Afgreiðslur byggingarfulltrúa fundur nr. 100 – 15.maí 2019

Afgreiðslur byggingarfulltrúa 19 – 100. fundur  haldinn að Laugarvatni, 15. maí 2019 og hófst hann kl. 13:00

Fundinn sátu:

Davíð Sigurðsson byggingarfulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Stefán Short tæknimaður, Lilja Ómarsdóttir tæknimaður, Sigurður Hreinsson aðstoðarmaður skipulagsfulltrúa og Guðmundur G. Þórisson áheyrnafulltrúi.

Fundargerð ritaði:  Davíð Sigurðsson, byggingarfulltrúi

Dagskrá:

Hrunamannahreppur – Almenn mál
1.  Hrafnkelsstaðir 1A (L228565); Umsókn um byggingarleyfi; Íbúðarhús – 1904029
Fyrir liggur umsókn Haraldar Sveinssonar dags. 12.04.2019 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að flytja íbúðarhús 90,5 m2 á jörðina Hrafnkelsstaðir 1A (L228565) í Hrunamannahreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
2.  Galtaflöt 14 (L200932); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús með áfastri geymslu – 1905029
Fyrir liggur umsókn Loco ehf., dags. 10.05.2019 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja sumarhús með áfastri geymslu 88,3 m2 á sumarhúsalóðinni Galtaflöt 14 (L200932) í Hrunamannahreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál
3.  Laugarimi 19 (L193525); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús með risi – 1904016
Fyrir liggur umsókn Ágústar J. Elíassonar dags. 01.04.2019 móttekin 04.04.2019 um byggingarleyfi til að byggja sumarhús með risi 125,2 m2 á sumarhúsalóðinni Laugarima 19 (L193525) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
   
4.  Kerengi 2 (L169115); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús og gestahús – 1905021
Fyrir liggur umsókn BG Pípulagnir ehf. dags. 05.05.2019 móttekin 07.05.2019 um bygggingarleyfi til að byggja sumarhús með svefnlofti 113,3 m2 og gestahús 32,7 m2 á sumarhúsalóðinni Kerengi 2 (L169115) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
5.  Heiðarimi 5 (L169006); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – stækkun – 1905025
Fyrir liggur umsókn Auðar Bergsteinsdóttur og Ólafs Árna Traustasonar dags. 10.04 2019 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja við sumarhús 100,6 m2 á sumarhúsalóðinni Heiðarimi 5 (L169006) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Heildarstærð á sumarhúsi eftir stækkun verður 152,5 m2.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
6. Kambsbraut 6 (L202384); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – 1905022
Fyrir liggur umsókn Halldórs Stígssonar dags. 06.05.2019 móttekin 07.05.2019 um byggingarleyfi til að byggja sumarhús með bílgeymslu 205,8 m2 á sumarhúsalóðinni Kambsbraut 6 (L202384) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Umsókn um byggingarleyfi er synjað þar sem húsið uppfyllir ekki kröfur gildandi deiliskipulags.
7. Kerhraun B 122 (L208909); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – 1903048
Fyrir liggur umsókn Matfasteigna ehf. dags. 17.03.2019 móttekin 18.03.2019 um byggingaleyfi til að byggja sumarhús með bílgeymslu 107,8 m2 á sumarhúsalóðinni Kerhraun B 122 (L208909) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
     
8.  Kattargil 8 (L170908); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – viðbygging – 1812034
Fyrir liggur umsókn Liv Bergþórsdóttur og Sverris Viðarsonar dags. 12.12.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja við núverandi hús viðbyggingu 71,5 m2 á tveimur hæðum á sumarhúsalóðinni Kattargil 8 (170908) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Heildarstærð eftir stækkun verður 158,2 m2
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. Lilja Ómarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu máls.
 

9.

 

Arnarhólsbraut 11 (169922) Umsókn um byggingarleyfi Sumarhús – viðbygging – 1804032

