Auglýsing vegna íbúafundar – Fell

Breytt landnotkun aðalskipulags og nýtt deiliskipulag

Mánudaginn 30. júní 2025 kl. 16:00 verður haldinn kynningarfundur fyrir íbúa og hagsmunaaðila vegna skipulagsbreytinga sem eru í auglýsingu og taka til lands Fells, L177478. Fundurinn verður haldinn í Aratungu í Reykholti. Á fundinum mun landeigandi gera grein fyrir áætlunum sínum er varðar uppbyggingu á svæðinu í takt við auglýst skipulag.

Kynningin tekur til breytingar á aðalskipulagi sem tekur til skilgreiningar á verslunar- og þjónustusvæði og deiliskipulag sem unnið er samhliða.  Nánari upplýsingar má nálgast á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar :

https://skipulagsgatt.is/issues/2024/631

https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1492