Skipulagsnefndarfundur nr. 337 haldinn dags. 25. nóvember

 

Skipulagsnefnd – 337. fundur haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 25. nóvember 2026 og hófst hann kl. 08:30 

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Ólafur Melsted.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá:

 

Ásahreppur – Almenn mál

 

1.   Ásmúlasel L224543; Úr landbúnaðarlandi í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2603067
Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032, eftir kynningu, sem tekur til Ásmúlasels L224543. Í breytingunni felst að skilgreindur verður nýr 7,2 ha landnotkunarreitur fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels þar sem gert er ráð fyrir allt að 10 frístundalóðum. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Ásahrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna nýs landnotkunarreits fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 gr. sömu laga að undangenginni samþykkt HMS.
Bláskógabyggð – Almenn mál

 

2.   Gullfosskaffi L193452; Byggingarreitur E, áhaldahús; Deiliskipulagsbreyting – 2611019
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Brattholts – Gullfosskaffis í Bláskógabyggð. Breytingin tekur til færslu á byggingarreit E þannig að hann verði að öllu leyti innan lands Gullfosskaffis ehf., L193452. Innan byggingarreitsins er gert ráð fyrir uppbyggingu áhaldahúss fyrir starfsemi á svæðinu, meðal annars til geymslu á sandi, salti og tækjum sem tengjast rekstrinum. Byggingarreiturinn er um 244 m² og er heimilt að reisa þar allt að 200 m² áhaldahús. Jafnframt eru gerðar minniháttar lagfæringar á deiliskipulagsuppdrætti til samræmis við núverandi aðstæður á svæðinu.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi Brattholts/Gullfosskaffis. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
3.   Lindarskógur 7 L199248; Stækkun á húsi, byggingarreit og mænishæð, vegtenging; Fyrirspurn – 2611026
Lögð er fram fyrirspurn Björgunarsveitarinnar Ingunnar vegna fyrirhugaðrar stækkunar á húsnæði sveitarinnar að Lindarskógi 7 á Laugarvatni, landeign L199248. Fyrirhugað er að lengja núverandi húsnæði úr 12 m í 15 m og breikka það úr 3 bilum í 6, auk þess sem gert er ráð fyrir að byggingin verði allt að 8,1 m að mænishæð og þakhalli 20°. Stækkunin er fyrirhuguð til vesturs og er ekki gert ráð fyrir að hún nái inn á aðliggjandi lóðir eða hafi áhrif á sameiginlega innkeyrslu. Með fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu til þess hvort fyrirhuguð stækkun geti farið fram á grundvelli grenndarkynningar eða hvort gera þurfi breytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að taka jákvætt í fyrirspurn um stækkun húsnæðis á lóðinni Lindarskógi 7 L199248. Fyrirhuguð starfsemi samræmist landnotkun svæðisins samkvæmt Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Nefndin bendir þó á að fyrirhuguð mænishæð, 8,1 m, er umfram hámarksmænishæð gildandi deiliskipulags, sem er 6,5 m. Jafnframt er farið út fyrir byggingarreit. Gera þarf því breytingu á deiliskipulagi áður en unnt er að heimila fyrirhugaða stækkun. Jafnframt verður deiliskipulagstillagan grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
4.   Miklaholt L167151; Miklaholt 1, 4 og dæluhús; Stofnun lóða – 2611005
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 05.10.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðirnar Miklaholt 1, stærð 4.957,1 m2, Miklaholt 4, stærð 1.089,9 m2 og Miklaholt dæluhús, stærð 121,4 m2 úr landi Miklaholts L167151.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
5.   Brú L167070; Brú 3; Stofnun lóðar – 2611025
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 09.11.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Brú 3, stærð 36020,4 m². landi Brúar L167070.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu
6.   Vörðubrekka 3 L236439, Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting; Stjórnsýslukæra til ÚUA nr. 2611010 – 2611034
Lagt er fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 21. október 2026, þar sem sveitarfélaginu er kynnt stjórnsýslukæra eigenda Vörðubrekku 3, L236439, vegna ákvörðunar sveitarstjórnar Bláskógabyggðar frá 21. október 2026 um synjun umsóknar um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.
Skipulagsnefnd tekur framlagða kæru til kynningar.
7.   Kjóastaðir 1 land 2 (L220934); byggingarheimild; upplýsingaskilti – 2611036
Móttekin var umsókn þann 16.11.2026 um leyfi til að setja tvö led upplýsingaskilti (9-12 m2, ca 30 m frá miðlínu þjóðvegar, hæð um 550-600 cm) við Kjóastaðir 1 land 2 (L220934) í Bláskógabyggð.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að fyrirhugað LED-upplýsingaskilti við Kjóastaði 1 land 2 (L220934) verði afgreitt sem breyting á deiliskipulagi á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verði óskað eftir umsögn frá Vegagerðinni.
Flóahreppur – Almenn mál

