Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 20. september 2017

Afgreiðslur byggingarfulltrúa 17 – 63. fundur

haldinn að Laugarvatni, 20. september 2017

og hófst hann kl. 13:00

 

Fundinn sátu:

Davíð Sigurðsson, Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa, Rúnar Guðmundsson, Byggingarfulltrúi og Guðmundur Þórisson, Áheyrnarfulltrúi.

 

Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson, byggingarfulltrúi

Dagskrá: 

 

1.  

Ásahreppur:

Miðhóll: Tilkynningarskyld framkvæmd: Gestahús – 1706088

Erindið fór fyrir afgreiðslufund byggingarfulltrúa 9/8 2017 sem umsókn um byggingarleyfi og fékk samþykkt byggingaráform. Erindið er sett að nýju fyrir afgreiðslufund byggingarfulltrúa nú sem tilkynningarskyld framkvæmd þar sem mistök áttu sér stað í upphafi þegar mál var stofnað. Tilkynnt er bygging gestahús 32,6 ferm og 93,5 rúmm úr timbri
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
 

2.  

Hrunamannahreppur:

Dalabyggð 31: Umsókn um takmarkað byggingarleyfi: Graftarleyfi – 1709075

Sótt er um leyfi til að byrja á jarðvegsframkvæmdum.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi, sem einskorðast við jarðvegsskipti vegna aðkomu og jarðvegsskipti undir hús. Kalla skal eftir botnúttekt vegna jarðvegsskipta.
3.   Dalabyggð 1: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og gestahús – 1709096
Sótt er um byggja sumarhús 27,1 ferm og 76 rúmm og gestahús 27,1 ferm og 76 rúmm úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012. Fyrri umsókn um byggingarleyfi sem samþykkt var á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 7. júní 2017 er afturkölluð að beiðni umsækjanda.

 

 

4.   Skyggnir: Umsókn um byggingarleyfi: Íbúðarhús – breyting – 1707015
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi 156 fm2 íbúðarhúsnæði í gistiskála.
Samþykkt
5.   Grímsnes- og Grafningshreppur:

Hallkelshólar lóð 105: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1709031

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi, 30 ferm. úr timbri. Heildarstærð verður 52,6 ferm.
Þar sem óvissa er um skipulagsmál svæðisins er umsókn vísað til skipulagsnefndar til frekari afgreiðslu.
6.   Hallkelshólar lóð 108: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1704033
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús með svefnlofti 104,5 ferm og 351,9 rúmm úr timbri.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
7.   Þrastahólar 14: Stöðuleyfi: Gámar – 1709079
Sótt er um stöðuleyfi fyrir tvo 20 feta gáma
Synjað.
8.   Bústjórabyggð 5: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1709010
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús, tvílyft að hluta og úr timbri. Heildarstærð er 119,8 ferm
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
9.    

Öldubyggð 18: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1709063

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi 35,4 ferm úr timbri, heildarstærð eftir stækkun er 135,7 ferm.
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.

 

 

10.   Þórisstaðir 2 lóð 23: Umsókn um byggingarleyfi: Geymsla – 1709068
Sótt er um leyfi til að byggja geymslu.
Samþykkt.
11.   Lundeyjarsund 10: Umsókn um byggingarleyfi: Geymsla – 1708074
Sótt er um leyfi til að byggja geymslu úr timbri
Umsókn er synjað. Geymsla staðsett of nærri lóðarmörkum auk þess sem aukahús mega eingöngu vera 25 fm að stærð skv. gildandi deiliskipulagi.
12.    

Neðra-Apavatn lóð (169309): Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1709055

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi 35,8 ferm úr timbri, heildarstærð eftir stækkun 90,8 ferm.
Þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið er umsókn vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu
13.    

Kiðhólsbraut 8: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1709067

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi 17,5 ferm úr timbri, heildarstærð verður 69 ferm.
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
 

14.  

Skeiða- og Gnúpverjahreppur:

Hólabraut 5: Umsókn um byggingarleyfi: Íbúðarhús og hesthús – 1708048

Sótt er um leyfi til að byggja íbúð og hesthús. Hesthús er 141,1 fm2 og íbúð á tveimur hæðum 105,8 fm2 úr timbri. Heildarstærð 246,9 fm2 og 986,7 m3
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
15.   Álfsstaðir II: Stöðuleyfi: Aðstöðuhús – 1708093
Sótt er um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir aðstöðuhúsi
Byggingarfulltrúi synjar umsókn um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir aðstöðugáma.

 

 

 

16.  

