Skipulagsnefndarfundur nr. 326. dags. 27. maí 2026

 

Skipulagsnefnd – 326. fundur  haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 27. maí 2026 og hófst hann kl. 08:30

Fundinn sátu:

Björn Kristinn Pálmarsson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi

Dagskrá: 

 

  Ásahreppur
1.   Vörðuholt L209712; Vegagerð; Framkvæmdarleyfi – 2605060
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Vörðuholts L209712 í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst vegagerð frá innkeyrsluvegi við Vörðuholt að bílastæði lóðarinnar.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.   Vörðuholt (L209712); byggingarheimild; geymsla – 2605045
Fyrir liggur umsókn móttekin 12.5.2026 um byggingarheimild til að byggja 160 m2 geymslu á jörðinni Vörðuholt (L209712) í Ásahreppi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
3.   Ásmúli Múli (L165328); byggingarheimild; sumarhús – 2605056
Móttekin var umsókn þann 18.05.2026 um byggingarheimild fyrir 56 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Ásmúli Múli (L165328) í Ásahrepp.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
4.   Ásmundarstaðir 1 3/5 L165265; Ásmundarstaðir 1B; Stofnun lóðar – 2509052
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 17.02.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar skiptingu jarðar. Óskað er eftir að stofna 65,6 ha landeign, Ásmundarstaðir 1B, úr jörðinni Ásmundarstaðir 1 3/5 L165265 skv. meðfylgjandi merkjalýsingu.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að hreppsnefnd Ásahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar vegtengingar.
Bláskógabyggð
5.   Miklaholt lóð L167423; Úr sumarbústaðalandi í íbúðarlóð; Breytt notkun lóðar – 2605068
Lögð er fram ósk um að skráningu fasteignarinnar F2205605 verði breytt úr sumarbústað í íbúðarhús.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að erindinu sé synjað þar sem að það samræmist ekki heimildum aðalskipulags Bláskógabyggðar.
Flóahreppur
6.   Miklaholthellir land L214031; Miklaholtshellir 2 L223302; Breytt afmörkun lóða – 2605048
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar breytingar á afmörkun á spildunum Miklaholtshellir 2 L223302 og Miklaholtshellir land L214031. Við breytinguna breytist stærð beggja spildnanna.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
7.   Súluholt 2F L239899; Súluholt 2F vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605075
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts 2F L239899. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 132 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
8.   Súluholt lóð 5 L219091; Súluholt lóð 5 vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605078
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts lóð 5, L219091. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 326 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
9.   Súluholt L166385; Súluholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605072
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts L166385. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 29.560 m2 að stærð og er landið í tveimur skikum.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
10.   Breiðholt L166409; Breiðholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605084
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Breiðholts L166409. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 14.607 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
11.   Súluholt 2 og 2B L228667; Súluholt 2A og B vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605073
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts 2A og 2B L228667. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 356 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
12.   Skyggnisholt L166382; Skyggnisholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605081
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Skyggnisholts L166382. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 1.433 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
13.   Önundarholt L166408; Önundarholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605083
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Önundarholts L166408. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 11.590 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
14.   Tjarnir L212512; Tjarnir vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605071
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Tjarna L212512. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 7.277 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
15.   Súluholt L216736; Súluholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605076
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-02) úr landi Súluholts L216736. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 29.560 m2 að stærð og er landið í tveimur skikum.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
16.   Súluholt Tungur L239901; Súluholt Tungur vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605080
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts Tungur L239901. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 2.643 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
17.   Súluholtshjáleiga L166391; Súluholtshjáleiga vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605077
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholtshjáleigu L166391. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 23.216 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
18.   Austur-Meðalholt L165466; Austur-Meðalholt vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605069
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Austur – Meðalholts, L165466. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 12.284 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
19.   Súluholt 3 L176262; Súluholt 3 vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605079
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts 3, L176262. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 587 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
20.   Rútsstaða-Norðurkot L165494; Rútsstaða-Norðurkot vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605070
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Rútsstaða-Norðurkots, L165494. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 23 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
21.   Súluholt land L204584; Súluholt land vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605074
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Súluholts land, L204584. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 6.389 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
22.   Skyggnisholt lóð 2 L219096; Skyggnisholt lóð 2 vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605082
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Skyggnisholts lóð 2, L219096. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 4.317 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
23.   Önundarholt land L209239; Önundarholt land vegsvæði; Stofnun lóðar – 2605085
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 21.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Önundarholtsvegar (311-01) úr landi Önundarholts land, L209239. Vegsvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 27.561 m2 að stærð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Grímsnes- og Grafningshreppur
24.   Öldusteinstún 2, L240634 og 4, L240636, Minna Mosfelli; Uppbygging; Fyrirspurn – 2605066
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Minna Mosfell í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að reisa 7 smáhýsi á lóðum nr. 2, L240634 og 4, L240636 í Öldusteinstúni.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn að hafna erindinu þar sem að það samræmist ekki heimildum í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps, þar er skýrt tekið fram að einungis er heimilt að byggja eitt frístundarhús ásamt aukahúsi/gestahúsi og geymslu á hverri lóð. Þetta er einnig tekið fram í deiliskipulagi svæðisins, Öldusteinstún – frístundabyggð.
25.   Villingavatn L170831; Fjölnytjaskógrækt; Framkvæmdarleyfi – 2605062
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á Villingavatni L170831 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stundað verður fjölnytjaskógrækt til að rækta upp skóg sem mun binda kolefni, framleiða timbur, endurheimta jarðveg og veita aðra vistkerfisþjónustu skóga.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
26.   Syðri-Brú L169607; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2605052
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar L169607 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst aukin heimild til nýtingarhlutfalls á hverri lóð innan skipulagssvæðisins.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
27.   Berjaás 16 L234109; Færsla á innkeyrslu; Fyrirspurn – 2605029
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til Berjaáss 16 L234109 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að færa innkeyrslu á lóðina.
Skipulagsnefnd UTU bendir á að þetta kallar á breytingu á deiliskipulagi svæðisins sem verður í framhaldinu grenndarkynnt fyrir öllu deiliskipulagssvæðinu.
28.   Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna nýs skógræktar- og landgræðslusvæðis á Stóra-Hálsi (L170827) og að heimiluð verði skógrækt á allt að 100 ha verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Hrunamannahreppur
29.   Hrunamannaafréttur L223267 þjóðlenda; Lindarvirkjun og stofnlögn að Flúðum; Framkvæmdarleyfi – 2604034
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hrunamannaafrétta L223267 þjóðlenda í Hrunamannahrepp. Framkvæmdin felst í virkjun lindar í Blákvísl á Hrunamannaafrétti og lagningu stofnlagnar frá vatnslind að Flúðum.
Skipulagsnefnd UTU vísar erindinu til sveitarstjórnar Hrunamannahrepps.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
30.   Hæll 1 L166569; Hæll 1- Skjónuleyni; Stofnun lóðar – 2605034
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar landeignar. Óskað er eftir að stofna 0,57 ha landeign, Skjónuleyni, úr upprunalandinu Hæll 1 L166569.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Fundargerðir til staðfestingar
31.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 20.05.2026 – 26-251 – 2605002F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-251, dags. 20.05.2026

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30