Skipulagsnefndarfundur nr. 334. dags. 15. október 2026

Skipulagsnefnd – 334. fundur  haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 14. október 2026 og hófst hann kl. 08:30 

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Ólafur Melsted.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá:

 

Ásahreppur – Almenn mál
1.   Sigöldustöð L239397; Stækkun og aukið afl; Frárennslisskurður og bráðabirgðastífla; Framkvæmdarleyfi – 2608030
Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 25. september 2026, ásamt fylgiskjölum. Sigöldustöð er vatnsaflsvirkjun á Holtamannaafrétti. Fyrirhuguð er stækkun hennar um allt að 65 MW þar sem fjórðu vélinni er bætt við í stöðvarhús stöðvarinnar og fjórðu þrýstipípunni í fyrirliggjandi steyptum stokki sem liggur undir inntaksstíflunni. Uppsett afl virkjunarinnar er nú 150 MW en verður með stækkuninni aukið í 215 MW.
Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundin við ofangreindar framkvæmdir. Stækkun stöðvarhúss og lagning fallpípu eru byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og kalla því ekki á framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi fyrir vinnubúðir og aðra aðstöðu sköpun sem tekur til sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra, en hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti útgáfu þess á fundi sínum þann 22. janúar 2025.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsnefnd UTU telur sýnt fram á í fyrirliggjandi gögnum að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna. Nefndin telur jafnframt nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboði af orku til orkuskipta.
Skipulagsnefnd UTU mælist til við Hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð verði samþykkt sem greinargerð og umsögn hreppsnefndar Ásahrepps um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin leggur áherslu á að leyfið verði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi drögum að greinargerð skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við framangreint, og önnur ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012.
2.   Sigöldustöð; Breyttir þættir og útfærsla mannvirkja; Deiliskipulagsbreyting – 2606011
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Gerð er breyting á ýmsum þáttum vegna nákvæmari útfærslu mannvirkja en þar helst eru að bætt er við lóð og byggingarreitum fyrir vinnubúðir, skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból. Nokkrum aðkomuvegum er hnikað til á uppdrætti, s.s. að aðrennslisskurði, auk þess sem hreinsivirki er bætt við á byggingarreit B1. Þá eru vatnsból og lagnir að vatnstanki sýnd á uppdrætti og vatnsverndarsvæði stækkað.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra ásamt greinargerð og uppdráttum. Nefndin telur þær breytingar sem lagðar eru til vera eðlilega þróun og nánari útfærslu þeirra mannvirkja og innviða sem nauðsynlegir eru vegna starfsemi og áframhaldandi uppbyggingar á svæðinu. Breytingin felur meðal annars í sér afmörkun nýrrar lóðar og byggingarreita fyrir vinnubúðir, skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból, tilfærslu aðkomuvega, staðsetningu hreinsivirkis innan byggingarreits B1, auk skilgreiningar á vatnsbóli, lögnum og stækkun vatnsverndarsvæðis. Að mati skipulagsnefndar UTU eru breytingarnar í samræmi við meginmarkmið gildandi skipulags á svæðinu og fela ekki í sér verulega breytingu á landnotkun eða ásýnd svæðisins frá því sem áður hefur verið gert ráð fyrir. Nefndin telur að með framlagðri tillögu hafi verið gerð fullnægjandi grein fyrir þeim breytingum sem lagðar eru til og að þær stuðli að bættri nýtingu og rekstraröryggi mannvirkja á svæðinu. Að mati nefndarinnar eru áhrif breytinganna á umhverfi og landslag óveruleg og ekki þess eðlis að tilefni sé til frekari athugasemda.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
3.   Kastalabrekka (L165297); byggingarheimild; starfsmannahús – 2609046
Móttekin var umsókn þann 16.09.2026 um byggingarheimild fyrir 73,6 m2 starfsmannahús á jörðinni Kastalabrekka (L165297) í Ásahreppi. Fyrir liggur vettvangsskoðun minjavarðar hjá Minjastofnun Íslands
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.   Hárlaugsstaðir 1, lóð 2 L195822; Byggingarmagn og skilgreining; Fyrirspurn – 2610014
Lögð fram fyrirspurn er varðar Hárlaugsstaði 1, lóð 2, L195822, Í fyrirspurninni er óskað eftir heimild til að setja niður geymslu að stærð 14,9 fm við hlið sumarhúss á lóðinni einnig hvort hægt sé byggja 200 til 250 fm skemmu á lóðinni í framtíðinni.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess að hreppsnefnd Ásahrepps taki annars vegar jákvætt í fyrirspurn um uppsetningu allt að 14,9 m² geymslu við sumarhús á lóðinni, enda verði staðsetning og útfærsla mannvirkisins í samræmi við gildandi skipulag og önnur ákvæði sem um svæðið gilda. Hins vegar, varðandi fyrirspurn um 200-250 m² skemmu telur skipulagsnefnd UTU ekki unnt að taka afstöðu til þess á grundvelli fyrirliggjandi gagna og óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða notkun, staðsetningu, umfang og útfærslu mannvirkisins.