 

8.   Loftsstaðir-Vestri L165512; Loftstaðakot; Stofnun lóðar – 2611041
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 02.10.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Loftsstaðakot, stærð 67988,9 m2. úr landi Loftsstaða – Vestri L165512.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál

 

9.   Kiðjaberg lóð 107 L201721; Kiðjaberg L168257; Stækkun lóðar – 2411054
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 16.07.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Kiðjaberg 107 L201721 um 5038 m2 sem verður eftir stækkun 14.111 m2. Stækkunin kemur úr landi Kiðjabergs L168257.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Hrunamannahreppur – Almenn mál

 

10.   Silfurtún L166897; Skilgreining svæðis; Deiliskipulagsbreyting – 2607012
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til Silfurtúns L166897 í Hrunamannahrepp. Í breytingunni felst að byggð verði lágreist íbúðarbyggð á landi Silfurtúns þar sem nú er garðyrkjustöð en sú starfsemi er víkjandi. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
11.   Efra-Sel golfvöllur L203094; Fagra-Sel 1 og Fagra-Sel 2; Stofnun lóða – 2611031
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi ferðaþjónustu- og golfvallarsvæðis við Efra-Sel í Hrunamannahreppi, á landi Fagra-Sels L203094. Breytingin felur í sér stækkun skipulagssvæðisins og stofnun nýrrar lóðar við hlið núverandi lóðar Fagra-Sels, sem fær staðfangið Fagra-Sel 2, en ný lóð fær staðfangið Fagra-Sel 1. Nýja lóðin er ætluð fyrir geymslu, verkstæði eða sambærilega starfsemi og er gert ráð fyrir allt að 300 m² byggingu á einni hæð. Aðkoma að lóðunum verður sameiginleg frá Hvítárholtsvegi og jafnframt er gert ráð fyrir sameiginlegu hreinsivirki fyrir báðar lóðir. Jafnframt eru gerðar breytingar á byggingarreitum og minniháttar lagfæringar á uppdrætti.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verður deiliskipulagstillagan grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
12.   Unnarholt II L220401; Unnarholtslundur; Stofnun lóðar – 2611039
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.10.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Unnarholtslund, stærð 33.000,0 m2 úr landi Unnarholts II L220401.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál

 

13.   Vorhús L233199; Skilgreining lands, íbúðarhús, skemma og gestahús; Lögbýli; Deiliskipulag – 2502050
Lögð er fram að nýju tillaga að deiliskipulagi sem tekur til jarðarinnar Vorhúsa L233199 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Deiliskipulagið tekur til allrar jarðarinnar, sem er um 2,8 ha að stærð, og felur í sér skilgreiningu á einum byggingarreit þar sem gert er ráð fyrir einu íbúðarhúsi með bílskúr, einu gestahúsi og einni skemmu/geymslu. Hámarksbyggingarmagn innan byggingarreits er 840 m². Tillagan var áður auglýst frá 13. mars til og með 25. apríl 2025. Þar sem ekki var birt auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda innan árs frá því að athugasemdafresti lauk er málið lagt fram að nýju til afgreiðslu og auglýsingar samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Uppdráttur og greinargerð hafa jafnframt verið uppfærð með hliðsjón af athugasemdum sveitarfélagsins, dags. 16. nóvember 2026.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að deiliskipulagið verði samþykkt. Þar sem meira en ár er liðið síðan athugasemdafrestur við tillöguna rann út mælist skipulagsnefnd til þess að málið verði auglýst á nýjan leik á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins
Fundargerðir til staðfestingar

 

14.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 11.11.2026 – 26-271 – 2611002F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-271, dags. 11.11.2026.
15.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 18.11.2026 – 26-272 – 2611003F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-272, dags. 18.11.2026.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30