Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 1. mars 2017

Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 17 – 49. fundur

haldinn Laugarvatn, 1. mars 2017

og hófst hann kl. 13:00

 

Fundinn sátu:

Davíð Sigurðsson Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa, Rúnar Guðmundsson Byggingarfulltrúi og Guðmundur Þórisson Áheyrnarfulltrúi.

Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson, byggingarfulltrúi

Dagskrá:

 

1.  

Grímsnes- og Grafningshreppur:

Villingavatn: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – viðbygging – 1702013

Sótt er um leyfi til að byggja við sumarhúsið 74 ferm úr steinsteypu. Heildarstærð eftir stækkun er 165 ferm og 508,8 rúmm.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
 
2.   Skyggnisbraut 15: Tilkynningarskyld framkvæmd: Gestahús – 1702047
Tilkynnt er bygging á gestahúsi 25 ferm og 73,2 rúmm úr timbri á Skyggnisbraut 15
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
 
3.   Baulurimi 15: Umsókn um niðurrif: Sumarhús – 1702043
Sótt er um leyfi til að rífa niður sumarhús mhl 01, 34,3 ferm skv. Þjóðskrá Íslands, byggingarár 1985.
Samþykkt, í samræmi við gr. 2.3.1 í byggingarreglugerð 112/2012.
 
4.   Vesturbrúnir 6: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús og geymsla – 1702020
Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 124,7 ferm og 406,3 rúmm og geymslu 11,8 ferm og 34 rúmm. Byggingarefni er steinsteypa og timbur.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.

 

 

 
 

 

5.  

 

Skeiða- og Gnúpverjahreppur:

Flatir lóð 17: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1702036

Granni 20130883-4894. Sótt var um sumarhús 44,8 ferm og 1.319 rúmm úr timbri. Erindið fékk samþykkt byggingaráform 21. ágúst 2013. Nú er sótt um leyfi til að breyta byggingarefni á útveggjum á sumarhúsi í bjálkaveggi einangraðir að utan.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
 
 

6.  

Bláskógabyggð:

Tunguholt 7: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1702053

Sótt er um leyfi til að byggja sumarhús 81,6 ferm og 262,6 rúmm úr timbri.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
 
 

7.  

Flóahreppur:

Forsæti 3: Umsókn um byggingarleyfi: Geymsla – viðbygging – 1702045

Sótt er um leyfi til að byggja við geymslu mhl 03, 65,3 ferm úr steinsteypu. Heildarstærð eftir stækkun er 212,6 ferm.
Vísað á skipulagsnefnd til nánari afgreiðslu.
 
8.   Arnarstaðakot: Umsókn um byggingarleyfi: Hesthús – 1702057
Sótt er um leyfi til að byggja hesthús 126,6 ferm og 441,7 rúmm úr timbri.
Vísað til skipulagsnefndar, til afgreiðslu.
 
 

9.  

Umsögn um rekstrarleyfi:

Auðsholt 2: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1701038

Umsögn um nýtt rekstrarleyfi í fl.II, gististaður – íbúðir.
Umsóknin samræmist skilmálum gildandi aðalskipulags Hrunnamannhrepps 2003-2015. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé nýtt rekstrarleyfi í fl. II. Gisting fyrir allt að 8 manns.
 
10.   Skyggnisbraut 2B: Umsögn um rekstrarleyfi – 1702017
Umsögn um rekstrarleyfi í fl. II, gististaður án veitinga -frístundahús.
Þar sem ekki lá fyrir við ákvörðun byggingarfulltrúa, almenn skýr afstaða um túlkun á reglugerð 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, þá sérstaklega þann þátt er snýr að rekstrarleyfum í fl. II, á sumarhúsasvæðum, afturkallar byggingarfulltrúi fyrri afgreiðslu frá 15.2.2017, vegna umsóknar um rekstrarleyfi í fl. II. (sjá bókun skipulagsnefndar frá 23.febrúar 2017, liður 25.)
 
11.   Klausturhólar 10: Umsögn um rekstrarleyfi – 1702061
Umsögn um rekstrarleyfi í fl.II, gististaður án veitinga – sumarhús
Umsókninni er hafnað þar sem ekki er heimilt að leigja út hluta byggingar.
 
12.   Göltur 168244: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1609018
Umsögn um nýtt rekstrarleyfi í fl. II, gististaður – íbúðir
Byggingarfulltrúi leggst gegn veitingu rekstrarleyfis í fl. II, þar sem ekki hafa borist nein viðbrögð frá umsækjanda.
 
13.   Syðri-Reykir: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1611038
Umsögn á nýju rekstrarleyfi í fl. II, gististaður – sumarhús
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að veitt sé nýtt rekstrarleyfi í fl. II. Gisting fyrir allt að 10 manns.
 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00

 

 

___________________________                       ___________________________