og stendur til að stækka starfsemina og auka framleiðslu. Samhliða verður rekin ferðaþjónusta með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Einnig vilja eigendur búa á jörðinni og vera með húsnæði fyrir starfsfólk. Stærð skipulagssvæðis er 8 ha.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.   Hraunbyggð 9 L212392; Aukin byggingarheimild og breyttir skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2506108
Lögð er fram umsókn um heimild til að reisa 39,9 fm bílageymslu á lóðinni Hraunbyggð 9 L212392. Í núgildandi deiliskipulagi frístundabyggðar Kerhrauns, svæði E, í landi Klausturhóla er heimilt að reisa allt að 25 fm geymslu- eða gestahús. Á aðalfundi Félags sumarhúsaeigenda Kerhrauns E, höldnum 23. maí 2022, fékk stjórn félagsins heimild til að uppfæra deiliskipulagið.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
12.   Grænahlíð opið svæði L233882; Leiðréttar götur; Deiliskipulagsbreyting – 2602016
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem tekur til 2. áfanga íbúðabyggðar í landi Efri-Brúar, L233882, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felur í sér leiðréttingu á legu gatna til samræmis við framkvæmdir á vettvangi og hefur ekki áhrif á skilmála gildandi deiliskipulags.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, með fyrirvara um uppfærð gögn. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
13.   Vesturhlíð L192153; Frístundabyggð F16; Deiliskipulag – 2410072
Lögð er fram uppfærð tillaga deiliskipulags, í samræmi við uppfærða aðalskipulagsbreytingu, sem tekur til frístundasvæðis F16 innan aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps. Í deiliskipulaginu felst m.a. skilgreining lóða, byggingarreita og byggingarskilmála innan svæðisins sem tekur til um 97 ha svæðis undir heitinu Vesturhlíð. Á svæðinu er gert ráð fyrir lóðum ásamt opnum svæðum, vegum, göngustígum og skilgreindu svæði fyrir vatnsöflun.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja uppfært deiliskipulag í samræmi við uppfærða aðalskipulagsbreytingu er varðar nýtingarhlutfall. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
14.   Minni-Núpur L166583; Búrfellslína 1, tilfærsla v. Hvammsvirkjun; Framkvæmdarleyfi – 2601077
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna færslu Búrfellslínu 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í framkvæmdinni felst tilfærsla raflínu vegna tengingar hennar við Hvammsvirkjun og til að færa línuna frá stíflumannvirkjum. Framkvæmdin er unnin af Landsneti og er sótt um framkvæmdaleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-242 – 2601003F

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30