Bláskógarbyggð:

Skógarás 4: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1709037

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi um 30,6 ferm úr timbri, heildarstærð eftir stækkun er 83,5 ferm.
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
17.    

Koðrabúðir lóð 2: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og gestahús – 1708042

Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 84,5 ferm og 314,6 rúmm og gestahús 35,5 ferm og 129,1 rúmm úr timbri
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
18.   Hrauntún 3: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1709077
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 120 ferm og 406 rúmm úr timbri, húsið verður flutt tilbúið af staðinn frá Stokkseyri
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
19.    

Vörðubrúnir 1: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – viðbygging – 1708063

Tilkynnt er stækkun á sumarhúsi, heildarstærð verður 78,2 ferm
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
20.   Hlíðarbraut 1: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – viðbygging – 1708054
Sótt er um leyfi til að byggja við sumarhús 72,2 ferm. Heildarstærð eftir stækkun er 148,7 ferm
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.

 

 

21.    

Skálabrekka lóð: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og bátaskýli – 1504021

Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 126,7 ferm og bátaskýlið 30 ferm.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
22.    

Heiðarbær lóð 170216: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús-viðbygging og geymsla – 1505023

Sótt er um viðbyggingu og breytingu á sumarhúsi auk geymslu. Stækkun sumarhús 138,9 ferm og 522,4 rúmm.,geymsla 32 ferm og 97,4 rúmm.Heildarstærð verður 257,6 ferm og 792,4 rúmm.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
23.    

Heiðarbær lóð (170211): Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og geymsla – 1709009

Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 198,2 ferm og kalda geymslu 92,4 ferm úr steypu á grunn sem var steyptur árið 2007. Heildarstærð 290,6 ferm
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
24.    

Heiðarbær lóð 170235: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – viðbygging – 1607024

Sótt er um leyfi til að byggja við sumarhús og steypa bílskýli undir bústað, stækkun 93,9 ferm og 297,7 rúmm. Heildarstærð eftir stækkun er 195,2 ferm og 555,7 rúmm.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
25.    

Heiðarbær Birkilundur 170203: Umsókn um byggingarleyfi: Bátaskýli – 1506002

Sótt er um leyfi til að byggja við bátaskýli 27,8 ferm úr timbri. Heildarstærð eftir stækkun verður 82,9 ferm og 241,1 rúmm.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.

 

 

26.  

Flóahreppur:

Súluholt: Umsókn um byggingarleyfi: Frístundahús mhl 05 – 1708083

Sótt er um leyfi til að byggja frístundarhús 28,9 ferm
Samþykkt

 

27.   Súluholt: Umsókn um byggingarleyfi: Frístundahús mhl 06 – 1709005
Sótt er um leyfi til að byggja frístundahús mhl 06, 28,9 ferm úr timbri
Samþykkt

 

 

28.   Krókur: Umsókn um niðurrif: Mhl 2, 10 og 11 – 1709095
Sótt er um að fjarlægja mhl 02 íbúð 240,8 ferm, byggingarár 1911, mhl 10 véla- og verkfærageymsla 60,2 ferm, byggingarár 1966 og mhl 11 alifuglahús 56,4 ferm, byggingarár 1960 skv. Þjóðskrá Íslands
Samþykkt
 

29.  

Umsögn um rekstrarleyfi:

Holtabyggð 110: Umsögn um rekstrarleyfi mhl 07-08 – 1708059

Umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, gististaður – frístundahús mhl 07 og 08 í Holtabyggð 110
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
30.   Holtabyggð 110: Umsögn um rekstrarleyfi – mhl 01 og 02 – 1708060
Umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, gististaða – frístundahús í mhl 01 og 02 í Holtabyggð 110
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
31.   Arngrímslundur: Umsögn um rekstrarleyfi – 1708057
Umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, gististaða – minna gistiheimili
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé nýtt rekstrarleyfi í fl. II. Gisting fyrir allt að 12 manns í þremur smáhýsum. (4 manns í hverju húsi)
32.   Knarrarholt: Umsögn um rekstrarleyfi – 1708067
Umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, gististaður – minna gistiheimili
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé nýtt rekstrarleyfi í fl. II. Gisting fyrir allt að 8 manns.

 

33.   Brattholt lóð: Umsögn um rekstrarleyfi – 1709002
Umsögn um rekstrarleyfi í fl. III, gististaður með áfengisveitingum – hótel (A)
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé nýtt rekstrarleyfi í fl. IV. Gisting fyrir allt að 70 manns. Veitingasalur fyrir allt að 80 manns.

 

       Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30

 

 

 

 

___________________________                       ___________________________