5.   Ás 3 lóð I-8 L204637; Þingás; Breytt heiti lóðar – 2610005
Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðar. Óskað er eftir því að lóðin Ás 3 lóð I-8 L204637 fái heitið Þingás.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi staðfangabreytingu úr Ás 3 lóð I-8 L204637 í Þingás. Skipulagsnefnd mælist til að hreppsnefnd Ásahrepps geri ekki athugasemdir við staðfangabreytinguna.
Bláskógabyggð – Almenn mál
6.   Skálabrekka Vestri L229116; Lindarbrekkugata, Unnargata og Guðrúnargata; Lega, stærð og fjöldi lóða; Deiliskipulagsbreyting – 2504067
Lögð er fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku-Vestri, sem felur í sér breytingar á legu og stærð lóða og byggingarreita, auk þess sem lóðum er fjölgað úr 21 í 23. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Bláskógabyggðar 26. júní 2026 og fyrri auglýsing felld úr gildi vegna formgalla á málsmeðferð. Jafnframt er lögð fram afgreiðsla HMS, dags. 25. september 2026, þar sem fram kemur að stofnunin geti ekki tekið afstöðu til forms deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem umsögn Umhverfis- og Orkustofnunar liggur ekki fyrir, meðal annars um fjarlægð bygginga frá Þingvallavatni. Í tölvupósti frá Umhverfis- og Orkustofnun, dags. 29. september 2026, kemur fram að stofnunin veiti almennt ekki umsagnir um skipulagsmál nema sérstaklega sé óskað eftir þeim og að hún hafi ekki gert athugasemdir í málinu.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir erindi HMS, dags. 25. september 2026, vegna breytingar á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku-Vestri.
Nefndin bendir á að í tölvupósti Umhverfis- og orkustofnunar, dags. 29. september 2026, komi skýrt fram að stofnunin veiti almennt ekki umsagnir um skipulagsmál nema sérstakt tilefni sé til og að stofnunin hafi ekki talið ástæðu til að gera athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu eða veita sérstaka umsögn vegna hennar. Að mati nefndarinnar verður því ekki ráðið að efnislegar athugasemdir liggi fyrir af hálfu stofnunarinnar varðandi fjarlægð bygginga frá Þingvallavatni eða önnur atriði er varða deiliskipulagstillöguna. Nefndin telur að málið hafi sætt fullnægjandi kynningu og lögmætri málsmeðferð samkvæmt skipulagslögum. Engar athugasemdir bárust við auglýsta tillögu. Jafnframt liggur fyrir að heimildir aðalskipulags gera ráð fyrir allt að 79 frístundalóðum innan svæðisins en breytingartillagan felur í sér 23 lóðir að lokinni breytingu. Skipulagsnefnd telur að með framangreindum skýringum hafi verið brugðist við þeim atriðum sem HMS óskaði nánari upplýsinga um og gerir ekki frekari athugasemdir við málið.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að staðfesta samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar að nýju og fela skipulagsfulltrúa að skila framangreindum skýringum og umbeðnum gögnum inn í Skipulagsgátt til lokaafgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda og taki gildi við þá birtingu, sbr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.   Brattholt 3 L223782; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting – 2609019
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Brattholts 3, L223782. Í breytingunni felst breyting á legu byggingarreits, aukning byggingarheimilda og uppfærsla skilmála til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggð að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
8.   Bergsstaðir lóð 2 L200941; Skilgreining byggingarreits og aðkomuvegur; Deiliskipulagsbreyting – 2610002
Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Bergsstaðir lóð 2 (L200941) í Bláskógarbyggð. Lóðin var hluti af frístundarbyggðinni Bergsstaðir (F84) en var breytt í verslunar- og þjónustulóð með aðalskipulagsbreytingunni sem var samþykkt af sveitarstjórn Bláskógarbyggðar þann 01.04.2026 og staðfest af HMS þann 07.05.2026. Heimilt er að vera með gistingu fyrir allt að 14 gesti á lóðinni, skv. flokki I og II í reglugerð. Í skipulagsbreytingunni er skilgreindur nýr byggingareitur þar sem heimilt er að byggja allt að 3 smáhýsi til útleigu. Á lóðinni innan núverandi byggingareits er í dag 65,8 m² sumarhús til útleigu. Núverandi aðkomuvegur að lóð 3 verður færður niður fyrir nýjan byggingareit.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
9.   Vörðubrekka 3 L236439; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2610008
