Skipulagsnefndarfundur nr. 323 dags. 15. apríl 2026

 

Skipulagsnefnd – 323. fundur haldinn Fjarfundur, miðvikudaginn 15. apríl 2026 og hófst hann kl. 08:00

Fundinn sátu:

Helgi Kjartansson, Björn Kristinn Pálmarsson, Jón Bjarnason, Walter Fannar Kristjánsson, Haraldur Þór Jónsson, Ísleifur Jónasson, Sigríður Kristjánsdóttir, Davíð Sigurðsson og Sólrún Margrét Ólafsdóttir.

Fundargerð ritaði:  Sólrún Margrét Ólafsdóttir, sérfræðingur í skipulagsmálum

Dagskrá: 

  Ásahreppur
1.   Hrauneyjafossvirkjun og Sigöldustöð, Holtamannaafrétti L221893; Endurnýjun ljósleiðara; Framkvæmdarleyfi – 2604020
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hrauneyjafossstöðvar og Sigöldustöðvar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst endurnýjun ljósleiðara á milli þessara tveggja stöðva.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi, er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
2.   Lindarbær 1A L165304; Skilgreining svæðis; Byggingarreitir og aðkoma; Deiliskipulag – 2603077
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Lindarbæjar 1A L165304 í Ásahreppi. Deiliskipulagið tekur til 3,76 ha afmörkunar á 15 ha spildu undir 3 byggingarreiti fyrir bílskúr við eldra íbúðarhús, nýtt íbúðarhús og bílskúr, gestahús og skemmu/fjárhús/hesthús/reiðhöll með sambyggt gróðurhús. Skipulagssvæðið tekur yfir 3 byggingarreiti og aðkomu að svæðinu. Innan byggingarreita skikans er heimilt að byggja allt að 2000 m2 í samræmi við byggingarheimildir á landbúnaðarlandi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Ásahrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Jafnframt er málið grenndarkynnt innan deiliskipulagssvæðisins.
3.   Þjóðólfshagi 1. br á Aðalskipulagi Rangárþings; Umsagnarbeiðni – 2603080
Lögð er fram til umsagnar aðalskipulagsbreyting sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Svæðið sem breytingin nær til er í landi Þjóðólfshaga 1 (L165164). Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland en breyta á 6,4 ha svæði í verslunar- og þjónustusvæði sem ætlað er undir ferðaþjónustu.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn og vísar málinu til kynningar og umsagnar sveitarstjórnar Ásahrepps.
 
Bláskógabyggð
4.   Einiholt 3 L192608; Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting – 2604006
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Einiholts 3 L192608 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
5.   Sandamýri L223807; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting – 2604004
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sandamýrar L223807 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarmagn fyrir gripahús og atvinnuhúsnæði eykst úr 250 m2 í 500 m2.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
6.   Efsti-Dalur 2 L167631; Breytt aðkoma og breyttar lóðastærðir; Deiliskipulagsbreyting – 2603103
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Efsta-Dals 2 L167631 í Bláskógabyggð. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingu á efsta hluta á efri aðkomu Efsta-Dals 2, stofnun þriggja nýrra lóða og breytingu á útmörkum þriggja lóða.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
7.   Hálshúsavegur 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III; Deiliskipulagsbreyting – 2603085
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hálshúsavegar 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III í Bláskógabyggð. Tilgangur deiliskipulagsbreytingarinnar er að breyta afmörkun lóða þannig að tvær lóðir verða sameinaðar í eina, staðsetja núverandi hús innan byggingarreits og bæta
við hnitaskrá. Nýja lóðin fær staðfangið Hálshólsvegur 4 og er aðkoma að lóðinni um núverandi veg. Einn byggingarreitur er á lóðinni skv. teikningu. Innan hans er heimilt að stækka
núverandi frístundahús þannig að það sé allt að 300 m2. Auk þess er heimilt að byggja tvö minni frístundahús með hámarksbyggingarmagn 100 m2.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að erindinu verði hafnað þar sem að það samræmist ekki stefnumörkun frístundabyggðar samkvæmt aðalskipulagi Bláskógabyggðar.
8.   Miðhús L167415 Miðhúsaskógi; Byggingarreitur miðlunartanks; Deiliskipulagsbreyting – 2602007
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Miðhúsa L167415 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir miðlunartank austan við þjónustumiðstöðina og 14m frá lóðamörkum. Vatnstankurinn er 6,1m að hæð og 12,5m í ummál, rúmmál um 75m2. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum sem sýna heildar umfang verkefnisins.
9.   Heiðarbær við Þingvallavatn; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2206013
Lögð er fram uppfærð tillaga deiliskipulags frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn. Markmið deiliskipulagsins er að hafa til staðar deiliskipulag sem gefur heildarmynd af svæðinu þar sem lóðarmörk, aðgengi og gönguleiðir eru skýrar. Jafnframt að fylgja eftir stefnu Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um að til skuli vera deiliskipulag fyrir eldri frístundasvæði. Með deiliskipulagsgerðinni er unnið að því að samþætta lóðamörk, auka skilvirkni við umsýslu á lóðum ásamt því að ramma inn svæðið og nýtingu þess í heild og einstaka þætti þess s.s. innviði, náttúruvernd og aðgengi. Hættumat vegna ofanflóða hefur verið unnið fyrir tillöguna auk þess sem fyrir liggur höfnun á undanþágu vegna skilgreiningar byggingarreita frá Þingvallavatni og Grafningsvegi-Efri. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Bláskógarbyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að með því hafi verið brugðist við athugasemdum Skipulagsstofnunar þann 25. september 2025, eftir að deiliskipulag var samþykkt af sveitarstjórn í fyrra skipti 20. ágúst 2025 og sent Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna, áður en deiliskipulagið var samþykkt 20. ágúst 2025 og telur ekki ástæðu til frekari viðbragða. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.   Hrosshagi L167118; Hrosshagi A; Stofnun lóðar – 2604015
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 25.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðarinnar Hrosshaga A úr landi Hrosshaga, L167118 og samruna hennar við Hrosshaga lóð, L197564.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
11.   Eiríksbakki lóð L167083; Staðfest stærð lóðar – 2604005
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 23.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Eiríksbakki lóð, L167083 í Bláskógabyggð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
12.   Hrísholt 3-3a L189917; Staðfest afmörkun og stærð lóðar – 2603084
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 20.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Hrísholts 3-3a, L189917 í Bláskógabyggð.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
 