Erindi sett að nýju fyrir fund með lagfærðum gögnum móttekin 13.05.2019. Sótt er um bygingarleyfi til að byggja við sumarhús 64 m2 á Arnarhólsbraut 11 (L169922) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Heildarstærð eftir stækkun er 101,9m2. Þinglýstur eigandi skv. Þjóðskrá Íslands er Helga Ingimarsdóttir.
Samþykkt
10.  Biskupstungnabraut 3 (L169583); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús með bílgeymslu – 1905035
Fyrir liggur umsókn Ísleifs Ottesen og Svölu Ólafsdóttur dags. 24.04.2019 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja sumarhús með bílgeymslu 205,3 m2 á sumarhúsalóðinni Biskupstungnabraut 3 (L169583) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál
11. Sultartangavirkjun; Stöðuleyfi; Aðstöðuhús – 1905030
Fyrir liggur umsókn Suðurverk hf. dags. 13.05.2019 móttekin sama dag um stöðuleyfi fyrir aðstöðuhús sem verða þrír samsettir gámar fyrir matar- og kaffiaðstöðu og þrír stakstæðir gámar sem geymslur og verkfæragámar á viðskipta- og þjónustulóðinni Sultartangavirkjun (L191624) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 15.12.2019
12.  Holtabraut 18-20 (L228571); Umsókn um takmarkað byggingarleyfi; Graftarleyfi – 1905034
Fyrir liggur umsókn Tré og Strauma ehf. móttekin 14.05.2019 um takmarkað byggingarleyfi, leyfi til að jarðvegsskipta undir fyrirhuguðu parhúsi með sambyggðum bílskúrum, stærð 349,2 m2.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi, sem einskorðast við jarðvegsskipti vegna aðkomu og jarðvegsskipti undir hús. Kalla skal eftir botnúttekt vegna jarðvegsskipta.
Bláskógabyggð – Almenn mál
13.  Hverabraut 4 (L227720) og Hverabraut 6-8 (167837); Umsókn um byggingarleyfi; Breyting á notkun á húsnæði – 1903050
Fyrir liggur umsókn Bláskógarbyggðar dags. 22.03.2019 um byggingarleyfi til að breyta innra skipulagi á húsnæði, íbúð og geymslum auk byggja hringstiga utanhúss á Hverabraut 4 (L227720) og Hverabraut 6-8 (L167837) í Bláskógabyggð. Til stendur að nýta fasteign til útleigu sem gististaður í flokki III, gististaður sem stærra gistiheimili með takmarkaða þjónustu skv. reglugerð nr. 1277/2016.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
14. Laugarvatn (L167638); Stöðuleyfi; Stöðuleyfi og gámur – 1905007
Fyrir liggur umsókn Sólstaða ehf. dags. 03.05.2019 móttekin sama dag um stöðuleyfi fyrir veitingartjald og gámaklósett við Laugarvatnsjörð (L167638), Laugarvatnshella í Bláskógabyggð.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 03.11.2019. Byggingarfulltrúin bendir á að huga þurfi að varanlegri lausn og skipulagi svæðis.
15.  Brattholt lóð (193452) Umsókn um byggingarleyfi Þjónustuhús 3. áfangi – breyting – 1807027
Fyrir liggur ný umsókn Svavars Njarðarsonar dags. 31.01.2019 móttekin 12.02.2019 um byggingarleyfi til að breyta samþykktu byggingarleyfi dagsett 05.07.2018. Nú er sótt um leyfi til að stækka kjallara, stækka uppþvottaherbergi og breyta m.a vatnstanki og gluggum á viðskipta- og þjónustulóðinni Brattholt lóð (L193452) í Bláskógabyggð.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
 
16.  Melur (L224158); Umsókn um byggingarleyfi; Þjónustuhús – breyting – 1610019
Erindi er sett að nýju fyrir afgreiðslfund byggingarfulltrúa. Fyrir liggur ný umsókn frá Geysisholti dags. 14.03.2019 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja milliloft að hluta og breyta innra skipulagi í þjónustuhúsi mhl 11 sem fékk samþykkt byggingaráform 02.11.2016 á viðskipta- og þjónustulóðinni Melur (L225158) í Bláskógabyggð. Heildarstærð með breytingu sem var samþykkt 18.07.2018 ásamt breytingum sem fyrir liggur á þessum fundi er 403,9 m2.
Samþykkt
17. Melur (224158); Umsókn um byggingarleyfi; Þjónustuhús – stækkun – 1804014
Erindi sett að nýju fyrir afgreiðslufund byggingarfulltrúa. Fyrir liggur ný umsókn dags. 10.05.2019 móttekin sama dag með breytingu á aðalteikningu. Nú er sótt um byggingarleyfi til að byggja 15 m2 geymslu við þjónustuhús að Melum (L224158) í Bláskógabyggð. Heildarstærð eftir stækkun verður 81 m2.
Samþykkt.
Grímsnes- og Grafningshr. – Umsagnir og vísanir
18. Öndaverðanes 1 (L168299); Umsögn um rekstrarleyfi, veitingar – 1905017
Móttekinn var tölvupóstur þann 26.04.2019 frá fulltrúa Sýslumanns á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, veitingastofa og greiðasala (C), frá Decus ehf., á jörðinni Öndverðanes 1 (F220 7200) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við veitingu rekstrarleyfis í fl II, til veitinga, þ.e. veitingastofa og greiðasala að Öndaverðanes 1 (L168299) fyrir allt að 140 manns.
 

Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Umsagnir og vísanir

19. Brjánsstaðir (L166457); Umsögn um rekstrarleyfi, gisting – 1905012
Móttekinn var tölvupóstur þann 10.04.2019 frá fulltrúa Sýslumanns á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. IV, gististaður með áfengisveitingum, hótel (A) frá Íslandshótel hf. á jörðinni Brjánsstaðir (F220 1806) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé rekstrarleyfi í fl. IV, hótel. Fjöldi gesta 100 manns í veitingasal, 100 manns á hóteli, 120 manns í fundasal.
Bláskógabyggð – Umsagnir og vísanir
20. Kóngsvegur 16,18,20,22 og 24; Umsögn um rekstrarleyfi – 1902006
Móttekinn var tölvupóstur þann 31.01.2018 frá fulltrúa Sýslumanns á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi í fl. II, gististaður án veitinga, gistiskáli (D) frá Ferðaþjónustunni Úthlíð ehf. á sumarhúsalóðunum Kóngsvegur 16 (F2219807), Kóngsvegur 18 (F2235558), Kóngsvegur 20 (F2240587), Kóngsvegur 22 (F2278528) og Kóngsvegur 24 (F2276479) í Bláskógabyggð
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að gefið verði út rekstrarleyfi í fl. II
Gistirými sundurliðast þannig:

Kóngsvegur 16 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 18 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 20 = 2 manns í gistingu.
Kóngsvegur 22 = 8 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 01 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 02 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 03 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 04 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 05 = 4 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 06 = 8 manns í gistingu.
Kóngsvegur 24 mhl. 07 = 4 manns í gistingu.

21. Heiði (L167104); Umsögn um rekstrarleyfi, veitingar – 1905013
Móttekinn var tölvupóstur þann 11.04.2019 frá fulltrúa Sýslumanns á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, veitingastofa og greiðasala (C), frá Við Faxa ehf., á jörðinni Heiði (F220 4665) í Bláskógabyggð
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við veitingu rekstrarleyfis í fl II, veitingastofa og greiðasala fyrir allt að 50 manns.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00