27 ágú Skipulagsnefndarfundur haldinn dags. 26. ágúst 2026
Skipulagsnefnd – 331. fundur haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 26. ágúst 2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.
Fundargerð ritaði: Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi
Dagskrá:
| Ásahreppur | ||
| 1. | Sigalda – Sigölduvirkjun; Tilfærsla á Sigöldulínum 2, 3, 4 og Vatnsfellslínu 1; Framkvæmdaleyfi – 2606016 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Sigölduvirkjunar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst færsla á Sigöldulínum 2, 3, 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar flutningskerfisins við nýtt tengivirki Sigöldu. Sjá nánari lýsingu í skjalinu „Inngangur“. | ||
| Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar. Nefndin telur framkvæmdina ekki til þess fallna að breyta landslagi eða ásýnd á svæðinu miðað við núverandi ástand og telur umhverfisáhrif hennar óveruleg. Nefndin telur nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð verði samþykkt sem umsögn hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina og mælist til að hreppsnefnd Ásahrepps gefi út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda vegna færslu á Sigöldulínum 2, 3 og 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar við nýtt tengivirki Sigöldu, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
| Bláskógabyggð | ||
| 2. | Stekkjarbraut 12 L195709; Rekstrarleyfi í flokki II; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2607010 | |
| Lögð er fram umsókn sem tekur til Stekkjarbrautar 12 L195709 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að heimilt verði að stunda rekstrarleyfisskylda útleigu í flokki II á lóðinni. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess að sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykki breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrautar 12 L195709 í Bláskógabyggð með fyrirvara um samþykki allra sumarhúseigenda innan frístundasvæðisins Helludalur F103. Eftir að samþykki allra lóðarhafa liggur fyrir skal breytingin unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Samkvæmt heimildum innan kafla 2.3.2 innan aðalskipulags Bláskógabyggðar 2015-2027 er útleiga sumarhúsa heimild á grundvelli reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald með þeim takmörkunum að samþykki eigenda sumarhúsa á svæðinu þurfi að liggja fyrir komi fram ósk um atvinnurekstur. | ||
| 3. | Fremstaver L238156; Lagning háspennustrengs frá Kjalveg að Fremstaveri; Framkvæmdarleyfi – 2608033 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna Fremstavers L238156 í Bláskógabyggð. Framkvæmdin felur í sér lagningu um 3.000 metra langs háspennustrengs frá Kjalvegi við Grjótá að Fremstaveri. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu. | ||
| 4. | Lyngbraut 5 L190167; Stækkun heimtaugar; Framkvæmdarleyfi – 2608034 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna Lyngbrautar 5, L190167, í Bláskógabyggð. Framkvæmdin felur í sér stækkun heimtaugar að Lyngbraut 5 og vegna þess þarf að svera upp streng sem liggur frá Biskupstungnabraut meðfram Lyngbraut á um 250 metra kafla. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| Flóahreppur | ||
| 5. | Austurvegur 69F L239260; Viðbótarland; Breytt stærð lóðar – 2608021 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 21.07.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Austurvegur 69F, L239260 um 1.213 m² úr Laugardælur land, L206114. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við erindið. | ||
| 6. | Skálatjörn lóð 5 L213794, 6 L213793 og 7 L201305; Broddaborg, Broddaborg 2 og Broddaborg 3; Breytt heiti lóða – 2608023 | |
| Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóða. Óskað er eftir að lóðirnar Skálatjörn lóð 5 L213794, 6 L213793 og 7 L201305 fái heitin Broddaborg, Broddaborg 2 og Broddaborg 3. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við heitin Broddaborg, Broddaborg 2 og Broddaborg 3 skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps samþykki erindið. | ||
| 7. | Mýrar 4 L238879; Fagurmýri; Breytt heiti lóðar – 2608027 | |
| Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðar. Óskað er eftir að lóðin Mýrar 4 L238879 fái heitið Fagurmýri. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við heitið Fagurmýri skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps samþykki erindið. | ||
| 8. | Mýrar 6 L238881; Fagurmýri 1; Breytt heiti lóðar – 2608028 | |
| Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðar. Óskað er eftir að lóðin Mýrar 6 L238881 fái heitið Fagurmýri 1. | ||
| Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við heitið Fagurmýri 1 skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps samþykki erindið. | ||