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar þar sem óskað er eftir fráviki frá deiliskipulagi á lóð Vörðubrekku 3, Landareign L236439.Óskað er eftir því að fá að auka hámarks byggigarmagn í 269 fm.Samkvæmt deiliskipulagi frá 2007, skipulagsnúmer 12143, Málsnúmer 201403058. Skal bygging ekki vera stærri en 200m2, nýtingarhlutfall ekki vera meira en 0,03. Þar kemur einnig fram að lóðir séu 6.900 m2.Samkvæmt Landeignaskrá HMS er landareign L236439, Vörðubrekka 3 skráð 7.104 m2. Miðað við 7.104 m2 væri nýtt nýtingarhlutfall lóðar 0,038. Gert er ráð fyrir húsi á einni hæð, þar sem mænishæð er vel undir þeim viðmiðum sem koma fram í deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að synja erindinu um aukið byggingarmagn á lóðinni Vörðubrekkukoti 3, L236439, þar sem fyrirhuguð breyting fer yfir leyfilegt nýtingarhlutfall 0,03 og samræmist því ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins og Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027.
10.   Brautarhóll lóð L206903; Fjölgun lóða og byggingarreitum breytt; Deiliskipulagsbreyting – 2610022
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðir við Vegholt 1a-7a og 9-18 í Reykholti. Í breytingunni felst að lóðunum Vegholti 4 og 6 verður breytt í þrjár lóðir, nr. 2, 4 og 6, ásamt því að byggingarreitir á svæðinu verða færðir nær lóðamörkum og heimilaðir í 10 m fjarlægð frá lóðamörkum sem snúa að Vegholti. Jafnframt verður bætt við aðkomu að lóð nr. 2.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
11.   Snorrastaðir L168101; Afmarkaðar 4 lóðir og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2606062
Lögð er að nýju fram deiliskipulagsbreyting fyrir hluta frístundabyggðar í Snorrastaðalandi vestan Stekkár í Bláskógabyggð, að lokinni auglýsingu. Í breytingunni felst m.a. að landinu Snorrastöðum L168101 er skipt upp í fjórar lóðir, settir byggingarskilmálar fyrir þær og lóðamörk gagnvart Snorrastöðum 11 færð til samræmis við mæld mörk. Jafnframt er gert ráð fyrir nýrri vegtengingu að Hrannarbóli úr suðvestri. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og hafa verið lagðar fram ásamt viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.   Faxaflöt L241163; Bætt við landi úr Heiði L167104 og Heiði 1 L173711; Breytt stærð lóðar – 2610013
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 16.09.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Faxaflöt L241163 um 683 m2. Stækkunin kemur úr Heiði L167104 og Heiði 1 L173711.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar geri ekki athugasemd við erindið.
Flóahreppur – Almenn mál
13.   Álftadæl L207710; Mið-Meðalholt L165492; Breytt afmörkun lóða – 2608084
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 20.08.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að jarðirnar Álftadæl L207710 og Mið – Meðalholt L165492 geri breytingu á eignarhaldi sín á milli (makaskipti)upp á 9,0 ha. Skráðar stærðir breytast ekki, eingöngu afmörkun jarðanna.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
14.   Skálmholt land D L190542; Skilgreining landbúnaðarlands; Deiliskipulag – 2608025
Lögð fram tillaga nýs deiliskipulags sem nær til 9.7 ha.spildu. Skálmholt úr landi D, L 190542 í landi Skálmholts í sveitarfélaginu Flóahreppi. Á skipulagssvæðinu eru þrír byggingareitir. Um miðja landareignina er byggingareitur A, þar sem gert er ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum, verkstæði, geymslu og gróðurhúsi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.   Gaulverjabær L165480; Staðfesting á afmörkun jarðar – 2505067
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 31.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar hnitun landamerkja og staðfestingu á stærð lands Gaulverjabæjar L165480 í Flóahr.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál
16.   Klausturhólar gjallnámur L168965; Efnistaka í Seyðishólum náma E24; Framkvæmdarleyfi – 2506103
Lögð er fram að nýju umsókn ásamt fylgigögnum frá Suðurtaki ehf er varðar útgáfu framkvæmdaleyfis. Í umsókninni felst beiðni um efnistöku á svæði E24, Seyðishólum. Fyrirhugað er að taka um 435.000 m3 af efni úr námunni á næstu 15 árum eða um 29.000 m3 á ári að meðaltali. Efnið er til notkunar í nágrenninu ásamt því að ráðgert er að árlega verði 12.000-15.000 m3 af gjalli ætlaðir til útflutnings. Tilgangur framkvæmdaleyfis er að auki afmörkun námusvæðisins og frágangur á því að efnistöku lokinni. Vísað er til umhverfismats um fyrirætlanir leyfisumsækjanda hvað þetta varðar. Framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu E24 sem samþykkt var í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þann 02.10.2024 var fellt úr gildi með úrskurði Úrskurðarnefndar Umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 151/2024. Tekið hefur verið tillit til röksemda sem úrskurður 151/2024 byggðist á. Efnismagnið hefur verið minnkað og minna magn ætlað til útflutnings auk þess sem fyrirhugað er að takmarka efnisflutninga við rúma 6 mánuði á ári, þ.e. frá 1. apríl-30. júní og 20. ágúst-31. nóvember ár hvert. Efnistökusvæðið er 4,4 ha en ekki 6,5 ha eins og gert er ráð fyrir í greinargerð með aðalskipulagi Grímsnes og Grafningshrepps.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða framkvæmdaleyfisumsókn Suðurtaks ehf., umhverfismatsskýrslu framkvæmdarinnar, álit HMS, umsögn Náttúruverndarstofnunar Íslands og fyrirliggjandi drög að greinargerð sveitarfélagsins vegna afgreiðslu framkvæmdaleyfis.
