18 ágú Skipulagsnefndarfundur nr. 330. dags. 14. ágúst 2026
Skipulagsnefnd – 330. fundur haldinn að Laugarvatni, föstudaginn 14. ágúst 2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðmundur Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Sólrún Margrét Ólafsdóttir og Lilja Ómarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi
Dagskrá:
| Ásahreppur | ||
| 1. | Ásmundarstaðir 1 25; Skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag – 2607024 | |
| Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur til Ásmundarstaða 1 L187658 og Ásmundarstaða 3 L165267. Í deiliskipulaginu felst að tvær nýjar íbúðarlóðir eru stofnaðar. Heimilt að byggja allt að 3 hús á lóð, s.s. íbúðarhús með bílageymslu, gestahús/geymslu eða gróðurhús. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að samþykkja deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn. | ||
| 2. | Ás 3 land II-3land L204644; Grænilundur; Breytt heiti lóðar – 2607026 | |
| Lögð er fram umsókn er varðar nýjan staðvísi fyrir L204644. Óskað er eftir því að Ás 3 II-3 land fái nafnið Grænilundur. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Ásahrepps að málinu verði hafnað þar sem að nýtt staðfang uppfyllir ekki skilyrði reglugerðar 577/2017 um skráningu staðfanga.
|
||
| Bláskógabyggð | ||
| 3. | Brekka L167067; Tenging við Veitur; Framkvæmdarleyfi – 2607004 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Brekku L167067 í Bláskógabyggð. Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna tímabundinnar tengingar vatnsveitu í Úthlíð við vatnsveitu sem þjónar Brekku, Miðhúsum og sumarhúsabyggð. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 4. | Myrkholt 167133 L167133; Breytt heiti lóðar – 2607035 | |
| Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 23.06.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar afmörkun og leiðréttingu á stærð fasteignar. Óskað er eftir afmörkun og leiðréttingu á stærð á Myrkholti L167133. | ||
| Skipulagsnefnd UTU hefur yfirfarið fyrirliggjandi merkjalýsingu og gerir ekki athugasemdir við hana. Nefndin leggur til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar afgreiði erindið án athugasemda. | ||
| 5. | Bergsstaðir L189399; Hækkuð mænishæð; Deiliskipulagsbreyting – 2608026 | |
| Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir Bergsstaði L189399. Í breytingunni felst að mesta leyfilega mænishæð er breytt úr 6,0 m í 7,5 m. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. | ||
| 6. | Einiholt 3 L192608; Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting – 2604006 | |
| Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til Einiholts 3 L192608 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 7. | Framafréttur L223995 við Kjalveg; Vinnsla í námu 22155 í Grjótá; Framkvæmdaleyfi – 2608029 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Framafrétta L223995 við Kjalveg í Bláskógabyggð. Óskað er eftir framkvæmdaleyfi til að hefja vinnslu á malarslitlagi í námu nr. 22155 í Grjótá. Áætlað er að framleiða um 7000 m3 af malarslitlagi. Efnið verður haugsett í námunni og er áætluð notkun þess sumarið 2027. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| Flóahreppur | ||
| 8. | Mosató 5 L230347; Byggingarreitur færður; Aðalskipulagsbreyting – 2608007 | |
| Lögð er fram fyrirspurn er varðar Mosató 5 L230347. Í fyrirspurninni er óskað eftir heimild til að færa byggingarreit á lóðinni um 7 m til vesturs, nær veginum en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Við breytinguna minnkar fjarlægð milli vegstæðis og byggingarreits úr 10 m í 3 m. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að taka jákvætt í erindið. | ||
| 9. | Laugardælur land L206114; Gatnagerð við Austurveg 69; Framkvæmdarleyfi – 2608009 | |
| Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Laugardælna land L206114 í Flóahrepp. Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við gatnagerð austan við lóð Austurvegar 69. Í framkvæmdinni felast jarðvegsskipti niður á fastan botn, fyllingar og styrktarlag, einnig er fyrirhuguð samhliða gatnaframkvæmdum færsla á vatnssölumæli vatnsveitu Árborgar austur fyrir vegstæðið. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| Grímsnes- og Grafningshreppur | ||
