04 feb Afgreiðslur byggingarfulltrúa fundur nr. 243 – 4. febrúar 2026
Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-243. fundur haldinn að Laugarvatni, miðvikudaginn 4. febrúar 2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu:
Davíð Sigurðsson, Lilja Ómarsdóttir og Halldór Ásgeirsson.
Fundargerð ritaði: Davíð Sigurðsson, byggingarfulltrúi
Dagskrá:
| Grímsnes- og Grafningshreppur – Almenn mál |
||
| 1. | Engjabrekka 5 (L217019); byggingarheimild; sumarhús – 2601061 | |
| Móttekin var umsókn þann 21.01.2026 um byggingarheimild fyrir 90 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Engjabrekka 5 (L217019) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| 2. | Hólabraut 6 (L169198); byggingarheimild; sumarhús – 2601080 | |
| Móttekin var umsókn þann 29.01.2026 um byggingarheimild fyrir 96 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Hólabraut 6 (L169198) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| 3. | Þórisstaðir 2 lóð 2 (L212299); byggingarheimild; gestahús – 2601021 | |
| Móttekin var umsókn þann 06.01.2026 um byggingarheimild fyrir 16,7 m2 gestahúsi á sumarbústaðalandinu Þórisstaðir 2 lóð 2 (L212299) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| 4. | Kjalbraut 3 (169779); niðurrif; sumarbústaður – 2601066 | |
| Móttekin var umsókn þann 22.1.2026 um að fjarlægja hús af lóð mhl 01 sumarhús 59,9 m2, byggingarár 1989 á sumarbústaðalóðinni Kjalbraut 3 (169779) í Grímsnes- og Grafningshreppur. | ||
| Samþykkt. | ||
| 5. | Gufunessund 7 (L239566); byggingarheimild; sumarhús – 2601062 | |
| Móttekin var umsókn þann 21.01.2026 um byggingarheimild fyrir 122,5 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Gufunessund 7 (L239566) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Almenn mál |
||
| 6. | Malarbraut 4 (L234683); byggingarleyfi; gistihús – 2506004 | |
| Erindi sett að nýju fyrir fund, hönnuður hefur skilað inn breyttum uppdráttum. Móttekin var umsókn þann 21.01.2026 um byggingarleyfi fyrir 9 herbergja gistihúsi 402 m2, á viðskipta- og þjónustulóðinni Malarbraut 4 (L234683) í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Húsið hefur minnkað frá fyrri samþykkt. | ||
| Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir. -Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn. – Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða. – Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| Bláskógabyggð – Almenn mál |
||
| 7. | Vörðubrekka 5 (L236149); byggingarheimild; sumarhús – 2601072 | |
| Móttekin var umsókn þann 26.01.2026 um byggingarheimild fyrir 133 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Vörðubrekka 5 (L236149) í Bláskógabyggð. | ||
| Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráformin samrýmast gildandi skipulagsáætlun og eru samþykkt. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: – Undirritaðir aðaluppdrættir þurfa að vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri þarf að staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Leyfisgjöld þurfa að vera greidd. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarheimild ekki verið gefin út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| 8. | Holtakot lóð (L167344); byggingarheimild; sumarhús – 2602001 | |
| Móttekin var umsókn þann 30.01.2026 um byggingarheimild fyrir 88 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Holtakot lóð (L167344) í Bláskógabyggð. | ||
| Vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu. | ||
| Flóahreppur – Almenn mál |
||
| 9. | Ármótsflöt 4 (L233900); byggingarleyfi íbúðarhús – 2601058 | |
| Móttekin var umsókn þann 20.01.2026 um byggingarleyfi fyrir 191,5 m2 einbýlishúsi á íbúðarhúsalóðinni Ármótsflöt 4 (L233900) í Flóahreppi. | ||
| Byggingaráform eru samþykkt, þau uppfylla ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð 112/2012 liggja fyrir. -Undirritaðir aðaluppdrættir skulu vera staðfestir og áritaðir hjá leyfisveitanda. – Byggingarstjóri skal staðfesta ábyrgð sína og afhenda staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. – Ábyrgðaryfirlýsing iðnmeistara skal skilað inn. – Hönnunarstjóri skal leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða. – Byggingarleyfisgjöld skulu vera greidd. – Kvittun fyrir skilum á lífsferilsgreiningu til HMS. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra. |
||
| Grímsnes- og Grafningshr. – Umsagnir og vísani |
||
| 10. | Giljatunga 22 L213511; umsögn um rekstrarleyfi; gisting – 2601082 | |
| Móttekinn var tölvupóstur þann 30.01.2026 frá fulltrúa sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarhús frá Yngva Karli Jónssyni fyrir hönd Fasteignafélagi FABÚ ehf, kt. 581007-1240, á sumarbústaðalandinu Giljatunga 22 (L213511) í Grímsnes- og Grafningshreppi. | ||
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30