Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 1. júni 2016

Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 16-31. fundur  

haldinn Laugarvatn, 1. júní 2016

og hófst hann kl. 13:00

 

Fundinn sátu:

Davíð Sigurðsson og Rúnar Guðmundsson .

 

Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson, byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

 

1.  

Hrunamannahreppur:

Bjarg 166731: Stöðuleyfi: Starfsmannahús – 1605026

Sótt er um stöðuleyfi fyrir starfsmannahús sem verður staðsett á bæjarhlaðinu á Bjargi 166731.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs , þ.e. til 1. júní 2017.
 
2.   Ljónastígur 8: Stöðuleyfi: Frystigámur – 1605053
Sótt er um stöðuleyfi fyrir frystigám.
Gámurinn að Ljónastíg 8, var settur niður án leyfis fyrir þó nokkru síðan og hefur valdi truflun í íbúðarhverfi. Vísað er í 56. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010. Vísað er til gr. 2.6.1. og 2.6.2 í byggingarreglugerð 112/2010. Ekki liggur fyrir að viðeigandi lausn umsækjanda um úrbætur á hávaða skili úrbótum sem aðilar máls geti sætt sig við. Þá er ekki æskilegt að gámur með kælipressu sé í gangi inni í miðri íbúabyggð. Umsókn um stöðuleyfi fyrir kælipressugám að Ljónastíg 8, er hafnað.
 
 

3.  

Grímsnes- og Grafningshreppur:

Kothólsbraut 19: Umsókn um byggingarleyfi: nýtt sumarhús. – 1502066

Granni 20130986-4966. Sótt var um leyfi til að byggja sumarhús 157 ferm og 615,9 rúmm úr timbri. Samþykkt byggingaráform 28. nóvember 2013. Sótt er um endurnýjun á leyfi.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
4.   Lerkigerði 2: Stöðuleyfi: Sumarhús – 1605052
Sótt er um stöðuleyfi fyrir sumarhús tímabundið.
Samþykkt að veita stöðuleyfi í samræmi við óskir umsækjanda til 1. júní 2017.
 
5.   Vaðholt 2: Umsókn um byggingarleyfi: Íbúðarhús – 1605032
Sótt er um leyfi til að byggja íbúðarhús 51,3 ferm og 168,3 rúmm úr timbri.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
 

6.  

Skeiða- og Gnúpverjahreppur:

Ásólfsstaðir 2 lóð 3: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – 1605065

Leyfi til að byggja sumarhús 44,5 ferm og 104,4 rúmm.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
7.   Þrándarholt 166618: Umsókn um byggingarleyfi: Skemma og fjárhús – 1604011
Sótt er um leyfi til að byggja skemmu og fjárhús
Vísað til skipulagsnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Auk þess eru gerðar aths við uppdrætti sem sendar eru hönnuði.
 
 

8.  

Bláskógabyggð:

Hamarsvegur 2: Byggingarleyfi: Gestahús – 1603011

Sótt er um leyfi til að byggja gestahús 14,86 ferm úr timbri.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
9.   Gufuhlíð 167096: Stöðuleyfi: Starfsmannahús – 1605041
Sótt er um stöðuleyfi fyrir starfsmannahús.
Samþykkt að veita stöðuleyfi í samræmi við óskir umsækjanda til 1. júní 2017.
 
10.   Rjúpnavegur 5: Tilkynningarskyld framkvæmd: Sumarhús – stækkun – 1605063
Tilkynnt hefur verið viðbygging, 12 ferm á sumarhúsi á Rjúpnavegi 5.
Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012. Samþykkt. Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 og samræmast skipulagsáætlunum.
 
11.   Merkurhraun 18: Umsókn um byggingarleyfi: Sumarhús – stækkun – 1605062
Raunteikning á stækkun sumarhús, 35 ferm og 117,9 rúmm. Heildarstærð eftir stækkun er 78,5 ferm og 253,9 rúmm.
Umsókn um byggingarleyfi er samþykkt, uppfyllir ákvæði laga nr. 160/2010. Byggingarleyfi er gefið út að uppfylltum skilyrðum er fram koma í gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.
 
 

12.  

Umsagnir um rekstrarleyfi:

Kiðjaberg lóð 118: Umsögn um rekstrarleyfi: Nýtt leyfi – 1603046

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í fl. II. að Kiðjabergi 118.
 
13.   Lambastaðir: Umsögn um rekstrarleyfi: Endurnýjun – 1604018
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis fyrir gististað í fl. II. Gistirými fyrir allt að 22 manns.
 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30