Afgreiðsla byggingarfulltrúa – 17. október 2018

Afgreiðslur byggingarfulltrúa 18 – 88. fundur

haldinn  að Laugarvatni, 17. október 2018

og hófst hann kl. 13:00

Fundinn sátu:

Davíð Sigurðsson, Stefán Short, Lilja Ómarsdóttir og Guðmundur G. Þórisson.

Fundargerð ritaði:  Davíð Sigurðsson, aðstoðarmaður byggingarfulltrúa

Dagskrá:

 

Ásahreppur – Almenn mál
1. Hellatún lóð H (L201672); Umsókn um byggingarleyfi; Íbúðarhús – 1810023
Lögð er fram umsókn Ægis Guðmundssonar dags. 09.10.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja íbúðarhús 151,1m2 á lóðinni Hellatún lóð H (L201672) í Ásahreppi.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
2.  Kálfholt (L165294); Umsókn um byggingarleyfi; Véla- og verkfærageymsla mhl 04 – breyting – 1810031
Lögð er fram umsókn Ísleifs Jónssonar dags. 20.09.2018 móttekin 11.10.2108 um byggingarleyfi til að breyta mhl 04 véla/verkfærageymslu í íbúðarhúsnæði á jörðinni Kálfholt (L165294) í Ásahreppi.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
Hrunamannahreppur – Almenn mál
3. Hrafnkelsstaðir 3 (L166764); Umsókn um byggingarleyfi; Skemma – 1810024
Lögð er fram umsókn Aðalsteins Þorgeirssonar dags. 6.10.2018 móttekin 09.10.2018 um leyfi til að fjarlægja geymslu 90m2 byggingarár 1950 og endurbyggja/stækka skemmu 216,3m2 á jörðinni Hrafnkelsstaðir 3 (L166764) í Hrunamannahreppi.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
4. Foss (L166746): Umsókn um byggingarleyfi: Vélaskemma – 1808033
Lögð er fram umsókn Hjörleifs Ólafssonar og Sigríðar Jónsdóttur dags. 24.07.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja vélageymslu 287,2 m2 á jörðinni Foss (L166746) í Hrunamannahreppi.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
5.  Birkibyggð 8 (L224618); Umsókn um takmarkað byggingarleyfi; Graftarleyfi – 1810032
Lögð er fram umsókn JR smíði ehf. dags. 15.10.2018 móttekin sama dag um takmarkað byggingarleyfi til að jarðvegsskipta undir fyrirhuguðu sumar- og gestahúsi á lóðinni Birkibyggð 8 (L224618) í Hrunamannahreppi.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi, sem einskorðast við jarðvegsskipti vegna aðkomu og jarðvegsskipti undir hús. Kalla skal eftir botnúttekt vegna jarðvegsskipta.
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál
6.  Bjarkarbraut 26 (L169174); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – viðbygging – 1810021
Lögð er fram umsókn Þrastar Sverrissonar og Heiðu Bjarkar Sturludóttur

dags. 27.09.2018 móttekin 05.10.2018 um byggingarleyfi til að byggja við sumarhús á lóðinni Bjarkarbraut 26 (L169174) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Heildarstærð sumarhúss eftir stækkun verður 97m2.

Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
7.  Öldubyggð 6 (L207686); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – stækkun – 1809070
Lögð er fram umsókn Ómars Inga Gylfasonar og Ingibjargar Erlendsdóttur

dags. 08.10.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja við sumarhús

á lóðinni Öldubyggð 6 (L198871) í Ásahreppi. Heildarstærð sumarhúss eftir stækkun verður 84,5m2.

Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
8.  Hestur lóð 45 (L168554); Umsókn um takmarkað byggingarleyfi; Graftarleyfi – 1810028
Lögð er fram umsókn Ara Konráðssonar dags. 10.10.2018 móttekin sama dag um takmarkað byggingarleyfi til að jarvegsskipta undir fyrirhuguðu sumarhúsi á lóðinni Hestur lóð 45 (L168554) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi, sem einskorðast við jarðvegsskipti vegna aðkomu og jarðvegsskipti undir hús. Kalla skal eftir botnúttekt vegna jarðvegsskipta.
9.  Þerneyjarsund 16 (L168698); Tilkynningarskyld framkvæmd; Sumarhús – viðbygging – 1810027
Lögð er fram tilkynning um tilkynningarskylda framkvæmd dags. 02.10.2018 móttekin 10.10.2018 frá löggildum hönnuði Jóni Guðmundssyni fyrir viðbyggingu

á sumarhúsi 27,2m2 á sumarhúsalóðinni Þerneyjarsund 16 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Heildarstærð eftir stækkun er 123,1m2. Þinglýstur umráðandi lóðar skv. Þjóðskrá Íslands er Þuríður Vatnsdal Lárusdóttir

Tilkynningarskyld framkvæmd skv.gr. 2.3.5 og 2.3.6 nr. 360/2016, sem er breyting á byggingarreglugerð 112/2012.
Samþykkt.
Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.5 byggingarreglugerðar 112/2012, og samræmast skipulagsáætlunum.
10. Minni-Bær land (L169227); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – 1810033
Lögð er fram umsókn Jónínu Haraldsdóttur dags. 10.10.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að flytja sumarhús 71,2m2 á lóðina Minni-Bær land (L169227) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál
11.  Tvísteinabraut 2: Umsókn um byggingarleyfi: Atvinnuhúsnæði – viðbygging – 1804044
Sótt er um leyfi til að byggja við atvinnuhúsnæðið að Tvísteinabraut 2, fastanúmer 236-0232, viðbygging við rými 0103 15 m2 sem á að nota fyrir reykofn.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
12. Stóra-Hof 1(L166601): Umsókn um byggingarleyfi: Þjónustuhús – 1809029
Lögð er fram umsókn frá Byggiðn – Félag byggingarmanna dags. 28.08.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi fyrir byggingu þjónustuhúss 124,1m2

á jörðinni Stóra-Hof (L166601) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
13.  Minni-Mástunga (L166582): Umsókn um byggingarleyfi: Aðstöðuhús mhl 14 – 1806076
Lögð er fram umsókn Finnboga Jóhannssonar dags. 19.06.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja aðstöðuhús sem verður samtals 32,6 m2 á lóðinni Minni-Mástungur (L166582) í Skeiða- og Gnúpverjahrepp
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
14.  Minni-Mástunga (L166582): Umsókn um byggingarleyfi: Aðstöðuhús mhl 15 – 1806077
Lögð er fram umsókn Finnboga Jóhannssonar dags. 19.06.2018 móttekin sama dag um byggingarleyfi til að byggja aðstöðuhús sem verður samtals 32,6 m2 á lóðinni Minni-Mástungur (L166582) í Skeiða- og Gnúpverjahrepp
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012.
Bláskógabyggð – Almenn mál
15. Brúnir 5 (L227336); Umsókn um byggingarleyfi; Sumarhús – 1810030
Lögð er fram umsókn Guðborgar Hildar Kolbeinsdóttur dags. 18.09.2018 móttekin 24.09.2018 um byggingarleyfi til að flytja sumarhús 90m2 á sumarhúsalóðina

Brúnir 5 (L227336) í Bláskógabyggð.

Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu.

 

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30

 

Davíð Sigurðsson    Stefán Short
 Lilja Ómarsdóttir