| Grímsnes- og Grafningshreppur | ||
| 9. | Berjaás 16 L234109; Færsla á innkeyrslu; Deiliskipulagsbreyting – 2608042 | |
| Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Berjaáss 16 L234109. Í breytingunni felst að innkoma að lóðinni er færð af vesturhlið yfir á norðurhlið hennar. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. |
||
| 10. | Ljósafossskóli L168468; Skilmálabreyting; Aðalskipulagsbreyting – 2403043 | |
| Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er við Ljósafossskóla L168468. Með breytingunni felst heimild fyrir aukinni gististarfsemi og uppbyggingu á svæðinu. Samkvæmt núverandi skilmálum aðalskipulags er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 30 manns á svæðinu. Innan breytingar er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 manns. Gistingin getur verið í ýmiskonar húsum og tjöldum. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 11. | Ljósafossskóli L168468; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulag – 2403049 | |
| Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til viðskipta- og þjónustulóðar Ljósafossskóla L168468. Í deiliskipulaginu felst heimild til frekari uppbyggingar gististarfsemi á svæðinu, þar á meðal fjölgun gistirýma og uppbygging nýrra gistieininga innan afmarkaðs byggingarreits. | ||
| Skipulagsnefnd UTU frestar málinu þar til fullnægjandi gögn hafa borist. | ||
| 12. | Selmýrarvegur 9 L168407; Skilmálabreyting; Fyrirspurn – 2608043 | |
| Lögð er fram fyrirspurn er varðar Selmýrarveg 9 L168407. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar til breytinga á skilmálum deiliskipulagsins úr 3% nýtingarhlutfalli í 5%. Þá er einnig óskað eftir að fella út skilmála um hámarksstærð aukahúsa á lóðinni. | ||
| Skipulagsnefnd UTU telur að umræddar breytingar geti haft áhrif á yfirbragð, byggðamynstur og heildarskipulag svæðisins og kalli því á heildstætt mat á áhrifum þeirra gagnvart markmiðum og forsendum gildandi deiliskipulags. Skipulagsnefnd UTU tekur jákvætt í að fyrirspurnin verði skoðuð nánar, enda verði lögð fram formleg umsókn um breytingu á deiliskipulagi fyrir deiliskipulagssvæðið í heild sinni. |
||
| 13. | Kiðjaberg lóð 101, L201981 og lóð 102, L215467; Breytt lóðarmörk; Deiliskipulagsbreyting – 2608049 | |
| Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðarmarka Kiðjabergs lóðar 101, L201981 og lóðar 102, L215467. Í breytingunni felst að lóð 101 minnkar um 5.300 fm og lóð 102 stækkar um 5.300 fm. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Gríms- og Grafningshrepps að erindinu verði synjað þar sem fyrirhuguð breyting á lóðarmörkum samræmist ekki skilmálum í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og lóðaskipan á deiliskipulagssvæðinu. | ||
| 14. | Minni-Borg lóð B L198597; Bætt við lóð 12a; Deiliskipulagsbreyting – 2608059 | |
| Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Minni-Borgar lóð B L198597. Í breytingunni felst að bætt er við einni nýrri lóð á skipulagssvæðið, lóð 12a. Lóðin er 1.400 fm að stærð. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. | ||
| Hrunamannahreppur | ||
| 15. | Silfurtún L166897; Íbúðarbyggð og breytt skilgreining lands; Aðalskipulagsbreyting – 2603007 | |
| Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Í breytingunni felst að hluti lands Silfurtúns, L166897, á Flúðum, sem nú er skilgreindur sem landbúnaðarsvæði, verði breytt í íbúðarbyggð. Samhliða verður unnin breyting á deiliskipulagi miðsvæðis og garðyrkjulóða á Flúðum vegna uppbyggingar nýs íbúðarhverfis. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum. | ||
| Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. | ||
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur | ||
| 16. | Maríulundur L218709; Stækkun byggingarreits; Deiliskipulagsbreyting – 2608031 | |
| Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Maríulundar L218709. Breytingin felst í breyttri afmörkun byggingarreits þannig að núverandi bygging verði innan hans. Einnig verður heimilt að reisa tvö gestahús á lóðinni, allt að 20 m² hvort. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. | ||
| 17. | Þéttbýlið við Árnes; Tvísteinabraut 6; Athafnasvæði í iðnaðarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2608089 | |
| Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Breytingin snýr að lóð innan þéttbýlisins við Árnes. Breytingin tekur til lóðarinnar Tvísteinabraut 6 sem er innan athafnasvæðis sem auðkennt er AT1. Landnotkunarflokkur lóðarinnar breytist úr því að vera athafnasvæði í það að verða iðnaðarsvæði. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 með fyrirvara um uppfærð gögn. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30