Nefndin telur að með framlagðri greinargerð hafi verið gerð fullnægjandi grein fyrir umfangi framkvæmdarinnar, umhverfisáhrifum hennar, mótvægisaðgerðum, vöktun og skilyrðum leyfisveitingar. Þá telur nefndin að brugðist hafi verið við þeim atriðum sem lágu til grundvallar úrskurðum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 98/2023 og 151/2024, meðal annars með frekari gagnaöflun, umsögn lögbundins umsagnaraðila, breyttu umfangi framkvæmdarinnar og ítarlegum rökstuðningi um nauðsyn framkvæmdarinnar.
Nefndin tekur undir það mat sem fram kemur í greinargerð sveitarfélagsins að áframhaldandi efnistaka muni hafa staðbundin og óafturkræf áhrif á jarðmyndun sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna, umfangs núverandi rasks á svæðinu, þeirra skilyrða sem sett eru um framkvæmdina og þeirra samfélagslegu hagsmuna sem framkvæmdin þjónar telur nefndin þó að skilyrði um brýna nauðsyn séu uppfyllt í þessu tilviki.
Skipulagsnefnd UTU telur jafnframt að framkvæmdin, með þeim skilyrðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og framkvæmdaleyfinu, sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps og að fullnægjandi grein hafi verið gerð fyrir samræmi leyfisveitingar við niðurstöðu umhverfismats framkvæmdarinnar og álit Skipulagsstofnunar.
Skipulagsnefnd UTU mælist því til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja fyrirliggjandi greinargerð sveitarfélagsins sem rökstuðning fyrir útgáfu framkvæmdaleyfisins og að framkvæmdaleyfi vegna áframhaldandi efnistöku úr Seyðishólum (E24) verði gefið út í samræmi við framlagða umsókn Suðurtaks ehf., fyrirliggjandi gögn og þau skilyrði sem fram koma í greinargerðinni og framkvæmdaleyfinu.
Skipulagsnefnd UTU mælist jafnframt til þess að sveitarstjórn feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið að uppfylltum skilyrðum 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi og öðrum viðeigandi lagaákvæðum.
17.   Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshreppi, að lokinni kynningu og auglýsingu. Deiliskipulagið tekur til um 15 ha hluta námusvæðis E17 og felst m.a. í uppskiptingu efnistökusvæðisins, skilmálum um efnistöku, efnislosun, landmótun og frágang svæðisins. Gert er ráð fyrir efnistöku allt að 150.000 m³ og að svæðið verði nýtt og frágengið á næstu 15 árum, með lokun þess árið 2040. Jafnframt hefur verið gerð breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 er skipt upp og nýtt efnistökusvæði E32 skilgreint fyrir nyrsta hluta svæðisins. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningarstigi og hafa verið lagðar fram ásamt viðbrögðum og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.   Vaðholt 2 L219744 í landi Ormsstaða; Sameining lóða; Deiliskipulag – 2609028
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Vaðholts 2, L219744 . Í breytingunni felst meðal annars að lóðir nr. 4, 6, 8 og 10 sameinast lóðinni Vaðholt 2.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
19.   Oddsholt 22 L194797; Byggingarreitur færður; Deiliskipulagsbreyting – 2606082
Lögð fram ný tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingar sem felur í sér breytingu á byggingarreit á Oddsholi 22 um 7 metra til norðurs og aðlögun að lóðarmörkum austan megin. Þá færast syðri mörk bygggingarreitar um það bil 19 m. til norðurs til að viðhalda sömu stærð byggingarreits og upphaflega var.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
20.   Írafossstöð; Selfosslína 1 – endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Deiliskipulagsbreyting – 2610021
Lögð er fram ný tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Írafoss- og Ljósafossstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að núverandi 66 kV loftlína Selfosslínu 1 frá Ljósafossstöð að mastri nr. 8 sunnan Írafossstöðvar verði lögð í jörð sem 132 kV jarðstrengur. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á tengivirki við Írafossstöð, þar á meðal stækkun byggingarreits fyrir tengivirkishús og að hluti Sogslínu 2 verði lagður í jörð. Deiliskipulagsbreytingin felur þannig fyrst og fremst í sér að núverandi raforkumannvirki verði endurnýjuð og hluti þeirra færður í jörð, í samræmi við fyrirhugaða uppbyggingu raforkukerfisins á svæðinu. Gert er ráð fyrir að áhrif framkvæmdarinnar verði að mestu tímabundin og að vandað verði til frágangs að framkvæmdum loknum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