Flóahreppur
13.   Hólshús (L165488); byggingarleyfi; fjárhús mhl 05 – breyting á notkun í íbúðarrými – 2602078
Móttekin var umsókn þann 24.02.2026 um byggingarleyfi að stækka og breyta notkun á fjárhúsum mhl 05 í íbúðarrými á jörðinni Hólshús (L165488) í Flóahreppi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd UTU hvetur landeigendur til að gera deiliskipulag ef kemur til frekari uppbygging.
14.   Svarfhólsvöllur L166322; Hliðrun og stækkun byggingarreits; Deiliskipulagsbreyting – 2604001
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Svarfhólsvallar L166322 í Flóahreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitur stækkar og hliðrast til en fyrirhugað er að byggja þar aðstöðuhús.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Flóahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
15.   Merkurlaut 3 L166422; Merkurlaut 3B; Stofnun lóðar – 2604002
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 31.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Merkurlaut 3B úr lóðinni Merkurlaut 3 L166422.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Flóahrepps samþykki erindið.
 
Grímsnes- og Grafningshreppur
16.   Álftavatn 7 L168312 í landi Ásgarðs; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2604014
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Álftavatns 7 L168312 í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að hámarks stærð aukahúsa verður felld út.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
17.   Tjaldafell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2604012
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Tjaldafells skálasvæðis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðum er fjölgað og settir skilmálar fyrir hverja lóð, s.s. byggingarheimildir, nýtingarhlutfall lóða og fjöldi gesta. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi fráveitu. Lóðir eru á stærðarbilinu 5000 – 7500 m2. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir austan Tjaldafells, með heimild fyrir fleiri gestum í gistingu. Stærð skipulagssvæðis er um 15 ha. Samhliða er unnið að breytingu á aðalskipulagi og er deiliskipulagið í samræmi við það. Við gildistöku nýs deiliskipulags fellur eldra deiliskipulag úr gildi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að deiliskipulagið verði samþykkt og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
18.   Nesjavallavirkjun L170925; Borun jarðhitaholu; Framkvæmdarleyfi – 2604003
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavallavirkjunar L170925 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í framkvæmdinni felst borun jarðhitaholu IDDP3 á Nesjavöllum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
19.   Vaðnesvegur 2 L169743; Breytt hnit og stærð lóða; Deiliskipulagsbreyting – 2603089
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Vaðnesveg 2, L169743, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst leiðrétting á stærð lands og hnitsetningu þess.
Fyrir liggja skrifleg samþykki allra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta og sæta grenndarkynningu, með áritun á kynningargögn, þar sem fram kemur að ekki séu gerðar athugasemdir við breytinguna. Með vísan til 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er því heimilt að stytta grenndarkynningartímabilið. Skipulagsnefnd UTU telur að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
20.   Álfabyggð í landi Miðengis; Álfabyggð 8, 10, 12 og 42; Deiliskipulagsbreyting – 2603083
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Álfabyggðar í landi Miðengis í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að byggingarreitir á lóðum nr. 8, 10, 12 og 42 verða samfelldir og staðsettir í 10 m fjarlægð frá lóðamörkum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar Íslands. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
21.   Klausturhólar 3 L168960; Staðfest mörk og stærð lóðar – 2604017
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 26.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Klausturhólar 3, L168960 í Grímsnes- og Grafningshrepp.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
22.   Krókur land L219678; Krókur 1; Staðfest heiti lóðar – 2604016
Lögð er fram umsókn um nýtt heiti á staðfangi vegna Króks lands, L219678. Óskað eftir því að nýtt heiti jarðarinnar verði Krókur 1.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við staðfangið Krókur 1. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps geri ekki athugasemd við staðfangið Krókur 1.
Hrunamannahreppur
23.   Efra-Sel golfvöllur L203094; Byggingarreitur stækkaður; Deiliskipulagsbreyting – 2604019
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Efra-Sels í Hrunamannahreppi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits á lóðinni Selsvegur 2 þar sem heimilt verður að reisa starfsmannabústað til bráðabirgða.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
24.   Efra-Sel golfvöllur (L203094); byggingarheimild; starfsmannahús – 2603046
Móttekin var umsókn þann 06.03.2026 um byggingarheimild fyrir 64,6 m2 bráðabirgða starfsmannahúsi á landinu Efra-Sel golfvöllur (L203094) í Hrunamannahreppi.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

