Afgreiðslur byggingarfulltrúa nr. 266 – 7. október 2026

 

 

Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-266, miðvikudaginn 7. október 2026.

Dagskrá:

Hrunamannahreppur – Almenn mál

1.   Unnarholt lóð (L197108); byggingarheimild og tilkynningarskyld framkvæmd; breytt notkun mhl 02 og ný utanhúss klæðning húsa – 2609044
Móttekin var umsókn þann 16.09.2026 um tilkynningarskylda framkvæmd, ný utanhúss klæðning á íbúðarhús og bílskúr, einnig byggingarheimild að breyta notkun á bílskúr í geymslu/gufu, fastanúmer 220 3878 og 222 6414 á íbúðarhúsalóðinni Unnarholt lóð (L197108) í Hrunamannahreppi.
Meðfylgjandi gögn uppfylla gr. 2.3.6 byggingarreglugerðar 112/2012, sem tilkynningarskyld framkvæmd og samræmist skipulagsáætlunum og byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
 
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál

2.    Réttarhólsbraut 42 (L213002); byggingarheimild; sumarhús – stækkun – 2605089
Erindi sett að nýju til afgreiðslu, áður samþykkt 51,7 m2 sumarhús. Móttekin var ný aðalteikning þann 01.10.2026, sótt er um byggingarheimild fyrir 11,9 m2 viðbyggingu við sumarhús á Réttarholtsbraut 42 (L213002) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Heildarstærð eftir stækkun verður 63,6 m2.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
3.   Grímkelsstaðir 12 (L170844); byggingarheimild; gestahús – 2506099
Erindi sett að nýju til afgreiðslu, skipulagsnefnd hefur tekið erindið til umfjöllunar og einnig liggur fyrir afstaða ráðuneytis um undanþágu, fjarlægð byggingar frá lóðarmörkum. Móttekin var umsókn þann 11.06.2025 um byggingarheimild fyrir 22,1 m2 gestahúsi á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 12 (L170844) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
4.   Langirimi 44 (L235651); byggingarheimild; sumarhús – 2610001
Móttekin var umsókn þann 30.09.2026 um byggingarheimild fyrir 160,2 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Langirimi 44 (L235651) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
5.   Þverholtsvegur 26 (L195815); byggingarheimild; sumarhús – 2610017
Móttekin var umsókn þann 01.10.2026 um byggingarheimild fyrir 41 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Þverholtsvegur 26 (L195815) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál

6.   Votamýri 2A (236834); niðurrif; votheysturn mhl 05 – 2610019
Móttekin var umsókn þann 04.10.2026 um byggingarheimild að fjarlægja 12,6 m2 votheysturn mhl 05, byggingarár 1958 á landinu Votamýri 2A (L236834) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Niðurrif mannvirkja fellur undir umfangsflokk 1 skv. byggingarreglugerð gr. 1.3.2 og er háð byggingarheimild.
Farga skal efni á viðurkenndan hátt.
 
7.   Stekkur (L166686); byggingarheimild; sumarhús – viðbygging – 2610020
Móttekin var umsókn þann 05.10.2026 um byggingarheimild fyrir 4,5 m2 viðbyggingu við sumarhús á sumarbústaðalandinu Stekkur (L166686) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Heildarstærð eftir stækkun verður 49,3 m2.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
8.   Tvísteinabraut 6 (L224438); byggingarheimild; geymsla – 2609050
Móttekin var umsókn þann 18.09.2026 um byggingarheimild fyrir 95 m2 brennslustöð/geymslu á iðnaðar- og athafnalóðinni Tvísteinabraut 6 (L224438) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
Bláskógabyggð – Almenn mál

9.    Hvannalundur 1 (L170438); byggingarheimild; sumarhús – tengibygging við gestahús og geymslu – 2610016
Móttekin var umsókn þann 01.10.2026 um byggingarheimild fyrir tengingu mhl 01 sumarhús og mhl 03 gestahús með tengiþaki og byggja 28 m2 geymslu mhl 02 á sumarbústaðalandinu Hvannalundur 1 (L170438) í Bláskógabyggð. Heildarstærð mhl 01 eftir stækkun og sameiningu verður 54,8 m2.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
Hrunamannahreppur – Umsagnir og vísanir

10.   Garður (L166748); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2606085
Móttekinn var nýr tölvupóstur þann 06.10.2026 frá fulltrúa sýslumanns, breyting, óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 02 0101 íbúð frá Agnieszka Jadwiga Szwaja fyrir hönd Gamla laugin ehf., kt. 670709 – 2130 á jörðinni Garður (F220 3206) í Hrunamannahreppi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II.
 
Grímsnes- og Grafningshr. – Umsagnir og vísanir

11.   Sogsbakki 3 (L200859); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2610018
Móttekinn var tölvupóstur þann 02.10.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Ellen B. Valgerðardóttur fyrir hönd E Bé Vaff ehf., kt. 250373 – 3419 á sumarbústaðalandinu Sogsbakki 3 (F230 05212) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lagst er gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.
 
Flóahreppur – Umsagnir og vísanir

12.    Mosató 3 hótel (L225133); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting og veitingar – 2609068
Móttekinn var tölvupóstur þann 23.09.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. IV (A) Hótel, rýmisnúmer 01 0101 hótel – 70 manns gisting, 03 0101 aðstöðuhús – 20 manns í útirými, 01 0101 hótel – 150 manns í veitingarými frá Árna E. Leóssyni fyrir 360 hótel ehf., kt. 441225 – 0400 á viðskipta- og þjónustulóðinni Mosató 3 hótel (F236 3573) í Flóahreppi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfi í fl IV Gisting er einungis heimiluð fyrir 62 gesti í gistingu skv. aðalskipulagi Flóahrepps.
 

 Davíð Sigurðsson

Byggingarfulltrúi UTU bs.