| 10. | Kjalbraut 11 L169789; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting – 2607009 | |
| Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar við Efri-Markarbraut, Birkibraut, Kjarrbraut og Kjalbraut í Vaðnesi. Í breytingunni felst að heimilt er að reisa frístundahús, aukahús allt að 40 m2 og geymslu allt að 25 m2 innan Kjalbrautar 11 L169789. Hámarks nýtingarhlutfall lóðar helst óbreytt. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn  Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, að því gefnu að skilmálabreytingin nái til alls skipulagssvæðisins en ekki einungis Kjalbrautar 11. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. | ||
| 11. | Norðurbyggð 12 L219571; Útveggir hækkaðir; Deiliskipulagsbreyting – 2608010 | |
| Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir frístundasvæðið Krókur. Í breytingunni felst að mesta leyfilega vegghæð frístundahúsa er breytt úr 2,5 m í 4,1 m. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. | ||
| 12. | Kerhraun E-Hluti L204193; Byggingarheimildir rýmkaðar; Deiliskipulagsbreyting – 2608011 | |
| Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir frístundasvæðið Kerhraun E-svæði, L204193. Í breytingunni felst rýmkun á byggingarheimildum á svæðinu. Byggingarmagn á lóðinni verðir samtals 250m2. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. | ||
| 13. | Álftavatn 7 L168312 í landi Ásgarðs; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2604014 | |
| Lögð er fram umsókn, eftir grenndarkynningu, sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að hámarksstærð aukahúsa verður felld út. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins. | ||
| Skipulagsnefnd UTU frestar afgreiðslu málsins vegna athugasemda sem bárust og hönnuður beðinn um að bregðast við athugasemdum. Uppfærð tillaga verður grenndarkynnt samkv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | ||
| 14. | Sogsvegur 30 L169553 í Norðurkotslandi; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting – 2605020 | |
| Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sogsvegar 30, L169553 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Í breytingunni felst að stærð og lega lóðarinnar breytist í samræmi við merkjalýsingu. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að synja framlagðri breytingu á deiliskipulagi svæðisins vegna fjölda athugasemda sem bárust á kynningartíma.
|
||
| 15. | Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057 | |
| Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim. | ||
| Skipulagsnefnd UTU tekur til umfjöllunar umsögn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 vegna fyrirhugaðs skógræktar- og landgræðslusvæðis á Stóra-Hálsi (L170827). Í umsögn HMS kemur fram að stofnunin geri ekki athugasemdir við auglýsingu tillögunnar, að því gefnu að brugðist verði við framkomnum ábendingum. Ábendingarnar lúta meðal annars að flokkun landbúnaðarlands, rökstuðningi fyrir afmörkun og umfangi skógræktarsvæðisins, sérstaklega þar sem um gott ræktunarland er að ræða, sem og umfjöllun um afturkræfni skógræktar og áhrif hennar á framtíðarnýtingu lands. Skipulagsnefnd leggur til að umsögninni verði svarað og skipulagsgögn uppfærð í samræmi við framkomnar ábendingar. | ||
| 16. | Kvíanes L239311; Efri-Brú Kvíanes 4 L238165; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2510070 | |
| Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags fyrir Efri-Brú Kvíanes L191871 og Efri-Brú Kvíanes 4 L238165 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir frístundabyggð fyrir samtals 14 lóðum. | ||
| Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. | ||
| Hrunamannahreppur | ||
| 17. | Hverabakki 1 spilda i L207699; Úr Opnu svæði í Íbúðabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2606080 | |
| Lögð er fram fyrirspurn er varðar Hverabakka 1 spildu i, L207699. Í fyrirspurninni felst að óskað er eftir heimild til að breyta aðalskipulagi Hrunamannahrepps og vinna deiliskipulag fyrir mögulega íbúðabyggð. | ||
| Skipulagsnefnd UTU vísar málinu til sveitarstjórnar Hrunamannahrepps. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30