 

25.   Kjóabyggð – Álftabyggð F9; Úr frístundabyggð í íbúðabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2503056
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Birkibyggð sem er hluti af frístundabyggðinni F9 Kjóabyggð/Álftabyggð. Í breytingunni felst að Birkibyggð verður breytt úr frístundabyggð í íbúðarbyggð. Einnig eru settir fram almennir skilmálar og heimildir fyrir íbúðarbyggð í dreifbýli. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að samþykkja breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við þeim umsögnum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Nefndin mælist til þess við sveitarstjórn að óskað verði eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
26.   Birkibyggð; Skilgreining íbúðarbyggðar; Deiliskipulag – 2604018
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Birkibyggðar í Hrunamannahreppi. Í deiliskipulaginu felst að heimiluð er íbúðarbyggð í samræmi við nýja stefnu aðalskipulags um íbúðarbyggð í dreifbýli. Settir eru skilmálar fyrir íbúðarbyggðina í Birkibyggð sem er hluti af frístundabyggðinni F9 Kjóabyggð/Álftabyggð.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Hrunamannahrepps að deiliskipulagið verði samþykkt, með fyrirvara um uppfærð gögn og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
27.   Galtaflöt 3 L200921; Úr frístundahúsnæði í gistihúsnæði; Deiliskipulagsbreyting – 2510002
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi sem tekur til Galtaflatar 3 L200921 í Hrunamannahreppi. Óskað er eftir að málið verði grenndarkynnt aftur með uppfærðum gögnum. Í breytingunni felst að frístundahúsnæðinu er breytt i gistihúsnæði án veitingasölu. Tilgangur umsóknarinnar er að reka þar lítið gistihús/gistheimili sem þjónusti ferðafólk með svefnplássi án veitingareksturs. Einungis verður boðin upp á gistingu, en ekki sala mat- eða drykkjarvara.
Skipulagsnefnd UTU frestar málinu.
28.   Miðfell 5 L166809; Staðfesting og afmörkun lóða – 2603041
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 06.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024. Í merkjalýsingunni fellst uppmæling merkja séreignar Miðfells 5b L166804 (áður Miðfell 1) og samruni Miðfells I lóð 2 L200316 og Miðfells 4 L204944 við séreign Miðfells 5 L166809.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórn Hrunamannahrepps geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
29.   Gaukshöfði og Búðafoss; Sveitarfélagamörk; Aðalskipulagsbreyting – 2602017
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem felur í sér samræmingu sveitarfélagamarka á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni eru sveitarfélagamörk samræmd frá Gaukshöfða niður undir Búðafoss, þar sem staðfest landamerki milli jarða beggja vegna árinnar liggja til grundvallar, en að öðru leyti er miðað við sveitarfélagamörk samkvæmt IS50v. Jafnframt er landnotkun aðlöguð að breyttum sveitarfélagamörkum, án breytinga á skilmálum, og eru breytingarnar unnar samhliða á aðalskipulagi beggja sveitarfélaga.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.
30.   Búðafossvegur; Vegagerð og brú yfir Þjórsá; Framkvæmdaleyfi – 2602021
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Búðafossvegar ásamt nýrri brú yfir Þjórsá í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Sjá nánari lýsingu í skjalinu inngangur.
Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskyldufyrirspurnir, matsskylduákvarðanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Vegagerðarinnar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að sameiginlegri greinargerð Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem leyfisveitenda vegna framkvæmdarinnar frá 10. apríl 2026 um þau atriði sem meta skal við afgreiðslu framkvæmdaleyfisumsóknar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerða leyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsnefnd UTU leggur til við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að fyrirliggjandi drög að greinargerð leyfisveitanda vegna framkvæmdarinnar frá 10. apríl 2026 verði samþykkt í endanlegri útgáfu sinni sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda lagningar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin telur brýna nauðsyn bera til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til þess að afar áríðandi sé að tryggðar séu greiðar og öruggar samgöngur á þessu svæði og á milli sveitarfélaganna, sem er grundvallarmarkmið framkvæmdarinnar. Nefndin telur tilgang framkvæmdarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.
31.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 27.03.2026 – 26-247 – 2603003F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-247, dags. 27.03.2026.
32.   Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 08.04.2026 – 26-248 – 2603005F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-248, dags. 08.04.2026.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00