21.   Öndverðarnes 1 L168299; Hitaveitulögn; Framkvæmdarleyfi – 2610004
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til lagningar nýrrar hitaveitu við Biskupstungnabraut í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdin felst í lagningu nýrra hitaveitulagna frá Biskupstungnabraut að Kirkjuhólsbraut og Klapparhólsbraut, ásamt tengingum við núverandi lagnakerfi. Framkvæmdin er áfangaskipt og felur jafnframt í sér að hluta eldri lagna verði lokað eða þær lagðar af.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæða umsögn frá Vegagerðinni.
22.   Nesjavellir L170825; Jarðhitahola IDDP3; Framkvæmdarleyfi – 2610023
Lögð er fram umsókn Orkuveitunnar um framkvæmdaleyfi vegna borunar jarðhitaholu IDDP-3 á Nesjavöllum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sótt er um leyfi fyrir tveimur mögulegum staðsetningum innan vinnslusvæðis Nesjavallavirkjunar, en aðeins verður borað á annarri þeirra. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér borun allt að 3.000 m djúprar stefnuboraðrar háhitaholu í rannsóknarskyni. Eðli, umfang og markmið framkvæmdarinnar eru óbreytt frá fyrri umsókn, en staðsetning annars valkostar hefur verið uppfærð á grundvelli frekari jarðfræðilegra og tæknilegra rannsókna.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða umsókn Orkuveitunnar um framkvæmdaleyfi vegna borunar rannsóknarholunnar IDDP-3 á Nesjavöllum ásamt fylgigögnum.
Nefndin telur að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gildandi deiliskipulag Nesjavallavirkjunar. Fyrir liggur að umfang, eðli og markmið framkvæmdarinnar eru óbreytt frá fyrri leyfisveitingu en annar staðarvalkostur hefur verið uppfærður á grundvelli frekari jarðfræðilegra og tæknilegra rannsókna. Jafnframt liggur fyrir að aðeins verður borað á annarri þeirrar staðsetningar sem umsóknin tekur til.
Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein hafi verið gerð fyrir framkvæmdinni í framlögðum gögnum og gerir ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis vegna borunar jarðhitaholunnar IDDP-3 á Nesjavöllum verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Skipulagsnefnd UTU mælist jafnframt til þess að sveitarstjórn feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið að uppfylltum skilyrðum laganna og í samræmi við framlagða umsókn og fylgigögn.
23.   Úlfljótsvatn L170830; Stígagerð; Fyrirspurn – 2610025
Lögð er fram styrkumsókn Skógræktarfélags Íslands vegna fyrirhugaðrar vegagerðar á útivistar- og skógræktarsvæði félagsins við Úlfljótsvatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Umsóknin tekur til lagningar um 2,5 km langs vegar innan svæðisins, sem ætlað er að bæta aðgengi almennings að útivistarsvæðinu og tengingu við skátasvæðið, auk þess að nýtast við skógarumhirðu, jólatrjáatekju og öryggis- og viðbragðsstarf. Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdarinnar er 4,9 m.kr. og er óskað eftir styrk fyrir þeirri fjárhæð.
Skipulagsnefnd UTU vísar erindinu til sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.
24.   Hvítárbraut 41 L169735; Staðfest afmörkun lóðar – 2609041
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 10.07.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar, Hvítárbraut 41 L169735 í Grímsnes- og Grafningshr.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps geri ekki athugasemd við erindið.
Hrunamannahreppur – Almenn mál
25.   Fannborgartangi 17 L236083; Fjölgun íbúða í raðhúsi 17-21; Fyrirspurn – 2610010
Lögð er fram fyrirspurn vegna fjölgunar íbúðarhluta í raðhúsi á lóðinni Fannborgartanga 17-21 í Hrunamannahreppi, L236083. Óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til þess að fjölga íbúðarhlutum úr þremur í sjö, þar sem gert er ráð fyrir 70-90 m² íbúðum innan núverandi byggingarreits.
Skipulagsnefnd UTU vísar erindinu til sveitarstjórnar Hrunamannahrepps.
26.   Syðra-Langholt 1 L166817; Syðra-Langholt 18; Stofnun lóðar – 2609054
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 17.09.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varaðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Syðra – Langholt 18, 2560,3 m2 úr landi Syðra – Langholts 1 L166817.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu með fyrirvara um samþykkta kvöð um aðkomu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Hrunamannahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál

 

27.   Eystra-Geldingaholt 1 L166543; Rauðaberg A (millispilda); Staðfest mörk lóða og breytt heiti lóðar – 2609004
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 15.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun nýrrar lóðar. Merkjalýsing þessi er í nokkrum liðum.

Um ræðir aðgerðir sem tengdar eru jörðinni Eystra-Geldingaholti 1 L166543.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt L166644 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt L166645 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 1 L190878 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar. Einnig er óskað eftir því að stofnuð verði ný lóð (Árgerði), stærð 5000 m2 úr upprunalandi Eystra ? Geldingaholts 1 L190878.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 1 L193425 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 5 L194376 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar. Einnig er óskað eftir því að Eystra ? Geldingaholt 5 L194376 stækki um 1978,6 m2 og kemur stækkunin úr Eystra ? Geldingaholti L193425 (millispilda sem sameinast L194376).
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 1 L193425 fái staðfangið Rauðaberg.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 5 L194376 fái staðfangið Rauðaberg 1.
Óskað er eftir að Klúka L166546 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt 1 L194247 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra- Geldingaholt lóð L186175 verði hnitsett.
Óskað er eftir að Eystra – Geldingaholt lóð L191709 verði hnitsett.

Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og staðfanga breytingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
28.   Kílhraun land L191805; Úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði; Nýjar heitavatnsborholur; Aðalskipulagsbreyting – 2610003
Lögð er fram lýsing aðal- og deiliskipulagsbreytingar fyrir Kílhraun land, L191805, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í breytingunni felst að afmarkað verði um 12,2 ha iðnaðarsvæði vegna fyrirhugaðrar heitavatnsöflunar, þar með talið nýrra heitavatnsborhola og mannvirkja og lagna þeim tengdum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. og 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
29.   Kálfhóll 2 L166477; Kálfhóll 2E; Stofnun lóðar og breyting á staðfangi. – 2610012
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.04.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Kálfhól 2E, 17951,9 m2 úr landeigninni Kálfhóli 2 L166477 í Skeiða- og Gnúpverjahr.
Einnig er óskað eftir því að breyting verði gerð á staðfanginu Kálfhóli L166513 að það verði Kálfhóll 2D.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og nafnabreytingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps geri ekki athugasemd við erindið.
Fundargerðir til staðfestingar

 

30.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 24.09.2026 – 26-264 – 2609005F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-264, dags. 24.09.2026
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa.
31.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 30.09.2026 – 26-265 – 2609006F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-265, dags. 30.09.2026
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa.
32.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-266 – 2610001F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-266, dags. 07.10.2026
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa.

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30