Afgreiðslur byggingarfulltrúa nr. 257 –08.07.2026

Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-257 , miðvikudaginn 8. júlí 2026

Dagskrá:

Hrunamannahreppur – Almenn mál

1.   Tungufell (L166833); byggingarheimild; vinnustofa mhl 16 – 2607023
Móttekin var umsókn þann 06.07.2027 um byggingarheimild að flytja 63,2 m2 vinnustofu á jörðina Tungufell (L166833) í Hrunamannahreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál

2.   Bjarkarlækur (L224049); byggingarheimild; hesthús – 2607015
Móttekin var umsókn þann 03.07.2026 um byggingarheimild fyrir 142,4 m2 hesthúsi á landinu Bjarkarlækur (L224049) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
3.    Kiðjaberg lóð 133 (L179243); byggingarheimild; sumarhús og gróðurhús – 2603092
Móttekin var umsókn þann 23.03.2026 um byggingarheimild fyrir 127,7 m2 sumarhúsi, 24,7 m2 gróðurhúsi og flytja eldra 57,1 m2 sumarhús til á sumarbústaðalandinu Kiðjaberg lóð 133 (L1792463) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lóðin er 5.350 m² og samkvæmt gildandi skipulagsskilmálum er hámarksnýtingarhlutfall 3%, eða 160 m². Fyrir er skráð 57 m² hús á lóðinni sem fyrirhugað er að færa til innan lóðar. Sótt er um 127 m² viðbótarbyggingu auk 24 m² gróðurhúss. Samanlagt byggingarmagn verður því 208 m² og er umfram heimilaða stærð samkvæmt skipulagsskilmálum.
Þá kveða gildandi skipulagsskilmálar á um að aukahús megi að hámarki vera 40 m² að stærð. Fyrirhuguð viðbótarbygging er því ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags.
Gróðurhús er jafnframt sýnt utan byggingarreits á innsendum teikningum, sem ekki er heimilt samkvæmt gildandi skipulagi.
Athugasemdir voru sendar hönnuði 8. apríl 2026 þar sem óskað var eftir lagfæringum á erindinu.
Engin svör eða uppfærð gögn hafa borist vegna þeirra athugasemda.
Með vísan til framangreinds er erindinu synjað.

 
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál

4.   Eystra-Geldingaholt l (L194247); byggingarheimild; sumarhús – 2605014
Erindi sett að nýju til afgreiðslu, grenndarkynningu er lokið. Móttekin var umsókn þann 05.05.2026 um byggingarheimild fyrir 115,1 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Eystra-Geldingaholt I (L194247) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
5.   Húsatóftir 4A (L222395); byggingarheimild; gestahús – 2605015
Erindi sett að nýju til afgreiðslu, grenndarkynningu er lokið. Móttekin var umsókn þann 05.01.2026 um byggingarheimild fyrir 52 m2 gestahúsi á sumarbústaðalandinu Húsatóftir 4A (L222395) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
Bláskógabyggð – Almenn mál

6.   Hrosshagi 5B (L233479); byggingarleyfi; einbýlishús – 2607003
Móttekin var umsókn þann 01.07.2026 um byggingarleyfi fyrir 151,5 m2 einbýlishúsi með sambyggðum bílskúr á íbúðarhúsalóðinni Hrosshagi 5B (L233479) í Bláskógabyggð.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.
-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
– Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
– Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
7.    Fellskot (L167087); umsókn um byggingarheimild; reiðskemma mhl 20 og breyta notkun á mhl 7, 13, 17 og 18 – 2606024
Erindi sett að nýju til afgreiðslu. Móttekin var umsókn þann 02.06.2026 um byggingarheimild fyrir 798,5 m2 reiðskemmu mhl 20, sem mun tengjast núverandi byggingum einnig er sótt um breytingu á notkun á mhl 07 hlöðu 171 m2 í reiðhöll, mhl 13 fjósi 526,5 m2 í hesthús, mhl 17 hlaða 45,6 m2 í geymslu og mhl 18 hnakkageymsla 29,3 m2 í kaffistofu á jörðinni Fellskot (L167087) í Bláskógabyggð.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
8.   Traustatún 11 (L240825); byggingarleyfi; einbýlishús – 2607007
Móttekin var umsókn þann 01.07.2026 um byggingarleyfi fyrir 221,6 m2 einbýlishúsi með innbyggðum bílskúr á íbúðarhúsalóðinni Traustatún 11 (L240825) í Bláskógabyggð.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.
-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
– Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
– Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
9.   Traustatún 13 (L240826); byggingarleyfi; einbýlishús – 2607018
Móttekin var umsókn þann 03.07.2026 um byggingarleyfi fyrir 289,7 m2 einbýlishúsi með innbyggðum bílskúr á íbúðarhúsalóðinni Traustatún 13 (L240826) í Bláskógabyggð.
Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir.
-Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn.
– Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða.
– Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
10.    Hjálmsstaðir 2A (L222889); byggingarheimild; íbúðarhús – viðbygging – 2605055
Móttekin var umsókn þann 16.05.2026 um byggingarheimild fyrir breytingu á innri rýmum og 124,6 m2 stækkun á einbýlishúsi á íbúðarhúsalóðinni Hjálmsstaðir 2A (L222889) í Bláskógabyggð. Heildarstærð eftir stækkun verður 317,4 m2.
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
– Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda.
– Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
– Leyfisgjöld þurfa að vera greidd.
Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
 
11.   Skúlagata 1 (L167381); niðurrif; geymsla mhl 01 – 2606100
Móttekin var umsókn þann 25.06.2026 um að fjarlægja mhl 01 geymsla , byggingarár 1945 á íbúðar- og atvinnulóðinni Skúlagata 1 (L167381) í Bláskógabyggð.
Niðurrif mannvirkja fellur undir umfangsflokk 1 skv. byggingarreglugerð gr. 1.3.2 og er háð byggingarheimild.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefið út þegar yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð sína á framkvæmd liggur fyrir skv. 2.3.8 gr. byggingarreglugerðar.
Farga skal efni á viðurkenndan hátt.
 
Bláskógabyggð – Umsagnir og vísanir

12.   Prestabraut 6 (L236403); Umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2607030
Móttekinn var tölvupóstur þann 06.07.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Smára B. Kolbeinssyni fyrir hönd Ferðaþjónustuna Eyvík ehf., kt. 460720 – 0520 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 6 (F252 9098) í Bláskógabyggð.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II.
 

Davíð Sigurðsson

Byggingarfulltrúi UTU bs.