21 okt Afgreiðslur byggingarfulltrúa nr. 268 – 21. október 2026
Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-268, miðvikudaginn 21. október 2026
Dagskrá:
| Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál | ||
| 1. | Hallkelshólar lóð 86 (L202619); byggingarheimild; sumarhús – 2506113 | |
| Ný gögn móttekin 08.10.26 umsókn um byggingarheimild fyrir 54,9 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandið Hallkelshólar lóð 86 (L202619) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál | ||
| 2. | Steinsholt 1 millispilda (L241658); byggingarheimild; gripahús – 2610042 | |
| Móttekin var umsókn þann 15.10.2026 um byggingarheimild fyrir 810 m2 gripahúsi á landinu Steinsholt 1 millispilda (L241658) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. | ||
| Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. | ||
| Flóahreppur – Almenn mál | ||
| 3. | Vorsabær (L165516); byggingarheimild; gistihús mhl 13 – 2509057 | |
| Erindi sett að nýju til afgreiðslu, grenndarkynningu er lokið. Móttekin var umsókn þann 10.08.2026 um byggingarheimild fyrir eitt gistihús 30,6 m2, mhl 13 á jörðinni Vorsabær (L165516) í Flóahreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| Grímsnes- og Grafningshr. – Umsagnir og vísanir | ||
| 4. | Langirimi 11 (L236516); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2610041 | |
| Móttekinn var tölvupóstur þann 14.10.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarhús frá Hannesi Arnarsyni fyrir hönd Sláttur og smáverk ehf., kt. 710118 – 0430 á sumarbústaðalandinu Langirimi 11 (F252 9572) Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II. | ||
| Bláskógabyggð – Umsagnir og vísanir | ||
| 5. | Brekkuheiði 66 (L206873); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2610043 | |
| Móttekinn var tölvupóstur þann 16.10.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarhús frá Sigurði Þ. Sigurðssyni fyrir hönd SÞS ehf. kt. 640269 – 3679 á sumarbústaðalandinu Brekkuheiði 66 (F234 5929) í Bláskógabyggð. | ||
| Lagst er gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags. | ||
Davíð Sigurðsson
Byggingarfulltrúi UTU bs.